
29. desember 2007
Milli hátíða

24. desember 2007
Gleðileg jól
16. desember 2007
Kónguló, kónguló, vísaðu mér ...
Við fórum, öll fjölskyldan, upp í Heiðmörk í gær og söguðum okkur jólatré. Það var mjög skemmtilegt fyrir utan það að stelpurnar voru svo þreyttar að þær lögðust niður í hverju skrefi og vildu hvíla sig, og Ólöf vældi af þreytu. Enda ekki nema von því þær fóru ekki að sofa fyrr en eftir kl. 11 sú yngri og kl. 2 sú eldri, þær voru hjá frænku sinni sem heldur að hún sé voða góð við þær að leyfa þeim að vaka eins lengi og þær vilja og gefa þeirri yngri sex diska af kókópuffsi í morgunmat.
GM og JÁ gistu hjá okkur í nótt, alltaf gaman að hafa svona flotta krakka í heimsókn. Þau voru öll sofnuð um kl. 10 því ekki vilja þau missa af jólasveininum. Við vorum nefnilega í heimsókn hjá Þuru og Guðmundi því Þura átti afmæli, til kl. 9:30.
14. desember 2007
Bökunardagur
Nú ætlum við því að fara að baka og skreyta piparkökur, kannski gerum við líka piparkökuhús. Ég er búin að baka engiferkökurnar mínar, uppskrift sem ég fékk á Austurborg þegar ég var að vinna það, geggjaðar kökur, kannski ég skrifi bara uppskriftina hér:
- ENGIFERKÖKUR
- 500 g hveiti
- 500 g púðursykur
- 250 g smjörlíki
- 2 egg
- 2 tsk lyftiduft
- 2 tsk natron (matarsódi)
- 2 tsk engifer
- 2 tsk negull
- 2 tsk kanill
Hnoðað deig. Búið til lengjur úr deginu (um 2 fingur að þykkt) og skerið í um 2 cm þykka bita. Raðið á bökunarplötur. Hafið smjörpappír undir. Bakað við 200°C í u.þ.b. 8-10 mín. Ath. uppskriftin er stór, fer á 4 plötur hjá mér.
Verði ykkur að góðu
9. desember 2007
Jólakveðja til ykkar frá okkur
http://www.elfyourself.com/?id=1258925138
(Takk Sandra)
Kveðja
Jólaálfarnir í Grafarvoginum
7. desember 2007
Týndur frakki
Annars er laufabrauðið á dagskrá á morgun hjá mömmu, svo ætlum við Svala að hittast á sunnudaginn og reyna að lesa saman fyrir þetta próf sem við förum í á þriðjudaginn.
Ég byrjaði að prenta út dagatölin í dag, mig vantar ennþá myndir frá sumum til að gera dagatalið fyrir ömmu og afa. Ég ætla að klára þetta um helgina, prenta rest á mánudaginn og koma þessu í gormun á mánudag! Það hlýtur að takast.

Ég fór með stelpurnar í stúdóið sem IH er búin að útbúa í Engjaskóla í síðustu viku og tók jólamyndir af þeim. Þær tókust bara svaka vel, þó engin væru stúdíóljósin, bara flassið á vélinni notað. Ég á örugglega eftir að nota þetta oftar.
27. nóvember 2007
ritstífla

19. nóvember 2007
byrjuð á jólaverkunum ...
- byrjaði á smákökubakstri, tvær sortir
- byrjaði á vettlingum handa Þórunni, út af sottlu
- byrjaði á dagatölunum, fyrir ömmur og afa í jólagjöf
- byrjaði að kaupa jólagjafir, nú er tilbúið það sem þarf að senda út í DK
- byrjaði á jólakortunum, búin með umslögin
Ég fór áðan og ætlaði að kaupa Dextra-pappírinn í Odda (nei afsakið A4) til að prenta dagatölin. Þá var hann auðvitað uppseldur, kemur í lok vikunnar.
Ég fer á morgun í Borgarleikhúsið að horfa á úrslitin í Skrekk, Þórunn tekur þátt. Svo er bekkjarkvöld hjá Ólöfu á miðvikudaginn. Guðný, Guðrún María, Þórunn og ég förum á tveggja daga tálgunámskeið um helgina. Við Siggi förum á tónleika með Hannesi og Gull á laugardaginn (Kim Larsen). Svo er það auðvitað Köben eftir örfáa daga.
14. nóvember 2007
Brilljant grein í Fréttablaðinu í dag

