
Þessi grein sem birtist í Fréttablaðinu í dag er algjör snilld, hún segir allt það sem kennarar vilja segja opinberlega en geta ekki sagt vegna þess að þeir eru bundnir trúnaði við sína skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra.
Yfirvöld þurfa í alvöru að fara að hugsa um það hvernig menntastofnanir þeir vilja hér á landi. Ég t.d. vil skóla með aðgreiningu. Nú verða kannski einhverjir hneykslaðir en það er ekki eðlilegt að sama barnið / eða sömu börnin komist upp með það árum saman að halda heilu bekkjunum í "gíslingu". Hver er réttur þeirra barna sem eru ekki veik, ekki illa upp alin og gera allt sem þau eru beðin um?
Vonandi er hægt að lesa greinina hér til hliðar með því að smella á hana. Þessi maður á heiður skilinn fyrir framtakið.
3 ummæli:
Frábær grein!
Það er svo margt sem verður að breytast. Ólíðandi hvað bæði mörg börn og foreldrar komast upp með í skólunum í dag.
Stelpurnar okkar og aðrir meðleikendur stóðu sig frábærlega í Skrekk undanúrslitakeppninni í gær.:)
Bestu kveðjur, Nína M :)
heyr heyr - rændi þessu yfir á mína síðu
frábær grein hjá þessum manni.
Skrifa ummæli