Við systur tókum þá í skottmarkaði á hverfahátíð miðborgar og Hlíða nú um helgina. Við vorum með alls konar dót, bæði föt og leikföng. Það var nú engin rífandi sala en það sem var vinsælast voru alls konar smáhlutir, bílar og pezkallar o.s.frv. En ... það sem var nú aðalmálið var að Ólöf og frænka hennar voru með naglalakksbás og tóku að sér að lakka neglur á þeim sem það vildu. Þetta byrjaði nú hægt vegna þess að fólk áttaði sig ekki á því hvað var boðið upp á en loksins þegar röðin byrjaði þá var tíminn eiginlega búinn þannig að við þurftum að vísa nokkrum viðskiptavinum frá í lokin.
Ólöf gerði prufu á mig og sjálfa sig til að sýna möguleikana. Hún er nú orðin ansi fær í þessu og í lokin þegar við vorum að reyna að afgreiða röðina á sem stystum tíma var ég aðstoðarkona og sá um að þrífa áhöldin.
Hún hafði mjög gaman af þessu og ekki skemmdi fyrir að hún vann sér inn smá aura með þessu uppátæki.
Hundurinn heldur víst að hann eigi líka að læra heima, hann stal a.m.k. blýanti um daginn og nagaði hann ótrúlega ánægður og var ekki til í að láta mig hafa hann, ég þurfti að elta hann alla leið út í bílskúr áður en kvikyndið gafst upp.