13. nóvember 2007
Jólin, jólin í IKEA
Næst á dagskrá er svo jólasmákökur, ég er að vísu búin að "baka" eina sort, sort sem ég "baka" alltaf fyrir jólin en það eru kókostopparnir frá Karen Wolf í Bónus, mmmm svo góðir og fljótlegir í bakstri.
Svo þarf að fara að spá í jólagjafirnar, ég er nú eiginlega búin að finna erfiðustu gjafirnar sem eru til systkina okkar Sigga, á bara aðeins eftir að skoða það nánar.
Svo eru það jólaseríurnar, þarf að koma þeim upp fljótlega.
9. nóvember 2007
Þarf frið og ró
7. nóvember 2007
Kæri Jóli ...
5. Foreldri mun fá forgang fyrir börn sín á frístundaheimili og/eða leikskóla á meðan það starfar á þessum stofnunum.
Þetta er nú gamalt og hefur verið svona í mjög mörg ár. Þegar Þórunn var 10 mán. (fyrir 12 árum) fékk ég forgang fyrir hana af því að ég fór að vinna á leikskóla á sama tíma. Hin stelpan mín komst ekki að fyrr en 3 ára af því að þá var ég farin að vinna í grunnskóla.
Það var stíf umræða um kosti þessa bréfs og galla á kaffistofunni í dag. Það var einn athyglisverður punktur sem kom fram: ekki líta á þetta sem kjarabót heldur sem fríðindi sem fylgja starfinu. Og alls ekki tengja þetta við komandi kjarabaráttu. Eftir að ég fór að hugsa svoleiðis er ég ekki eins reið. Þó að flest atriðin í bréfinu komi mér ekki að gagni að þá á ég kannski eftir að nýta mér eitthvað. (Nú hef ég aldeilis smitast illa af Dagnýjarjákvæðni.)
6. nóvember 2007
Kæri Jóli ...
4. Starfsfólk sem býr að reynslu úr sambærilegum störfum úr öðrum sveitarfélögum eða ríki mun frá og með 1.nóvember fá þá reynslu metna inn í kjör sín hjá Reykjavíkurborg.
Ég er nú svo fáfróð, hefur þetta ekki verið metið hingað til? Hefur starfsfólk, t.d. kennarar sem færa sig á milli sveitarfélaga þurft að byrja á núlli hvað starfsaldur varðar?
En ef maður færir sig á milli starfa innan Reykjavíkur fer t.d. af leikskóla yfir í grunnskóla, er það metið? Hefur það verið metið hingað til? Ef svo er hefur vantað tvö ár á minn kennsluferil í 10 ár.
Þetta er svona atriði sem lítur vel út á pappír en afskaplega fáir geta notfært sér.
Eftir því sem ég fer betur ofan í þetta "tilboð" verð ég alltaf svekktari og svekktari og samt gerði ég mér engar vonir um neitt fyrirfram. Það er eins gott að launanefnd sveitarfélaga taki almennilega á málum þegar samningaumleitanir byrja nú eftir áramót því það er ekki margt sem heldur venjulegum kennurum á besta aldri eins og mér í starfi ef það verða ekki verulegar launahækkanir. Launahækkanir eru nefnilega það eina sem verður til þess "að gera störf innan borgarinnar samkeppnishæfari og starfsandann betri".
5. nóvember 2007
Kæri Jóli ...
3. Starfsfólk leikskóla, grunnskóla (1.-4.bekk) og hjúkrunarstofnana sem skylt er að snæða hádegismat með þjónustuþegum sínum - og kýs að taka ekki styttri vinnutíma á móti - mun, frá og með 1.október, fá greitt fyrir þær stundir í yfirvinnutímum.
Nú jæja, ekkert hér fyrir mig því ég kenni 6. bekk. Þetta breytir heldur engu fyrir kennara í 1. - 4. bekk því þeir fá nú þegar greitt fyrir þessar stundir í yfirvinnu. Þegar ég vann á leikskóla (1995-7) unnum við frá 8-16, borðuðum með börnunum, fengum frían mat og vorum í 100% starfi. Kannski er eitthvað breytt síðan þá, ef ekki þá er ekkert nýtt hér.
Vel meint kæri borgarstjóri, en ...
