
Ég var að spá í að blogga um lengingu kennaranáms, en svo er ég eiginlega hætt við það því þegar ég byrjaði í Kennó 1991 áttum við að vera fyrsti árgangurinn sem færi í gegnum 4 ára nám. Það var sem sagt hætt við það um áramót 1991-2 vegna fjárskorts. Ég get ekki ímyndað mér annað en þessi saga verði eins núna, þannig að ég nenni ekki að eyða orðum í hana.
Jólastemningin er að komast á fullt skrið. Ég og Ólöf kláruðum jólakortin í gærkvöldi. Það er allt að verða tilbúið til að prenta dagatölin, búin að skipta um blek í prentaranum og fá mér pappír.
Siggi setti upp útiseríurnar um síðustu helgi og ég þarf að finna jólasveininn sem passar útidyrnar.
Ég var að reyna að hlaða niður svona "actions í Photoshop" eins og Ásta gerir. Ég fann nú eitthvað til að hlaða niður, en hvað svo .... kann ekki að setja þetta upp. Hjálp! Ásta viltu skipta á einstaklega fallegri og unglegri gínu og hjálp í photoshop?
Ég reyndi að setja svona jólaútlit á síðuna eins og Elín er með, en það er ekki boðið upp á það, fúlt. En ég set bara jólamyndir í bloggið í staðinn ;-)
Til hamingju með afmælið pabbi minn.
