Við Ólöf skelltum okkur í bíó í dag sem er ekki í frásögur færandi, nema hvað, bíómiðinn öskraði á mig þegar ég fékk hann í hendur. Hverjum dettur þetta í hug? Ég spyr bara.



Við tókum svolítið af myndum við kirkjuna og fórum síðan í Almannagjá. Þar var Ástríður svo óheppin að rífa vöðva og haltraði það sem eftir var ferðarinnar. Þar sem Ástríður átti í erfiðleikum með að stíga í fótinn var ákveðið að Ingibjörg myndi keyra bílinn hennar heim. Bíllinn bilaði hins vegar á leiðinni þannig að hann var skilinn eftir á Vesturlandsveginum á meðan við Ingibjörg keyrðum Ástríði á slysavarðstofuna.
Þetta var samt mjög skemmtileg ferð þó að haustlitirnir hefðu mátt vera meiri.

