25. júlí 2010

Myndataka

Við fórum yfir heiðina í gær að heimsækja sætu fjölskylduna og taka 10 mánaða myndir af Bjarna. Þau eru að endurnýja þakkantinn hjá sér þannig að Siggi hjálpaði Davíð að rífa gamla kantinn niður. Ólöf skemmti sér konunglega á trampolíninu með Birtu og svo kom Birta með okkur í bæinn og gisti. Það gekk bara mjög vel og þær fengu að horfa á mynd inni í herberginu hennar Ólafar og fóru soldið seint að sofa, hehehe

24. júlí 2010

hvolpur í heimsókn

Vinkona Ólafar kom í heimsókn í dag með litla hvolpinn sinn hann Krumma. Krummi er Cavalier eins og Tinni og er bara 8 vikna gamall, pínulítill og valtur á fótunum og var orðinn voða þreyttur í heimsókninni og sofnaði oft.

23. júlí 2010

Ferðasaga - seinni hluti

Á sunnudeginum fórum við stelpurnar (Guðný og Lilja voru heima því Lilja þurfti að leggja sig) inn í sveit til Karenar, það var gaman að sjá sveitina hennar og stelpurnar duttu strax inn í leik og vildu varla fara aftur til baka. Karen benti mér á að passa að Tinni og minnkahundarnir hennar þrír hittust ekki því þeir myndu éta hann í orðins fyllstu merkingu. Hundarnir hennar voru því lokaðir inni þegar við komum en þegar við vorum að fara voru þeir komnir út þannig að Þórunn hélt á Tinna en það stoppaði samt ekki einn hundinn í að stökkva upp og glefsa í hausinn á honum. Það sluppu samt allir vel frá þessum hildarleik.

Þegar Lilja var vöknuð ákváðum við Guðný að fara og skoða Ytra-Lón, en þar er nýbúið að setja upp gistiaðstöðu og jafnframt var auglýst í bæklingnum um Káta daga að þar væri listasýning. Gunnar hafði farið með Konna og Jóhanni að skoða fuglabjörg út á Langanesi. Við lögðum af stað og keyrðum heillengi og vorum eiginlega komnar á þá skoðun að við værum villtar þegar afleggjarinn að Ytra-Lóni sást loksins. Í stuttu máli var þetta nú ekki ferð til fjár, vörusvik kom upp í hugann, því gistiaðstaðan sem var til sýnis var kuldaleg og listasýningin samanstóð af passamyndum af kindum og teikningum eftir börnin á bænum.

Seinni partinn fórum við í heimsókn til Stínu og Rabba og þar var ísbjörn í heimsókn, ekki alvöru ísbjörn heldur hundurinn hennar Kristínar Ýrar sem er grænlenskur sleðahundur, yndislega ljúfur og góður en feldurinn á honum var ævintýralega mikill og það snjóaði hárum af honum, sem gerði Stínu einstaklega glaða.

Um kvöldið vorum við boðin í mat til Erlu og Konna. Þau eru búin að taka húsið sitt í gegn og það var gaman að skoða hjá þeim, þau eru bæði svo smekkleg. Eftir matinn fórum við út á Langanes aftur og nú hafði Karen meðferðis lykil að Sauðaneshúsinu sem er afar fallegt gamalt hús, eitt af elstu steinhúsum á norðurlandi, sem búið er að gera upp og setja upp sýningu á gömlum munum úr sveitinni. Við fórum líka í fjöruna við flugvöllinn, og skoðuðum gömlu brotlentu flugvélina.

Á mánudagsmorguninn þegar við vorum á leiðinni út úr þorpinu komum við við í Fánasmiðjunni og krakkarnir fengu að velja sér boli sem Erla og Karen skreyttu að þeirra óskum. Konni hafði bent okkur á kvöldið áður að fara Vopnafjarðarleiðina í gegnum Mývatm heim sem við gerðum og sáum sko ekki eftir því, bæði er vegurinn góður, eiginlega malbik alla leið, og svo er leiðin líka falleg. Við stoppuðum soldið á Akureyri og um kl. 5 héldum við mæðgur heim en Guðný og co ætluðu að gista nokkrar nætur í viðbót á Ólafsfirði. Heimferðin gekk vel og við vorum komnar heim um hálftíu og vorum þá búnar að vera á ferðalagi í 11 tíma.

Stelpurnar eru spenntar að fara aftur og ég býst við að við förum aftur næsta sumar og stoppum þá jafnvel lengur. Ég vildi samt að það væri hægt að komast á milli R og Þ á hraðvirkari hátt.

17. júlí 2010

Ferðasagan - fyrri hluti

Fyrsta ferðalag sumarsins byrjaði á miðvikudaginn en þá lögðum við mæðgur af stað á litla vörtusvíninu með hundinn með okkur. Guðný og co fóru líka með okkur á sínum bíl. Við tókum þessu rólega enda með bæði hvolp og smábarn með í för. Við lögðum af stað rúmlega ellefu um morguninn og ókum í Borgarnes en þá var Lilja orðin svöng og við fengum okkur nesti í Skallagrímsgarði. Næsta nestisstopp var á Blönduósi og við vorum komin til Akureyrar rúmlega sex. Þar hittum við Guðmund, Þuru og Emmu Kristínu og fengum okkur að borða á Bautanum með þeim. Eftir það var haldið til Ólafsfjarðar þar sem við mæðgur gistum hjá Ingu en Guðný og co gistu í íbúð vinar.

