Ef þér líkar ekki hvar þú ert í lífinu, færðu þig þá....þú ert ekki tré.
Ef þig langar til að prufa nýja hluti, prufaðu þá.
Fann þetta á einhverri bloggsíðu og fannst algjör snilld, segir svo margt í svo fáum orðum.
23. janúar 2008
Bjartara framundan :-)
Jæja, bara 2 kennsludagar eftir og svo búið mál með suma. Vona að ég verði ekkert barin á þessum tveimur dögum! Og vona að hann komi ekkert inn til mín nema kannski einn tíma til að kveðja.
Ég fór á fund hjá Fókus félaginu sem IH er í í gær. Það var bara mjög skemmtilegt, hitti meira að segja eina sem ég þekki þar. Hún var besta vinkona mín þegar við vorum krakkar og býr rétt hjá mér núna. Lítið land!
Við Ásta hittumst á fundi í Ljósmyndaklúbbnum okkar í gatinu okkar í morgun. Ég lærði smá nýtt og vonandi hef ég getað sýnt henni eitthvað skemmtilegt.
Ég er allavega glöð eftir daginn.

22. janúar 2008
Erfiður dagur á hælinu
Nú er ég eins og sprungin blaðra, spurning hvað maður þarf oft að þola svívirðingar frá sama aðilanum áður en eitthvað gerist.
18. janúar 2008
Þórunn fermist ...
Þórunn er búin að fara í tvo tíma á námskeiðinu sem Siðmennt heldur fyrir þá sem ætla að fermast borgaralega. Ég var að skoða námsefnið, ég er hrifin. Málefnin sem eru tekin fyrir eru:
- Gagnrýnin hugsun
- Unglingar í auglýsinga- og neyslusamfélagi
- Siðfræði (erfiðar ákvarðanir, réttlæti, mannréttindi, hvað á maður skilið?)
- Fordómar og fjölmenning
- Að bera virðingu fyrir umhverfi sínu (m.a. um skemmdarverk á almenningseigum)
- Um dularfullar gátur lífsins
- Samskipti unglinga og fullorðinna (hlutverk foreldra)
- Um hamingjuna og tilgang lífsins
- Hvað á maður að gera til að þess að lifa góðu lífi?
Aðalkennarinn á námskeiðinu er Jóhann Björnsson, M.A. í heimspeki og kennari.
Þetta lítur alla vega mjög vel út á pappírum og Þórunn er mjög ánægð með þessi tvö skipti sem hún hefur farið.
Mér sýndist vera heiðskýrt í kvöld, ætla að reyna að fara út á eftir og freista þess að ná norðurljósamyndum.
13. janúar 2008
Ólöf dansar
Ég fór í dag í Elkó til að kaupa firewire-snúru fyrir fartölvuna svo ég gæti sett videoið hér inn sem ég tók af Ólöfu að dansa í partýinu.
12. janúar 2008
Ég á afmæli í dag, ég á afmæli í dag ...
Dagurinn í dag er búinn að vera rólegur og ljúfur eftir svaka partý í gær. Minn elskulegi eiginmaður og mín elskulega systir ákváðu að halda óvænt afmælispartý handa mér og slógu sko rækilega í gegn. Mín var ekki búin að kveikja á fattaranum eftir jólin og var alveg grunlaus þar til 5 mín áður en gestirnir komu, en þá fór Siggi nefnilega að kveikja á kertum ... hmm það gerir hann aldrei!
Í veisluna mættu milli 50 og 60 manns og hér var svaka stuð til kl. 2 í nótt.
Ég fékk fullt af frábærum gjöfum: peninga, gjafakort, nuddgjafabréf, Diesel bodylotion+, leirlist, blóm, partýspil, hálsmen, súpuskál, kampavín ... vona að ég gleymi engu ... er enn að melta þetta allt saman.
Maturinn var frábær, takk Eggert.
Ég er svo rík, að eiga svona margt frábært fólk í kringum mig.

Takk fyrir mig
Í gærmorgun var bekkurinn minn líka með óvænta afmælisveislu fyrir mig, á kennaraborðinu voru 4 kökur og afmælisgjöf handa mér. Þetta var svoooo krúttlegt hjá þeim, stelpurnar höfðu skipt með sér verkum og bakað og svo höfðu þær safnað peningum og farið sjálfar út í Spöng og valið handa mér hálsmen. Þau eru nú algjörar dúllur þessar elskur.
7. janúar 2008
6. janúar 2008
Hún heitir Emma Kristín
Við vorum í brúðkaupi og skírn í gær. Litli bróðir var að gifta sig. Dagurinn var frábær að öllu leiti, frábært veður, hátíðleg athöfn, afslappað andrúmsloft ... yndislegt. Ég set inn myndir á eftir, ég tók 320 myndir í brúðkaupinu og veislunni svo það verður hægt að velja úr einhverju. Ég ætla að leika mér aðeins í Photoshop með sumar myndirnar, setja ramma, brúntóna, einn hlut í lit o.s.frv. Gaman, gaman hjá mér.
2. janúar 2008
ARRRRGGGG
Ég ætlaði nú ekki að blogga í dag, er nefnilega að losa möppu fyrir bókhaldið 2008. Þá verður mér litið á launaseðil frá 1.07.2005 ... mánaðarlaun 214.469 kr. Nýjasti launaseðillinn hljóðar upp á 218.223. Ég hef semsagt hækkað um 3754 kr á mánuði á þessum 30 mánuðum sem liðnir eru ... váa - ég þarf að hætta að vinna til að eyða öllum þessum peningum!!!
Á þessum júlí 05 seðli er ennþá verið að draga 0,38 % af mánaðarlaununum mínum frá útaf verkfallinu. Þetta staðfestir enn og aftur - ég fer ekki aftur í verkfall - ég hætti bara að kenna og fæ mér launaða vinnu!
Gleði, gleði og vinna á morgun, fundur út af öllu starfsfólkinu í vinnunni minni sem finnst það lagt í einelti. .... Auðvitað, ég er ein af þeim, lögð í einelti af launagreiðandanum mínum.
ps. kláraði að taka úr möppunni, launaseðillinn 1.1.05 var líka upp á 214.469 = 35 mánuðir og hækka um 3754 kr.

1. janúar 2008
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla

Mér tókst að taka nokkrar góðar flugeldamyndir þrátt fyrir rok og leiðindaveður á gamlárs... kíkið á þær á Flickr síðunni minni. Mér tókst líka að fatta hvernig á að nota þessa ramma sem ég fékk með ljósmyndablaðinu sem ég keypti mér um daginn. Svona er það þegar maður hefur tíma til að liggja í tölvunni á náttfötunum allan daginn, mmmm næs
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)