4. nóvember 2007
Kæri Jóli ...
2. Tvö hundruð milljónum verður ráðstafað í sérstakan "pott" sem stjórnendur þeirra stofnana sem glíma við manneklu geta notað til þess að umbuna starfsfólki sínu vegna margs konar álags eða til að bæta starfsanda á annan hátt.
"Stjórnendur þeirra stofnana sem glíma við manneklu ...?" Hvaða stofnanir ætli það séu? Ætli það sé mín stofnun, þar sem tveir sérkennarar af þremur hafa hætt nú í haust og það á ekki að ráða í staðinn fyrir þá vegna þess að við vorum með "of mikla" sérkennslu í fyrra. Hvernig er hægt að vera með of mikla sérkennslu, við erum bara með of mörg börn sem þurfa á mikilli aðstoð að halda, eigum við að henda þeim út úr skólanum núna?
Eða er mannekla hjá okkur þar sem flestir voru settir í meiri kennslu en þeir báðu um vegna þess að ekki fengust fleiri kennarar til starfa?
Hvað eru 200 milljónir fyrir margar stofnanir? Í Reykjavík eru um 43 grunnskólar, tæplega 100 leikskólar ef ég man rétt og eru ekki stofnanir fyrir eldri borgara inn í þessum pakka líka?
200.000.000 / 150 stofnanir = 1.300.000. Ætli þetta sé á mánuði? Nei, nei, þvílík bjartsýni, þetta er fyrir þetta ár og það næsta, 14 mánuði. Það er sem sagt um 100.000 kr á mánuði sem hver skólastjóri hefur til að umbuna öllu sínu starfsfóli á mánuði, hjá okkur eru um 50 starfsmenn sem þýðir 2000 kr á mann á mánuði ef þessu yrði dreift jafnt á alla.
Ég bíð spennt eftir að sjá hvernig þessi klausa kemur út í reynd.
Takk fyrir þetta borgarstjóri, þú ert æði!
3. nóvember 2007
Kæri Jóli ...
1. Öllum þeim sem vinna hjá borginni í föstu starfi stendur til boða 16 þúsund króna heilsuræktarstyrkur (miðað við fullt starf), árskort í sundlaugar, safnakort, bókasafnskort og heilsársaðgangur að Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, frá og með 1. janúar 2008.
Takk fyrir þetta kæri borgarstjóri, ég er að vísu nýbúin að endurnýja bókasafnskortið mitt, takk samt, við förum örugglega tvisvar á ári í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, þannig að það er nú alveg heilmikil kjarabót. Ætli þessi heilsuræktarstyrkur fari í gegnum launakerfið eins og 12000 kr. styrkurinn sem er nú þegar er veittur þannig að eftir stendur um 9000 eftir skatta???
Og það besta er að þetta kemur ekki fyrr en eftir tvo mánuði þannig að ég hef eitthvað til að hlakka til :-)
Ein rosalega "glöð" að vinna hjá svona "frábærum vinnuveitendum" sem neyða mig í sumarfrí um miðjan vetur og ég fæ ekki einu sinni 25% álag á frídagana mína eins og maðurinn minn fengi ef hann neyddist til að taka sitt frí utan venjulegs sumarfríistíma.
30. október 2007
Bara einn dagur í vetrarfrí ...
Fékk svar frá kennarasambandinu í dag. Eins og mig grunaði er ekki leyfilegt að hafa launatímabilið frá 10. - 9. fyrir yfirvinnutímana, það mega ekki líða meira en 15 dagar frá lokum tímabils til útborgunar. Næsta skref er að segja Ásu þetta og Rósu hjá Menntasviði. Vonandi gengur það þrautalaust fyrir sig.
Mamma og pabbi eru á leiðinni til Kanarí í fyrramálið í heilan mánuð, ég væri sko til í að lauma mér með.
