Páskafríið langþráða er loksins komið og helgin hefur farið í að passa ömmulingana mína. Bj. var hjá okkur frá föstudegi, tveggja ára orkubolti og Bi. kom í gær. Sæta spætan hefur verið að framleiða hringtrefla, hún er búin að prjóna einn fyrir sig og einn fyrir frænku sína. Það er einn enn á prjónunum handa heimasætunni.
Nú eru aðeins tæpir 78 dagar í ferðina mína góðu til Toscana á Ítalíu. Þetta er um 20 manna hópur sem er að fara og ég þekki eina í viðbót við ferðafélaga minn. Ég veit að við eigum eftir að hafa það hrikalega huggulegt þarna og njóta lífsins í botn. Mér finnst matreiðsluhlutinn ekki síðri en smyrslahlutinn. Ég er byrjuð að æfa fyrir göngurnar með því að fara út að hlaupa, búin að fara tvisvar. Ég ætla að reyna að fara a.m.k. þrisvar í viku.
Það er bara mánuður eftir af margmiðlunarnámi mínu, ég vona að ég nái að vinna vel í verkefnunum mínum um páskana, ég verð! ef þetta á að nást. Svo eru tvær vikur eftir af frönskunámskeiðinu mínu. Mér á örugglega eftir að finnast ég vera komin í frí í maí þegar þessu námi er öllu lokið. Það er nú eiginlega nóg að vera bara að vinna en ég læt mig hafa það fyrst þetta er ekki lengri tími en þetta.
Grænn apríl hófst í dag og earth day var í gærkvöldi. Ég gleymdi nú að slökkva ljósin kl. 20:30 en ég fór mínar venjulegu 3-4 ferðir um húsið til að slökkva ljós eftir heimilismenn. Þetta geri ég á hverju kvöldi og vona í hvert skipti að einhver taki hintinu en ekkert gerist, þannig að ég held áfram að rölta á kvöldin ;-)
Sýnir færslur með efnisorðinu Umhverfismál. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Umhverfismál. Sýna allar færslur
1. apríl 2012
Páskafríið loksins komið
Merkimiðar:
ferðalög,
Fjölskyldan,
Handavinna,
Hreyfing,
prjón,
Umhverfismál
6. mars 2011
Bolludagur
Hr. Galinn keypti bollur alveg sjálfur í gær og við borðuðum þær með bestu lyst, en svo bakaði ég tvær uppskriftir af vatnsdeigsbollum í morgun sem heppnuðust svona líka ljómandi vel og brögðuðust eftir því. Hér eru því til bollur fyrir morgundaginn en ég geri ráð fyrir að allir heimilismenn vilji taka með sér í nesti. Snilldardagur þessi bolludagur, sérstaklega að hafa hann á mánudegi því þá fylgir sunnudagurinn alltaf með.
Þessi er með heitri karamellusósu inní ásamt rjóma og svo er brætt suðusúkkulaði ofan á. Gerist ekki mikið ljúffengara á þessum árstíma. Ég held bara að vorið sé að nálgast, eins dásamlegt og það er, ég sé brumið á runnunum mínum gægjast fram, finn vorilminn í lofti svona rétt á meðan ekki er stórhríð. En ég veit fyrir víst að snjór í mars endist aldrei lengi.
Peysan mín fallega sem ég byrjaði á í febrúar er á góðri leið, komin upp að höndum á búknum, önnur ermin klár og hin ermin örfáa sentimetra frá því að vera tilbúin líka. Svo fer að líða að SPK ferðinni, ég er búin að ákveða hvað ég ætla að kenna þeim (það er meira að segja umhverfisvænt og fallegt) en við ákváðum að fyrst við erum nú allar í kennslugeiranum þá væri tilvalið að hver og ein væri með stutta lexíu í einhverju skemmtilegu. Ohhh hvað ég er orðin spennt, búin að fá pössun fyrir börn og hund og alles.