Daginn eftir lögðum við líka af stað um ellefu og héldum til Akureyrar þar sem við stelpurnar fórum í búðarrölt en strákarnir fóru í fótbolta og tóku Lilju með sér. Þegar við vorum að fá okkur Subway í grasinu fyrir aftan staðinn komu Hulda og Rannveig skyndilega gangandi með börnin sín, en þær voru búnar að vera á norðurlandi í nokkra daga. Við héldum svo af stað upp úr tvö í áttina að Þórshöfn og vorum búin að ákveða að fara Sléttuna vegna þess að Hólaheiðin sem átti að vera búið að opna var ekki opin. Við keyrðum auðvitað í gegnum Húsavík og mikið er það nú orðinn fallegur staður, búið að útbúa miðbæinn þannig að hann var mjög túristavænn. Myndin hér að ofan er tekin þar. Við ákváðum að stoppa aðeins bæði á Kópaskeri og Raufarhöfn og ég verð að segja að Þórshöfn er nú heimsborg miðað við þessi tvö þorp. En mikið óskaplega er nú þessi Slétta löng! Við vorum ekki komin til Þórshafnar fyrr um kl. 7 á fimmtudeginum. Þegar hér var komið höfðum við keyrt 820 km, mest í sól og góðu veðri. Við komum okkur svo fyrir í kjallaranum í Lyngholti og höfðum það kósí um kvöldið.

Á föstudeginum hittum við Stínu og Katrínu í Kaupfélaginu og hvöttum Katrínu til að taka þátt í "Ljósmyndamaraþoni Kátra daga og Canon 2010" sem ég, Guðný og Guðrún María tókum þátt í. Daginn eftir kom svo í ljós að af 10 keppendum hafði ég lent í 1. sæti og fékk Canon Ixus 105 í verðlaun, Katrín hafði lent í 2. sæti og fengið Canon fjölnota prentara í verðlaun og Guðrún María lenti í 3. sæti og fékk Canon ljósmyndaprentara í notkun. Umsjónarmaður maraþonsins var Kerly Ilves frá Eistlandi en hún var á Þórshöfn í hópi SEEDs-liða sem planta trjám og sinna fleiri verkefnum.

Nú þegar þetta er skrifað er Ólöf á balli í Félagsheimilinu Þórsveri, Þórunn er búin að mála sig og gera sig klára fyrir unglingaballið á eftir, og ég er búin að kaupa miða á fullorðinsballið sem byrjar um miðnætti.

So far hafa allir skemmt sér konunglega þrátt fyrir að það hafi byrjað að rigna á fimmtudagskvöldið og það rignir enn þrátt fyrir sólarspá fyrir daginn í dag. En eins og Guðný segir, það hefur enginn dáið úr rigningu ennþá en maður getur fengið húðkrabbamein af sólinni. Svo við erum sátt. Tinni hefur verið með okkur í þessu öllu og staðið sig vel.

13. júlí 2010

Hellisgerði í Hafnarfirði

Fyrsta formlega lautarferð sumarsins var í gær. Við fórum (að vísu án Þuru og Emmu) til Hafnarfjarðar og gengum aðeins um miðbæinn og gömlu göturnar þar fyrir ofan og slefuðum yfir fallegu húsunum þar. Ég er búin að finna draumahúsið, það stendur við Austurgötu 37 og er guðdómlega fallegt að utan og örugglega ekki síðra að innan. Þegar slefrúntinum var lokið héldum við að Hellisgerði sem er ævintýralegur garður. Þar tókum við upp nesti og höfðum það huggulegt.
Við fórum á svefntímanum hennar Lilju og hún átti að sofa á meðan við gengum um bæinn, en sú stutta ætlaði sko ekki að missa af neinu og vakti allan tímann og naut þess í botn að vera með okkur, rölta um bæinn og garðinn, fá sér af girnilegu nestinu og njóta lífsins.
Smá uppstilling hjá sætu systrunum.
og svo líka hjá frænkunum fallegu. Við fengum yndislegt veður í þessari ferð og lautarferðir eru svo sannarlega mál málanna núna. Það þarf ekki að fara langt eða kosta mikið til að njóta lífsins í góðum félagsskap.

10. júlí 2010

Lautarferð á pallinum

Fyrsta lautarferð sumarsins var haldin á pallinum hér heima í gær. Þórunn kom með tvær vinkonur sínar, ég bauð mömmu, Ólöf kom með tvær vinkonur sínar og Anna og Gísli kíktu við. Þórunn hafði pantað regnbogaköku og ég tók pizzuslaufur úr frystinum. Allt voða huggulegt í góða veðrinu. Við ætlum síðan að reyna að fara næstu lautarferð til Hafnarfjarðar í byrjun vikunnar.
Alltaf gaman að ná fólki þegar það er að borða, hehehe
Tinni varð 5 mánaða í vikunni og af því tilefni vorum við Þórunn með smá myndatöku af kappanum. Við erum búin að fara 7 sinnum á hvolpanámskeiðið og Tinni stendur sig afskaplega vel. Hann ætlar að verða hinn ljúfasti hundur. Ég lenti nú í smá klípu í síðustu viku þegar ég tók að mér að passa pug fyrir frænku hans Sigga. Þeim kom ekki vel saman, vægt til orða tekið, reyndu stanslaust að nauðga hvor öðrum og puginn hafði ekki fætur heldur gorma og fínu girðingarnar okkar voru engin fyrirstaða. Hann strauk tvisvar og það var eins og ég væri að passa ungabörn, ég gat ekki litið af þeim eitt augnablik, úff þetta var ekki mjög skemmtilegt.
Related Posts with Thumbnails