Ég hitti Ástu á ganginum eftir fundinn erfiða í dag. Við ræddum um að nú þegar faggreinakerfið væri komið á væri engin ástæða að við, þessir umsjónarkennarar, værum alltaf með umsjón. Okkur fannst kominn tími til að dreifa ábyrgðinni og "leyfa" fleirum að komast í jobbið. Það fer fáranlega mikill tími í umsjónarstarfið og fyrir það er greiddur einn skitinn launaflokkur, 5000 kr fyrir skatta. Það væri hægt að ná inn sama pening með því að taka tvo forfallatíma á mánuði, takið eftir!, á mánuði, ekki viku.
Ef ég verð næsta vetur vil ég ekki umsjón, og hana nú ...
ein þreytt eftir erfiðan dag á vitlausaspítalanum
24. október 2007
brjáluð vika
Var á fullu í dag að undirbúa foreldraviðtölin á morgun. Var í vinnunni til hálfsex og náði að klára allt fyrir morgundaginn nema setja fyrir heimavinnu fyrir næstu viku, geri það á eftir.
Síminn hringdi hérna þegar ég var á leiðinni út í búð eftir að hafa farið með Ólöfu í fimleika kl. sex. Í símanum var einhver strákur sem talaði bara fr....ísku, ég skildi ekki nema helminginn af því sem hann sagði og samt er ég nokkuð góð í fr....ísku (talaði heillengi við Fr... í dag og skildi næstum allt). Ég held að strákurinn hafi verið að reyna að selja mér áskrift af lottói. Þoli ekki óskýrmælt símasölufólk ... arg
Annað sem ég þoli ekki er þegar maður bíður eftir töskunum á flugvöllum. Flestir raða sér svo þétt upp við færibandið að það er ekki nokkur leið að komast að bandinu ef maður sér töskuna sína. Er að spá í að mæta með gult límband næst þegar ég fer til útlanda og líma hringinn í kringum bandið í svona meters fjarlægð og skrifa: standið hér á meðan þið bíðið eftir töskunum.
Þoli ekki heldur matreiðsluþætti í sjónvarpinu, allt svo auðvelt og einfalt ... þetta er ekki hægt í alvörunni!
Jæja nú er ég hætt að vera pirraða Barbie
Ég ætla að reyna að láta Þórunni og Sunnu passa Ólöfu í fyrramálið á meðan ég er með viðtölin, vonandi sofa þær bara út, horfa á eina mynd og rífast ekkert áður en ég kem heim kl. 1. Þetta er samt algjört happdrætti.
En nú er komið að því að vinna upp í íslenskunámskeiðinu, á eftir að hlusta á 2 fyrirlestra og lesa eitthvað líka áður en við hittumst á morgun til að fara yfir næsta verkefni sem á að skila á morgun.
Svona hættu nú að blogga stelpa!
16. október 2007
bílastæðaklukkan mín góða
10. október 2007
Snilldarormur
Það eru alltaf skemmtilegar umræður á kaffistofunni, í dag vorum við Elín að ræða um að sækja um aðra vinnu, vera svona leiðbeinandi á undanþágu (eins og í grunnskólunum). Mig langar að vera byggingaverkfræðingur, ég hef mikla reynslu af byggingum, ég hef búið í húsi alla mína æfi, ég hef tekið þátt í að byggja 3 hús, tvö þegar ég var krakki og svo húsið sem við búum í núna. Ég veit alveg hvernig hús á að líta út svo ég held bara að ég væri svolítið góð í þessu. Elín ætlar að verða tannlæknir, hún hefur burstað tennurnar í sjálfri sér og 3 sonum sínum, hún hefur oft farið til tannlæknis og getur örugglega lært að nota loftsprautuna o.fl. tól.
Siggi er bara í bílskúrnum þessa dagana að setja samlæsingar í jeppann og Þórunn nennir ekkert að gera í skólanum og þarf því að eyða öllum kvöldum í heimalærdóm. Sem sagt - bara rólegt hjá mér.
Kveðja
Pæjan á hælaskónum
6. október 2007
Myndatiltekt
3. október 2007
Úff, pjúff
Skapið lagast örugglega eftir nokkra daga, þetta er bara þetta venjulega mánaðarmótaþunglyndi.
29. september 2007
22. september 2007
Ólöf missir fyrstu tönnina