Bakstur,
Handavinna,
Heimilið,
Umhverfismál,
Vinnan
2. febrúar 2011
Kostnaður við myndavegg
Myndaveggurinn minn var nú ekki dýr framkvæmd.
Hundkvikyndið á afmæli næsta mánudag, orðinn eins árs kappinn.
- 2 dósir litaprufa stofn1-5362 kr. 762 (Grágræni liturinn á vegginn)
- Málningalímband 36mm breitt kr. 1000 (extra breitt til að afmarka ferhyrninginn)
- Límtré fura 30x120cm, rist eftir endilöngu og límt saman kr. 2975 (hillan fyrir ofan ofninn)
- Hilluvinklar 4 stk á kr. 153. Samtals kr. 612 (það var líka hægt að fá næstum eins vinkla fyrir 980 kr stk. Borgar sig að skoða vel í hillurnar)
- Spreybrúsi með hvítri málningu fyrir ramma kr. 1222
- Fann prufudós síðan 2003 inni í skáp með antikhvítu sem ég notaði líka á rammana.
- 3 stk myndakarton fyrir stóru rammana kr. 3620
- Samtals fyrir "project restyle" kr. 10.191
Hundkvikyndið á afmæli næsta mánudag, orðinn eins árs kappinn.
kl.
22:58
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Afmæli,
hagsýni,
Heimilið,
project restyle,
Umhverfismál
15. nóvember 2010
Ljúfur laugardagur
Dekurdagur fyrir mig á laugardaginn! Jú jú það gerðist, byrjaði daginn á prjónakaffi í Nálinni - skemmtilegur félagsskapur kátra myndarlegra kvenna, fór síðan í bæinn - var að leita að jólagjöfum fyrir dæturnar fyrir tengdó, endaði síðan daginn á skemmtilegri myndlistarsýningu í Hafnarhúsinu en þar var verið að opna sýningu á verkum barna í 7. og 8. bekk í anda Errós. Skemmst er frá því að segja að tveir nemendur í skólanum mínum gerðu það gott á þessari sýningu, svo flottir nemendur í skólanum mínum og ekki síðri kennarar.
Ég lagði litla vörtusvíninu við Ráðhúsið og stillti bílastæðaklukkuna (því ég er á svo umhverfisvænum bíl) og þegar ég kom til baka hafði annar trítill troðið sér í sama stæði - bílastæðavandi miðborgarinnar hvað!!!
Um kvöldið eldaði svo herra Galinn frábæran kvöldverð, humarsúpu og silung í forrétt og fiskrétt í ofni í aðalrétt, mmmm dásamlega gott. Kvöldinu var síðan eytt með fjölskyldunni fyrir framan sjónvarpið við misgóða dagskrá RÚV.

19:54
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Akstur,
Fjölskyldan,
Umhverfismál,
Vinnan
3. október 2010
Róleg og góð helgi
Við Ólöf vorum einar heima um helgina, Þórunn fór í Vatnaskóg og Siggi fór norður á Ólafsfjörð. Við höfðum það huggulegt á föstudagskvöldið, sátum og horfðum á sjónvarpið, borðuðum snakk og súkkulaði og Ólöf heklaði þar til hún sofnaði.
Á laugardaginn var nóg að gera hjá okkur, fimleikaæfing, prjónakaffi, aukatími í Borgó, gengið til góðs fyrir Rauða krossinn og svo matarboð hjá Guðnýju og co, Ólöf gisti svo þar á meðan ég fór í flott afmæli til Ingu um kvöldið. Tinni var líka mjög upptekinn við að snyrta rúmið sitt.
Hann er auðvitað svo krúttlegur þessi elska að maður verður að fyrirgefa honum svona vitleysu.
Mér finnst svo frábært að nú er ég búin að finna Envirosax innkaupapokana til sölu hér á Íslandi en www.disir.is selja þessa frábæru poka. Ég keypti tvo venjulega innkaupapoka í sumar frá Danmörku og er búin að nota þá mjög mikið, þeir eru einstaklega rúmgóðir, léttir og sterkir. Um daginn keypti ég svo tvo í viðbót frá Dísum. Pakkinn kom heim og ég opnaði spennt, en varð fljótlega pirruð því aðeins einn poki var í pakkanum, ef klukkan hefði ekki verið orðin svona margt hefði ég hringt til þeirra og hundskammað konuna. Seinna um kvöldið var Ólöf eitthvað að kíkja undir sófa og þar fann hún hinn pakkann, eitt hornið nagað, og þá vissum við af hverju ég hafði ekki fundið hann. Tinni hafði sem sagt verið á undan mér að ná honum og ákveðið að skoða hann nánar. Sem betur fer át hann bara pappírinn og pokinn var alveg heill

