9. maí 2012

Hrökkbrauð

Ég fékk þessa uppskrift að hrökkbrauði frá Svölu vinkonu minni í haust en kom því aldrei í verk að baka fyrr en núna fyrir nokkrum dögum. Þetta er afskaplega einföld og góð uppskrift, bráðholl auðvitað og fljótleg.
  • 1 dl sólblómafræ
  • 1 dl graskersfræ
  • 1 dl hörfræ
  • 1 dl sesamfræ
  • 1 dl gróft haframjöl
  • 3 1/2 dl heilhveiti/spelt
  • 1 1/4 dl olía
  • 2 dl vatn
  • 2 tsk salt


Öllu blandað saman í skál og hrært í með sleif. Ég set bara eina tsk af salti í deigið og geymi hina til að mylja yfir þegar ég er búin að fletja þetta út.
Deiginu skipt í tvennt og flatt út á milli tveggja bökunarpappíra.
Síðan á að skera í deigið með pizzahníf eða kleinujárni til að fá hrökkbrauðið fallegt í laginu en ég gleymdi því auðvitað í hita leiksins og skar í lengjur í staðinn um leið og þetta kom úr ofninum. Hér set ég hina tsk af saltinu yfir.
Bakað í 200°C heitum ofni í um 20 mínútur.
Fallegt, ekki satt? og bragðgott. Meira að segja sæta spætan sem lætur nú yfirleitt ekkert hollt sleppa inn fyrir sínar varir er æst í þetta hrökkbrauð.

4. maí 2012

Total makeover hjá sætu spætu

Við byrjuðum að taka herbergi sætu spætunnar í gegn um páskana. Ég var nú smá upptekin við að klára margmiðlunarnámið þannig að ég kláraði ekki að mála húsgögnin fyrr en núna í vikunni. Við seldum Tromsö háa rúmið hennar með skrifborði undir og keyptum krúttlegt hvítt Ikea járnrúm í staðinn og gamalt furuskrifborð.


Sú sæta vildi endilega mála skrifborðið fjólublátt en þar sem mér finnst fjólublátt vera ljótasti litur í heimi, sagði ég við hana að það væri of mikil vinna að mála skrifborðið upp á nýtt þegar hún fengi leið á fjólubláa litnum og sagðist ætla að mála litlu skúffurnar fjólubláar og keypti svo krúttlegar höldur í Snúðum og snældu.





Ég verð nú að segja að þrátt fyrir fjólubláa litinn þá finnst mér þetta bara vel heppnað makeover. Og ekki nóg með það heldur var þetta svolítið grænt makeover þar sem við keyptum "nýju" húsgögnin notuð. Við komum nokkurn vegin út á sléttu svo ekki er hægt að kvarta yfir kostnaði.

26. apríl 2012

Brim 2012



Loksins sér fyrir endann á margmiðlunarnámi mínu, ekki það að mér hafi leiðst, öðru nær en þessi önn hefur verið heldur strembin. Ég hlakka mikið til í næstu viku þegar allt er afstaðið. Lokaverkefnið mitt er skreyting á bíla, litla sæta konubíla. Þannig er mál með vexti að ég keypti mér lítinn, sparneytinn bíl fyrir sex árum en eini liturinn sem var í boði var grár. Mér þykja gráir bílir afskaplega óspennandi þannig að ætlunin var alltaf að kaupa eða búa til einhverja krúttlega, kvenlega skreytingu á bílinn. Þegar ég átti svo að velja mér viðfangsefni fyrir lokaverkefnið mitt ákvað ég að framkvæma þessa hugmynd.

Niðurstaðan var myndir af hekli, prjóni, orkeringu og krosssaumi sem ég skannaði inn, fjarlægði bakgrunn og lét prenta á glæra límfilmu. Ég sett svo eitt sett af blúndudúkum á bílinn, setti annað sett á plexiplötu og eitt sett af krosssaumi á aðra plexiplötu. Opnunin á lokasýningunni var svo í kvöld og ég gat ekki betur heyrt en fólk væri hrifið af hugmyndinni minni. Ég er sjálf mjög ánægð með útkomuna og bíð spennt eftir að geta sett hitt settið á bílinn, en það ætla ég að gera þegar fer að sjá á núverandi filmum. Það verður gaman að sjá hvað þetta endist.

Á laugardaginn er svo síðasta staðlotan í hinum áfanganum og allt að verða klappað og klárt þar.

19. apríl 2012

Gleðilegt sumar

Gleðilegt sumar. Góður dagur í dag, 60 dagar í Ítalíuferðina, 10 dagar í að Borgó námið mitt klárist, allt á lokasnúningi þar og gengur framar vonum.

Hamingjuóskir til litlu systur, sem á afmæli í dag. Ég skulda henni afmælisgjöf en hún kemur um leið og um hægist hjá mér.

