27. október 2008

Frægust af okkur

Hún Ólöf mín er greinilega sú frægasta af okkur í fjölskyldunni. Nú á sunnudaginn var viðtal við hana í Mbl.

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/25/eru_god_i_lestri/

Fyrir um mánuði var viðtal við hana þegar sjúkraþjálfarar voru að kenna börnunum að bera skólatöskurnar rétt.

Svo verður mynd af henni á Fókussýningunni í Smáralind nú í lok nóvember. Í mars á þessu ári var mynd af henni á Fókussýningunni í Ráðhúsinu.

Hvað næst?

24. október 2008

Rautt í Fókus

Þann 21. nóvember verður opnuð ljósmyndasýning í Smáralind sem ber nafnið Rautt í Fókus. Þar ætlum við Fókusfélagar að sýna myndir sem við höfum tekið. Myndin sem ég sýni er af Ólöfu minni, tekin í útilegu í tjaldvagninum í sumar.

Ég eyddi löngum tíma í vikunni í að taka mynd fyrir sýninguna. Ég var ánægðust með myndina hér fyrir neðan en þegar ég sýndi þessar tvær, þ.e. Ólöf og trélitirnir þá var trélitamyndin slegin út af borðinu med det samme.


20. október 2008

9. október 2008

Splúnkuný frænka

Ég eignaðist nýja frænku kl. hálfsjö í morgun. Guðný systir og Gunnar mágur eignuðust stóra og fallega stelpu, 18 merkur og 55 sm. Til hamingju!
Ohhh hvað ég er spennt að fá að knúsa hana.
Hún Þórunn mín á afmæli í dag. Til hamingju!
Samúðarkveðjur til Elínar og fjölskyldu.

6. október 2008

Er gott að vera kennari?

Svei mér þá, ég held bara að við kennarar séum í góðri stöðu núna á þessum síðustu og verstu tímum. Við urðum ekkert vör við góðærið og gátum því ekki eytt eins og vitleysingar, keypt íbúðir, innréttingar og bíla á uppsprengdu verði á 100% myntkörfuláni. Það er að koma okkur til góða núna þegar krónan (sem aldrei hefur verið stöðug - aldrei) er í frjálsu falli og örugglega ekki komin á botninn ennþá. Þetta er nú meiri endemis vitleysan. Fermingardrengir í rándýrum jakkafötum eru búnir að spila svo rassinn úr buxunum að ekki stendur steinn yfir steini. Og nú eigum við, fólkið í landinu, almenningur sem hefur ekki haft tækifæri á 300 milljóna starfsbyrjunar- eða starfslokasamningi (eða eitthvað þar á milli), að redda málunum. Mér finnst samt eins og ein fjöður sé orðin að fimm hænum í þessu máli, eru ekki fjölmiðlar að fara offari í gúrkutíðinni?
Related Posts with Thumbnails