16. september 2007
Ævintýraleg ljósmyndaferð

Við tókum svolítið af myndum við kirkjuna og fórum síðan í Almannagjá. Þar var Ástríður svo óheppin að rífa vöðva og haltraði það sem eftir var ferðarinnar. Þar sem Ástríður átti í erfiðleikum með að stíga í fótinn var ákveðið að Ingibjörg myndi keyra bílinn hennar heim. Bíllinn bilaði hins vegar á leiðinni þannig að hann var skilinn eftir á Vesturlandsveginum á meðan við Ingibjörg keyrðum Ástríði á slysavarðstofuna.
Þetta var samt mjög skemmtileg ferð þó að haustlitirnir hefðu mátt vera meiri.
15. september 2007
Ljósmyndaklúbburinn tekur til starfa

Félagslífið fer vel af stað í vinnunni núna þetta haustið eins og venjulega. Haustferðin er ákveðin (mín er í nefndinni) og verður 5. október. Svo er auðvitað ljósmyndaklúbburinn og jafnvel einhver Photoshop hittingur (Ástríður þarf að fara að kenna okkur allt um Orton effect, Lomo og ég veit ekki hvað), og Guðný ætlar að skipuleggja sauma/prjóna/kjaftakvöld, það er nú bara skemmtilegt. Ætli Dagný setji ekki upp spennandi bíóferðir ... o.fl. o.fl. o.fl. Þessi vetur verður fljótur að líða eins og hinir 10 sem ég er búin að vera í kennslu. Vá getur það verið að það séu komin 10 ár síðan ég byrjaði að vinna í Engjaskóla!
8. september 2007
Barnaafmæli í gær

Þetta íslenskunám sem við Svala og Gerður erum að byrja í í Háskólanum á nú ekki eftir að láta okkur leiðast, leslistinn er endalaust langur og nýr fyrirlestur sem þarf að hlusta á tvisvar í viku í tölvunni. Fyrsta verkefninu á að skila á fimmtudaginn og sama dag fáum við næsta verkefni. Það fyndnasta er að aðalkennslubókin í þessu íslenskunámi er á ensku!
Nú er fermingarfræðslan að byrja hjá Þórunni. Það er messa bæði í dag og á morgun. Og foreldrar eiga að koma með. Ég er ekki alveg að nenna að fara svona oft í kirkju eins trúlaus og ég er nú.
6. september 2007
2. september 2007
Mikið að gerast um helgina
Í morgun dró ég upp tölustafina og klippti þá út. Ekki svo seinlegt, svo plasta ég þetta á morgun.
30. ágúst 2007
Trúnaðarmaður ;-)
Guðný, Svala, Ingibjörg og ég fórum á kynningu fyrir handavinnukennara í Föndru í kvöld. Maður gæti nú alveg gleymt sér þarna í nokkra daga! Ég keypti mér pappír til að föndra tölustafi úr til að hafa í stærðfræðistofunni minni. Ég ætla að gera talnarunu frá 1 - 20 og jafnvel hærra og setja svo hring undir prímtölurnar. Mér finnst þetta svo frábært kerfi sem við vorum að taka upp í vetur með að faggreinaskipta kennslunni, þetta er miklu léttara og nú get ég gert allt mögulegt til að gera kennsluna meira líflega og skemmtilega því ég hef svo mikinn tíma.
Á morgun verður svo fyrsta partýið, jibbý.
Hið árlega golfmót fjölskyldunnar hans Sigga verður svo á laugardaginn, byrjar kl. 4 og endar svo á partýi, sem verður víst haldið heima hjá okkur ef ég hef skilið Sigga rétt.
Ég er búin að fá bókalista fyrir íslenskunámið mitt, en veit samt ekki ennþá hvenær það byrjar. Ég þarf endilega að muna að senda kennaranum póst og spyrja nánar út í þetta fjarnám.
Siggi ætlar líka að drífa sig í nám. Það er boðið upp á rafvirkjanám fyrir vélstjóra, aðeins 9 einingar í viðbót og þá er maðurinn orðinn rafvirki. Hann tekur 5 einingar í fjarnámi á haustönn og 4 á vorönn og byrjar á laugardaginn. Þetta verður upptekin fjölskylda í vetur!
Ólöf mín er byrjuð í skólanum og það hefur gengið mjög vel, en ekki eins vel að koma henni í gæsluna. Ég klikkaði auðvitað á því að byrja að tala um gæsluna um leið og ég byrjaði að tala um skólann í febrúar til að venja hana við tilhugsuninni. Það er ekki eðlilegt hvað hún á erfitt með að venjast nýjum aðstæðum. En nú er þetta allt komið held ég, hún fór allavega í gæsluna bæði fyrir og eftir skóla í dag. Ég sótti hana svo snemma í dag og við fórum aðeins í heimsókn á leikskólann. Hún var nú hálf feimin að koma þarna inn aftur eftir svona langt hlé.
19. ágúst 2007
Byrjuð að vinna