Við tókum grænt makeover á herbergi sætu spætunnar um páskana. Við seldum skrifborðið undan háa rúminu hennar fyrir 10.000 kr og keyptum venjulegt rúm í staðinn á bland.is fyrir 10.000. Svo seldum við háa rúmið á 6000 kr. með dýnunni sem fylgdi með venjulega rúminu, því hún vildi halda sinni dýnu, og keyptum skrifborð á bland.is fyrir 5000 kr. Það þurfti að mála einn vegg með málningu sem við áttum inni í skáp og ég málaði eina furuhillu með sömu málningu. Við komum því út á sléttu, endurnýjuðum svo til allt í herberginu og allt endurnýtt stuff. Svona á að gera þetta :) Verst að ég gleymdi að taka "fyrir" myndina, ég set svo "eftir" myndina inn þegar ég er búin að mála skrifborðið.

8. apríl 2012

Páskar

Gleðilega páska. Mmmmm súkkulaði, elska það, hreint og beint elska það.

1. apríl 2012

Páskafríið loksins komið

Páskafríið langþráða er loksins komið og helgin hefur farið í að passa ömmulingana mína. Bj. var hjá okkur frá föstudegi, tveggja ára orkubolti og Bi. kom í gær. Sæta spætan hefur verið að framleiða hringtrefla, hún er búin að prjóna einn fyrir sig og einn fyrir frænku sína. Það er einn enn á prjónunum handa heimasætunni.

Nú eru aðeins tæpir 78 dagar í ferðina mína góðu til Toscana á Ítalíu. Þetta er um 20 manna hópur sem er að fara og ég þekki eina í viðbót við ferðafélaga minn. Ég veit að við eigum eftir að hafa það hrikalega huggulegt þarna og njóta lífsins í botn. Mér finnst matreiðsluhlutinn ekki síðri en smyrslahlutinn. Ég er byrjuð að æfa fyrir göngurnar með því að fara út að hlaupa, búin að fara tvisvar. Ég ætla að reyna að fara a.m.k. þrisvar í viku.

Það er bara mánuður eftir af margmiðlunarnámi mínu, ég vona að ég nái að vinna vel í verkefnunum mínum um páskana, ég verð! ef þetta á að nást. Svo eru tvær vikur eftir af frönskunámskeiðinu mínu. Mér á örugglega eftir að finnast ég vera komin í frí í maí þegar þessu námi er öllu lokið. Það er nú eiginlega nóg að vera bara að vinna en ég læt mig hafa það fyrst þetta er ekki lengri tími en þetta.

Grænn apríl hófst í dag og earth day var í gærkvöldi. Ég gleymdi nú að slökkva ljósin kl. 20:30 en ég fór mínar venjulegu 3-4 ferðir um húsið til að slökkva ljós eftir heimilismenn. Þetta geri ég á hverju kvöldi og vona í hvert skipti að einhver taki hintinu en ekkert gerist, þannig að ég held áfram að rölta á kvöldin ;-)

8. mars 2012

Æsingur

Tveir mánuðir frá síðustu færslu. Það er búið að vera alveg ótrúlega pakkað að gera sl. vikur. Ég er auðvitað að vinna rúmlega 100% vinnu sem tekur nú sinn toll, ég ákvað að fara í frönsku því heimasætan byrjaði í frönsku og svo er ég að reyna að klára margmiðlunarnámið mitt og er í tveimur áföngum þar, samtals 11 einingum. Það er því ekki mikill tími til að gera eitthvað annað.

Ég er nú samt byrjuð að láta mig hlakka til ferðarinnar minnar til Ítalíu í sumar. Förinni er heitið til Toscana í gönguferð með grasa- og sælkeraívafi. Ekkert smá spennandi, léttar gönguferðir, matreiðslunámskeið og smyrslagerð og ekki skemmir umhverfið.

26. janúar 2012

Prjónaveskið









Bara nokkrar myndir af fallegasta prjónaveski norðan Alpafjalla.

16. janúar 2012

Merci


Frúin er búin að skrá sig á frönskunámskeið sem hefst í kvöld hjá Alliance francaise. Ástæðan fyrir þessu málanámi mínu er auðvitað áhugi minn en líka það að heimasætan er að byrja í frönsku í framhaldsskólanum sínum og því finnst mér upplagt að við lærum þetta saman frá byrjun.
Eins og þetta sé nú ekki nóg er frúin líka í einum áfanga í dreifnáminu sem hefur mallað hægt og rólega undanfarin ár og sér nú fyrir endann á. Mín útskrifast jafnvel í vor!
Planið er að taka ræktina með trompi, mín er komin með kort í World Class og ákveðin í því að verða ekki styrktaraðili heldur virkur meðlimur.
Önnin klárast svo með gönguferð um Toscana með grasa- og sælkeraívafi með góðri vinkonu. Það er því ljóst að mér á ekki eftir að leiðast næstu mánuðina frekar en fyrri daginn

Á kantinum bíður bloggfærsla um handavinnu en ég kláraði loksins prjónaveskið mitt um daginn og svo fékk ég undurfagra heklaða ljósaseríu frá bestu systur í afmælisgjöf. Verð að gefa mér tíma til að mynda herlegheitin.

5. janúar 2012

Falleg augu

Fallegur boðskapur og örugglega sannur.
Related Posts with Thumbnails