28. júní 2008

Dreifnám fyrir fólk með myndlistargrunn

Ó já, ég fékk bréf frá Borgó í gær. Umsóknin mín var samþykkt og ég fæ stundatöflu í byrjun ágúst. Nú er bara að ákveða hvort ég á að taka þetta á tveimur eða þremur árum. Kíkið hér og segið mér.

25. júní 2008

Brjálað að gera í sumarfríinu

Búin að vera í fríi í tvær vikur og leiðist sko ekki. Búið að vera nóg að gera og dásamlegt veður. Við Guðný erum búnar að bíða í marga daga eftir rigningardegi til að geta saumað úr efninu sem við keyptum okkur í síðustu viku. Í dag gátum við ekki beðið lengur og ég fór til hennar og saumaði mér kjól á mettíma í overlock vélinni hjá henni, ég á bara eftir að setja rennilás í hliðina svo ég geti komist í hann og þá er hann tilbúin. Þetta var svo auðvelt að mig langar í meira efni og sauma eitthvað fleira.

Ólafar herbergi er tilbúið og ég er næstum búin að ganga frá öllu í vinnuherberginu. Það kom nú ýmislegt í ljós í flutningunum og ég er að spá í að ráðast í að klára nokkur, hmmm, ókláruð verkefni sem ég fann.

Fór í sund í gær og hitti stelpurnar úr vinnunni. Frábært að hitta þær, svo skemmtilegar allar.

Næsti hittingur er fimmtudaginn 3. júlí á Kaffi Flóru í Grasagarðinum. Ólöf verður meira að segja á námskeiði í næstu viku þannig að ég kemst barnlaus, það er nú alltaf ljúft.

23. júní 2008

Flutningar - dagur 4

Við tókum því nú bara rólega í gær í þessu flutningastandi, Sigga var orðið illt í veiku höndinni þannig að ég var bara smá að færa til hluti og svona og náði að tæma tilvonandi Ólafar herbergi alveg. En í morgun byrjuðum við aftur, Siggi málaði eina umferð yfir stóru veggina, ég þreif gluggann og skúraði og bónaði gólfið. Síðan fórum við í skólagarðana að vökva.
Síðan var byrjað á fullu að raða inn í herbergið. Ólöf vildi hafa autt veggpláss, handstöðuvegg, en því miður var það ekki hægt, hún verður bara að halda áfram að standa á höndum upp við útihurðina.

Nú er soldið eftir af dóti sem á eftir að raða í vinnuherberginu, vonandi hef ég kraft til þess á morgun, langar samt meira að fara í sólbað eða byrja að sauma kjólinn sem ég er búin að sníða.

21. júní 2008

Flutningar - dagur 2

Jæja þá er dagur 2 í flutningunum liðinn. Í dag hefur heilmikið gerst, Siggi er búinn að fjölga tenglum í nýja vinnuherberginu svo um munar, bætti við 9 tenglum og færði símadósina. Okkur vantar bara einn þrefaldan ramma utan um tenglana og þá er rafmagnsvinnan búin. Seinni partinn byrjaði ég svo að flytja inn í herbergið.

Svona lítur stofan okkar út núna. Ólöf er sofandi þarna í rúminu í miðri hrúgunni. Það sést meira að segja ekki allt því öll fötin hennar eru í sófanum sem sést ekki vinstra megin.

Vinnuherbergið sem er tilvonandi herbergi Ólafar er næstum orðið tómt.









Nýja vinnuherbergið er farið að taka á sig mynd. Ég er að reyna að hafa það aðeins krúttlegra en það gamla. Veit ekki hvort það tekst því það er ennþá hellingur eftir af dóti sem ég veit ekki alveg hvað ég á að gera við. Sennilega er besta lausnin að kaupa krúttlega kassa sem passa á efstu hilluna og koma því þannig fyrir.

20. júní 2008

Flutningar

Nei við erum ekki að flytja, en í dag byrjuðum við á því að færa Ólöfu yfir í vinnuherbergið og vinnuherbergið yfir í Ólafar herbergi. Hljómar einfalt en þeir sem hafa komið inn í vinnuherbergið vita að þetta er allt annað en einfalt og fljótlegt. Við erum búin að tæma Ólafar herbergi og flytja hana inn í stofu. Nú er Siggi að fjölga tenglum þar inni og þegar það er búið er hægt að byrja að flytja allt draslið yfir, ég ætla nú samt að vera dugleg að henda. Úff hvað ég er mikill draslsafnari!!!

19. júní 2008

Skjótið björninn og málið er dautt

Hvað er þetta með ísbirni og Íslendinga. Halda menn að þetta séu einhver gæludýr? Ég segi enn og aftur, ef það kemur annar björn á að skjóta hann strax og málið er dautt.