13. ágúst 2007
Mánudagur
Í morgun fór ég svo upp á verkstæði að vinna, kom heim um hádegi, þá fórum við mæðgur í EJS að skoða fartölvur. Ég held að ég sé loksins búin að finna tölvuna "mína". Ég reyndi að kaupa hana en hún var uppseld og ég er á biðlista. Hún kemur í lok ágúst.
5. ágúst 2007
Bíll á umferðareyju

Þessi bílstjóri hefur keyrt aðeins of hratt, a.m.k. náði hann ekki beygjunni á hringtorginu við Engjahverfið/Víkurhverfið. Ég hló svo mikið að ég var viss um að allar myndirnar yrðu hreyfðar. Ég kom að þessu þegar löggan var að tala við strákinn (svona 17-18 ára). Stuttu seinna kom vinur hans og sótti hann og þeir brunuðu burt á öðru hundraðinu, þvílíkir hálfvitar, ég vona bara að þeir drepi engan!3. ágúst 2007
Vantar kennara?

2. ágúst 2007
Skólagarðar
Við mæðgur fórum í skólagarðana í morgun. Það var nú alveg kominn tími til, því garðurinn var fullur af arfa. Við hjálpuðumst að að reyta arfann, taka upp og vökva. Stelpurnar urðu síðan eftir í garðinum og ég fór heim og hafði það huggulegt, settist út á pall í sólbað með góða bók. Ég er að lesa If you could see me now eftir Cecilia Ahern. Hún fjallar um strák sem á ímyndaðan vin. Mér finnst hún mjög skemmtileg.
1. ágúst 2007
Jarðaber og ströndin


Við mæðgur skelltum okkur á ströndina í Nauthólsvík seinnipartinn í dag. Þessi strönd er nú alveg frábær í svona góðu veðri. Stelpurnar tóku sundfötin með og ég sat upp við húsið og las.
29. júlí 2007
Í bústað í Skorradal

Við vorum í sumarbústað með Guðnýju og Co um helgina í Skorradal. Við fengum mjög gott veður þó það væri ekki sól allan tímann. "Kallarnir" fóru með börnin að veiða. Það veiddist aðeins einn fiskur og Gunnar veiddi hann. Krakkarnir voru mjög áhugasöm þegar kom að því að gera að fiskinum. Þau fundu hjartað og fylgdust með því slá utan líkama fisksins. Þetta var skemmtileg helgi, við þökkum fyrir okkur.
Á morgun verður svo matarboð hjá mömmu með öllum ættingjunum frá Svíþjóð. Það verður skemmtilegt að hitta þau öll.
- Muna:
-kaupa batterí fyrir myndavélina! Það gengur ekki að verða batteríislaus í miðri útilegu. - Framundan:
-Matarboð í Maríubaug, 30. júlí, með ættingjum frá Svíþjóð
-Kaffihúsahittingur með Engjaskóla á Súfistanum 31. júlí kl. 13.
-Akureyri og Ólafsfjörður, 8. - 12. ágúst. Heimsækja Ninnu og fjölskyldu, skoða fiskidaginn mikla á Dalvík og skoða handverkssýninguna á Hrafnagili
-Vinnan byrjar 15. ágúst
-Danskir dagar í Stykkishólmi 17. - 19. ágúst
-Ólöf og Þórunn byrja í skólanum 22. ágúst


