Sýnir færslur með efnisorðinu Tölvumál. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Tölvumál. Sýna allar færslur

12. júlí 2011

handavinna síðustu vikna

Þetta eru dósir undan ananas sem ég opna með Tupperware dósaopnaranum mínum þannig að engar skarpar brúnir myndast. Síðan geri ég einhverja sæta miða í Photoshop, prenta út og lími á dósirnar. Þessar ætla ég að nota á kennaraborðið mitt næsta vetur. Ég ætla líka að gera háar fyrir blýanta, tréliti og penna.

Þessa hugmynd fékk ég einhvers staðar á Pinterest fyrir nokkrum vikum og svo gerjaðist hún í kollinum á mér þangað til ég framkvæmdi hana fyrir nokkrum dögum. Þessi poki geymir Bamboo teikniborðið mitt og ég er að spá í að gera annan fljótlega. Mig langaði nefnilega að gera einn með eiturgrænu fóðri en það var ekki til þegar ég keypti þetta.
Svo kláraði ég þetta nálaveski nýlega en ég byrjaði á því fyrir svona 2-3 árum (eða kannski er lengra síðan). Það tók nú ekki nema svona 2-3 klukkutíma að klára útsauminn sem ég átti eftir og setja það saman. Furðulegt hvað maður frestar hlutum sem tekur enga stund að klára.

Græna púðaborðið prjónaði ég fyrr í vetur, sennilega í kringum áramótin og var aldrei búin að setja bak og fyllingu. Kom mér loksins í það eitt kvöldið, tók svona 30-40 mínútur. Stóri púðinn er líka eitt verkefni sem ég ákvað að framkvæma í maí, keypti allt í þetta, fyllinguna og efnið utan um en svo lá þetta bara í stól í holinu þar til eitt kvöld seinnipart júní. Þá tók ég af skarið saumaði utan um púðana (þeir eru tveir). Þetta tók svona klukkutíma í mesta lagi.
Það sést að hér er að myndast mynstur ... ég er að vinna að svona mission impossible, þ.e. að klára allt þetta hálfkláraða sem ég á. Næsta verkefni (og ég er byrjuð!!!) er að sauma bak á bútasaumsframhlið sem ég gerði sennilega árið 2002 eða 2003. Ég er búin að sníða næstum allt efnið í bakið og er að þróa hvernig það á að líta út í huganum. Markmiðið er að reyna að nota bara það sem ég á (eða systir mín) til að klára, kaupa ekkert í viðbót. Ég á nefnilega mjög mikið af efnum í kössum sem taka mikið pláss, ég væri nú alveg til að rýmka aðeins til í saumaherberginu (sem er líka tölvuherbergi/geymsla/föndurherbergi og almennur ruslahaugur).

29. nóvember 2010

Jólaverkin

Nú er ég að byrja á dagatölunum sem ég geri alltaf fyrir hver jól. Ég er búin að nota Publisher í þetta verkefni nú í nokkur ár, en publisher er einfalt og fljótlegt í svona vinnslu og maður getur breytt öllu sem maður vill breyta. Ég hugsa að ég noti prentþjónustuna hjá jola.is en þar pantaði ég jólakortin eftir vandlega verðathugun á netinu. Kortin komu í dag og ég er bara mjög ánægð með þau, fallegur frágangur og góð litvinnsla.

2. maí 2010

Í matinn er þetta helst

Frú Galin vill helst af öllu gera matseðil og versla bara einu sinni eða tvisvar í viku. Það er nú erfiðara en það virðist. Í morgun fékk ég kast og bjó til þessa krúttlegu matseðla sem passa á A4 blað. Skrautið er frá Shabby Princess, síða sem er afskaplega flott og fullt af fríu niðurhali til að leika sér með.
Ef ég gef mér tíma til að útbúa matseðilinn sparar það ekki bara peninga í hverri viku heldur líka tíma og pirring yfir því hvað á að vera í matinn. Vildi samt að hinir í fjölskyldunni væru duglegri að koma með hugmyndir, en það kemur kannski með tíð og tíma.

ps. hægri smella á myndina og velja "save picture as", þá getur þú líka gert matseðil.