14. júní 2008

Ww knit in public day

World wide knit in public day var haldinn hátíðlegur í Hallargarðinum í rjómablíðu í dag. Sennilega hafa verið um 50-60 manns þarna að njóta útiveru, spjalla og prjóna.
Bleiku kökurnar mínar runnu út eins og heitar lummur.



Þetta eru húfurnar sem ég er búin að vera að gera undanfarna daga. Mjög einfaldar og krúttlegar. Ég keypti 3 dokkur á útsölu í Storkinum og mér sýnist að ég nái að gera 3 húfur úr þeim.

8. júní 2008

Óvissuferð

Við hjónin fórum í stórkostlega skemmtilega óvissuferð með vinnunni minni á föstudaginn. Við byrjuðum upp í Mosó í gróðrastöðinni Dalsgerði. Þar átti eigandinn að hitta okkur og sýna okkur rósaræktunina sína, en hann gleymdi okkur þannig að við æddum þarna um allt leiðsagnarlaus. Eftir það var farið að Reynisvatni, þar sem nefndin setti okkur í ratleik um nágrennið og á meðan byrjaði nefndin að grilla ofan í okkur. Ratleikurinn gekk vel, fyrir utan það að blái hópurinn var með hryðjuverkastarfsemi! Ég tók myndavélina með og tók fullt af skemmtilegum myndum, sumar eru ekki birtingarhæfar svona á netinu en hér koma nokkrar.



Appelsínugula liðið, það er augljóst að við erum appelsínugul!


Svilarnir lentu í sama liði.

Bleikir eru beautiful ...

Nefndin góða sem stóð sig frábærlega.

Ég var alveg komin með gubbuna upp í háls út af þessu starfi mínu í síðustu viku og var eiginlega búin að ákveða að segja upp, en núna eftir þessa ferð er ég á báðum áttum, ég tími ekki að sleppa þessum frábæru vinnufélögum þannig að það er spurning um að þrauka einn vetur enn. Þá verð ég líka búin með íslenskunámið og búin með einn vetur í margmiðlunarnáminu. Ég er samt svo óánægð með að það sé ekki hægt að bjóða mér einn vetur án umsjónarbekks, það var nefnilega ráðinn nýr kennari um daginn við skólann, samfélagsfræðikennari og hann vildi ekki umsjón og það var samþykkt! Þetta finnst mér mjög skítt af stjórn skólans því þetta er annað árið í röð sem ég vil ekki umsjón en það er gengið fram hjá mér.

Jæja en góðu fréttirnar eru þær að ég á bara eftir að vinna 2 daga og svo er ég komin í sumarfrí.

3. júní 2008

agi - agaleysi

Ég bauðst til að hjálpa til á fimleikasýningu hjá Fjölni í dag, Ólöf var að sýna. Þegar gestum var hleypt í salinn var einn strákur (9-10 ára) sem hengdi sig á handriðið og ég sagði honum að setjast, eftir augnablik var hann svo aftur sestur á handriðið, þannig að ég gekk að honum og sagði ákveðið (án nokkurs æsings) fáðu þér sæti, nú hef ég sagt þér þetta tvisvar og nú skaltu hlíða. Nema hvað við hliðína á stráknum krýpur ein mamma með tvö lítil börn sem eru svona við það að klifra á handriðinu, henni mislíkaði greinilega það sem ég sagði og hún sendi mér manndrápsaugnatillit, en færði sig samt ekki í sæti! Ég starði auðvitað bara á móti og hélt mínu striki.

Svo er fólk að tala um agaleysi í skólum landsins, þarna voru bara börn með foreldrum sínum. Á ekki ögunin að byrja heima?

1. júní 2008

Skjálfti

Við vorum heima og úti á palli á fimmtudaginn þegar jarðskjálftinn var. Ég sat á stól, Siggi og Þórunn stóðu og Ólöf var í rólunni. Ólöf fann ekki fyrir neinu og sagði við pabba sinn: pabbi ert þú ekki bara orðinn svona mikill hlunkur?

Við fórum í heimsókn til Söndru í Hveragerði. Það var töluvert um skemmdir hjá henni, aðallega þó á lausamunum, leirtaui og svoleiðis. Sem betur fór skemmdist húsið hennar ekki. Þau voru enn að taka til og meta skemmdir inni hjá sér. Gangi ykkur vel.

Laugardaginn 14. júní kl. 14 verður alþjóðlegur prjónadagur, "Knit in public", haldinn hér á landi í fyrsta sinn. Ákveðið hefur verið að safnast saman í Hallargarðinum við Fríkirkjuveg og prjóna á túninu. Í tilefni af þessu keypti ég mér garn í húfu fyrir Ólöfu. Við systur ætlum að sjálfsögðu að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni.


Related Posts with Thumbnails