Hundahald,
Krúttlegt,
Umhverfismál
25. september 2010
Flokkum og skilum
Ég hef ætlað lengi að nýta mér ráð sem ég fann á einhverri umhverfisblogsíðunni fyrir svolítlu síðan, en það er að hafa flokkunarruslaföturnar aðgengilegri en almenna sorpið. Myndin hér fyrir ofan er semsagt af ruslaskápnum okkar eins og hann hefur verið sl. 13 ár. Heimilisfólkið var orðið heldur latt að fara með plast og pappír inn í bílskúr þannig að ég fór í IKEA og keypti þrjár ruslafötur sem smellpassa inn í skápinn, ég var auðvitað búin að mæla þetta allt út og nú er engin afsökun fyrir að flokka ekki. Ég á samt ennþá eftir að finna lausn fyrir járn og ál sem fellur til í eldhúsinu eins og niðursuðudósir og sprittkertaálið.
Svo fínt í ruslaskápnum núna að það hálfa væri yfirdrifið ;-)
Svo fínt í ruslaskápnum núna að það hálfa væri yfirdrifið ;-)
Merkimiðar:
hagsýni,
Heimilið,
Umhverfismál
12. júní 2010
Frú Galin er græn eða allavega ljósgræn
Kíkið á flipann hér að ofan "Frú Galin er græn". Var að bæta við löngum lista sem ég fann á einni af mörgum bloggsíðum sem ég hef verið að skoða undanfarið. Ég reyndi að þýða og staðfæra eins og hægt var, sleppti tveimur atriðum sem áttu ekki við Ísland.
Merkimiðar:
hagsýni,
Heimilið,
Umhverfismál
14. ágúst 2009
10. ágúst 2009
Hagsýna húsmóðirin
Ég er búin að vera að lesa blogsíður síðustu daga. Ég hef verið að kynna mér lífsstíl sem kallast frugality, það þýðir að láta sér nægja lítið, eyða litlu, nýta vel það sem maður á og ekki síst að henda ekki verðmætum eins og mat.
Hér er smá kynning á þessu frá konu í Frakklandi.
Svo eru hér nokkrar blogsíður sem ég hef lesið:
Frugal girl, My year without spending og Frugal chick.
Hér er myndband um neyslusamfélagið eins og það er núna og hvernig það þróaðist frá ca.1950.
The story of stuff
Ég er alveg til í að einfalda líf mitt og spara fé í leiðinni, en það er fín lína á milli þess að vera hagsýnn eða nískur. Hagsýni er góð en níska er ekki góð. Mér líst best á hugtakið frugalista en það þýðir að vera meðvitaður neytandi, spara á sviðum sem skipta mann litlu máli (eins og að venja sig á að slökkva ljós þar sem enginn er) en velja svo vel það sem maður vill eyða í.
Ég hef aldrei þolað að henda mat, og þeir sem hugsa frugal eru líka á móti því. Matarkostnaður er stærsti útgjaldaliðurinn á þessu heimili og því auðveldast að leita leiða þar til að lækka kostnað.

19. júlí 2009
Endurvinnsludagur í gær
Ég sló grasið í gær. Takið eftir rósarunnanum mínum við fjarendann á girðingunni.
Fór síðan í Sorpu með:- gras
- dagblöð
- plast
- sléttan pappa
- og bylgjupappa
Svona erum við umhverfisvæn á þessu heimili. Við söfnum líka gleri, rafhlöðum og einnota drykkjarumbúðum. Það var bara ekki kominn tími á að fara með það í gær.

Þetta er rós úr runnanum mínum :-)
Húsmæðraorlofið endaði með hvelli í gær, en þá kom liðið mitt heim frá Ólafsfirði. Það var nú gott að fá þau heim, þó húsmæðraorlofið hafi verið ósköp indælt. Ólöf fór beint til mömmu og gisti þar en Þórunn fékk S vinkonu sína í gistingu til okkar. Þær voru nú svo "elskulegar" að stinga af út um miðnætti með stæl eða með öðrum orðum út um gluggann og komu svo heim aftur um hálftvö. Ég gómaði þær þegar þær skriðu inn um gluggann aftur og þær voru heldur lúpulegar í dag, hehehe.
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
Umhverfismál
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)