26. júlí 2009

Ný Photoshop þekking

Í dag lærði ég að nota clipping mask í Photoshop, það er einfaldara en ég hélt og ég sé nú þegar ótal möguleika í notkun. Þetta storyboard er frá coffeeshop (tengill hér hægra megin), litlu rammarnir koma tilbúnir og maður setur inn í þá með clipping mask.
Myndin er af sólblómum á pallinum hjá mér. Ég keypti fræ í vor og sáði fyrir þeim í eldhúsglugganum hjá mér, flutti þau svo út þegar fór að hlýna og nú eru þau að blómstra. Í pottinum eru 6 plöntur og það eru nokkrir knúppar á hverri plöntu. Þetta er eitthvað baby afbrigði af sólblómum þannig að þau verða ekki nema um hálfur metri á hæð eða minni.

17. júní 2009

ljósmyndastúdíóið í E..skóla

Ég tók mig til síðasta vinnudaginn og tók til í ljósmyndstúdíóinu sem er beint á móti stofunni minni. Það er skemmst frá því að segja að herbergið stækkaði um helming þegar búið var að sópa gólf, henda drasli, ganga frá dóti og þrífa hillur. Nú vantar bara gott nafn á aðstöðuna og mig langar að hanna logo.
Hér eru 4 hugmyndir til að byrja með - ég hef kallað þessa aðstöðu Studio E hingað til en allar tillögur eru vel þegnar.

14. september 2008

Skemmtileg verkefni

Var að vinna í gær og í kvöld að verkefnum í BHS. Hér eru tvær myndir sem ég á að skila í næstu viku í MHL kúrsinum mínum. Við erum að byrja í myndvinnslu. Þetta er rosa skemmtilegt og ég vona að ég læri alveg helling.

4. september 2008

Hundraðasti spítukallinn

Jæja þetta er víst færsla númer 100.
Ég er búin að vera í bölvuðu basli með fartölvuna mína, í byrjun síðustu viku bilaði hún og ég fór með hana í viðgerð í EJS, viku seinna hringdi ég og spurði hvort þetta væri ekki að koma. Þá var mér sagt að þeir væru ekki byrjaðir að kíkja á hana, klukkutíma seinna hringdi viðgerðarmaður og sagði mér að harði diskurinn væri ónýtur og samkvæmt ábyrgðinni ætti ég að fá nýjan. Hann spurði líka hvort ég vildi láta bjarga gögnunum mínum. Auðvitað vildi ég það. Á þriðjudaginn var hún svo tilbúin og maðurinn sagði að reikningurinn fyrir gagnabjörguninni væri 15000 kr. Þá hringdi ég í tryggingafélagið sem ég keypti kaskótrygginguna hjá (Elko). Af því að ég vildi að þeir greiddu reikninginn því ef diskurinn hefði ekki verið gallaður hefði ég ekki þurft gagnabjörgun. En það gekk víst ekki og ég borgaði reikninginn.

Þetta er samt ekki það versta, því í öllum þessum hamagangi þurfti auðvitað að strauja vélina og þar með vantar mig allan Adobe pakkann. Tölvuvinur minn lenti í svipuðum hremmingum og diskurinn hans sem geymdi Adobe hrundi, því getur hann ekki hjálpað mér í þetta sinn. Ég er búin að vera að lesa mér til á Torrent síðunni thepiratebay en er orðin alveg rugluð. Þannig að nú er ég alveg ráðalaus, ef einhver getur gefið mér eintak væri það vel þegið.

21. júlí 2008

Hvað er þetta ...

... með póstinn hjá Menntasviði, tölvupósturinn er búinn að vera bilaður meira og minna í heila viku. Ef þetta heldur svona áfram verður maður bara að fá sér pósthólf einhvers staðar annars staðar.
Related Posts with Thumbnails