Jæja þetta er víst færsla númer 100.
Ég er búin að vera í bölvuðu basli með fartölvuna mína, í byrjun síðustu viku bilaði hún og ég fór með hana í viðgerð í EJS, viku seinna hringdi ég og spurði hvort þetta væri ekki að koma. Þá var mér sagt að þeir væru ekki byrjaðir að kíkja á hana, klukkutíma seinna hringdi viðgerðarmaður og sagði mér að harði diskurinn væri ónýtur og samkvæmt ábyrgðinni ætti ég að fá nýjan. Hann spurði líka hvort ég vildi láta bjarga gögnunum mínum. Auðvitað vildi ég það. Á þriðjudaginn var hún svo tilbúin og maðurinn sagði að reikningurinn fyrir gagnabjörguninni væri 15000 kr. Þá hringdi ég í tryggingafélagið sem ég keypti kaskótrygginguna hjá (Elko). Af því að ég vildi að þeir greiddu reikninginn því ef diskurinn hefði ekki verið gallaður hefði ég ekki þurft gagnabjörgun. En það gekk víst ekki og ég borgaði reikninginn.
Þetta er samt ekki það versta, því í öllum þessum hamagangi þurfti auðvitað að strauja vélina og þar með vantar mig allan Adobe pakkann. Tölvuvinur minn lenti í svipuðum hremmingum og diskurinn hans sem geymdi Adobe hrundi, því getur hann ekki hjálpað mér í þetta sinn. Ég er búin að vera að lesa mér til á Torrent síðunni thepiratebay en er orðin alveg rugluð. Þannig að nú er ég alveg ráðalaus, ef einhver getur gefið mér eintak væri það vel þegið.
2 ummæli:
ef ég ætti þessi forrit þá myndi ég lána þér þau - ég á þau bara inni á makkanum og pcfartölvunni - en er ekki með diskana til að installera.....
e
nei einmitt, en takk samt.
Málið er í vinnslu og gæti leyst í næstu viku.
Skrifa ummæli