27. október 2009

Bjarni Marel 1 mánaða

Við fórum öll fjölskyldan (og tengdasonurinn) til Söndru og fjölskyldu um síðustu helgi. Tilgangurinn var að taka myndir af nýjasta fjölskyldumeðlimnum í tilefni eins mánaða afmælis hans. Nú er ég að skoða myndirnar og vinna þær aðeins. Set fleiri á Flickr.

24. október 2009

Ég og Bjarni

Þarna er pilturinn tveggja daga gamall. Á morgun ætla ég að taka myndir af honum vegna þess að í dag er hann mánaðargamall.

11. október 2009

Prjóni prjón

Bjarni Marel, ömmustrákurinn minn, kom í heimsókn í dag með mömmu sinni og stóru systur. Hann var svo flott dressaður því hann var að fara í afmæli til frænku sinnar. Hann var í gallabuxum og prjónavesti, algjör gæi ;-) en svo var hann líka í því sem ég prjónaði á hann, peysu, sokkum, húfu og með fína teppið. Það var svo skemmtilegt að fá þau í heimsókn.
Hér sést peysan sem ég er að prjóna á mig. Ég er búin með 200 m af garni, eða 30 sm.
Mig vantaði prjóna í stærð 5 og keypti prjóna frá KnitPro í Nálinni. Ég hélt nú að allir prjónar væru svipaðir í notkun en mér finnst þessir æðislega góðir, þeir eru beittari en venjulegir prjónar, og snúran er einhvern vegin liprari.
Næsti fundur í safnskólaumræðunni er á morgun í Víkurskóla kl. 17:30. Ég ætla að fara þangað og líka á miðvikudaginn þegar svoleiðis fundur verður haldinn í Borgaskóla kl. 17:30. Ég missti af fundinum í Korpuskóla, hann var sl. miðvikudag.

8. október 2009

Ný lopapeysa

Ég kláraði þessa peysu á Ólöfu um síðustu helgi og setti rennilásinn í á mánudaginn. Þann dag fékk ég líka sterakrem við exeminu sem ég fæ alltaf í kringum augun þegar ég prjóna úr lopa og er öll skrárri. Nú er ég búin að fitja upp í peysu á mig en svo lofaði ég lækninum að hætta að prjóna úr lopa þegar hún væri búin. Það er óþolandi að vera með ofnæmi fyrir einhverju sem maður hefur gaman af að gera.
Related Posts with Thumbnails