Við lögðum land undir fót í dag og tókum meira að segja gesti með okkur. Við fórum fjögur og svo stóru börnin hennar Guðnýjar systur á jeppanum yfir Hellisheiðina. Ég var nú svolítið stressuð yfir þessu ferðalagi enda með eindæmum veðurhrædd þegar kemur að hættulegum fjallvegum. Ég útbjó okkur með nesti, hlífðarföt og teppi og sængur ef við skildum þurfa að bíða eftir björgun í köldum bíl! Þetta fór nú allt vel og við komumst heilu og höldnu báðar leiðir. Við gerðum meira að segja góðverk á leiðinni heim, kipptum í lítinn fólksbíl sem var fastur í skafli.
Ástæða ferðarinnar var annars vegar að skoða hvolpinn okkar hann Avatar á Selfossi og hins vegar að heimsækja Söndru mína og taka 5 mánaða myndir af krúttmolanum honum Bjarna Marel. Smá sýnishorn:Þeir eru auðvitað báðir algjört æði þessir litlu strákar.









