28. júní 2010

Handlagin húsmóðir í austurbænum

Tók þessa tvo gömlu bakka og ákvað að lappa aðeins upp á þá. Ég keypti kalkmálningu hjá Byko og málaði þá hvíta. Kalkmálningin er soldið skemmtileg því hún gefur hlutunum svona veðrað yfirbragð.
Mér fannst þetta heppnast alveg ágætlega nema í lokin. Þá ákvað ég að setja lakk í botninn á stóra bakkanum. Lakkið sem ég fann inni í bílskúr var gamalt og ónýtt og botninn varð allur gulleitur. Ég þarf að vinna í því að laga það einhvern veginn, ætli ég þurfi ekki að pússa þetta upp og gera upp á nýtt.
Á mánudaginn ákvað ég að nú  væri kominn tími á að taka þvottahúsið í gegn, það var síðast málað fyrir 12 árum og því kominn tími á framkvæmdir fyrir nokkrum árum síðan! Ég byrjaði á að tæma það, sem var soldið mikið því þvottahúsið er notað sem geymsla líka, sjá hillur upp við loft.
Þetta er snilldarráð sem ég sá einhvers staðar, með því að setja málningarbakkann í poka þarf ekki að þvo bakkann og maður á alltaf nýjan og flottan málningarbakka. Ég ákvað að mála, gluggapóstana, veggina og loftið. Það þurfti að laga samskeytin milli veggja og lofts, herra handlaginn gerði tilraun í þvottahúsinu þarna fyrir 12 árumog setti pappírsborða í samskeytin sem hann límdi fastan með málningunni. Í stuttu máli sagt misheppnaðist þessi tilraun og borðarnir hafa gapað á mig undanfarin ár og valdið mér pirringi í hvert sinn sem ég lít á þá. Ég keypti því frauðplastlista sem herra handlaginn setti upp fyrir mig með sílikoni. Hann náði samt að klúðra málum með því að maka sílikoni á veggina og getiði hvað ... málning festist ekki á sílikoni!!! En eftir að ég hef pússað með sandpappír, skafið með kíttispaða, grunnað yfir og málað nokkrar umferðir sést sílikonklúðrið bara smá.
Gluggakistan í þvottahúsinu hefur alltaf verið alveg svakalega ljót (svona eins og í eldhúsinu, en það er næsta verk) þannig að ég ákvað að kaupa litlar mósaik glerflísar og setja í gluggakistuna. Það er allt annað að sjá þetta núna, eins og nýtt hús.
Nú á ég bara eftir að mála hilluna með gardínustönginn hvíta með kalkmálningunni og finna einhverjar ótrúlega sætar gardínur.
Hér má sjá þvottahúsið eftir svaka tiltekt fyrir jólin.
Næsta verkefni verður sennilega að taka til í forstofuskápnum og kommóðunni.

20. júní 2010

prjónaæði

Ég kláraði loksins lopapeysuna á Þórunni að morgni 17. júní. Ég er búin að vera alveg ótrúlega leeeengi með hana, þar sem ég ákvað að taka góðar pásur á milli til að lopaofnæmið færi nú ekki alveg með andlitið á mér.
Prjónum úti dagurinn var haldinn hátíðlegur í þriðja sinn í dag við Norræna húsið. Það var ágætis veður, skýjað en lítill vindur og nokkuð hlýtt. Það var bara góð mæting og að sjálfsögðu bakaði ég í piknik körfuna og vakti mikla athygli, hehehe

16. júní 2010

Regnbogakakan

Við Ólöf sáum mynd á netinu um daginn af regnbogaköku. Síðan þá hefur hún beðið mig ótal sinnum að baka svona köku. Í tilefni af fyrsta degi sumarfrísins hjá mér lét ég undan í dag. Morguninn fór í ýmsar útréttingar en um hádegi var kominn tími til að baka. Ég notaði uppskrift sem ég fékk frá mömmu fyrir örugglega 20 árum en hafði aldrei prófað.

Uppskriftin heitir glasabotnar vegna þess að hráefnið er mælt í glösum. Í fyrsta glasi eru 3 egg, í öðru glasi er sykur jafnhátt eggjunum og í þriðja glasið fer 1 msk kartöflumjöl, 2 tsk lyftiduft og hveiti þar til hráefnið er komið jafnhátt og í hinum glösunum. Eggin og sykurinn eru þeytt vel, á mesta hraða í 2-3 mínútur. Hveitiglasinu er síðan blandað varlega saman við með sleif.
 Allir matarlitir heimilisins voru dregnir fram. Það er greinilegt að ég þarf að fara að fylla á hjá mér, a.m.k. áður en piparkökumálun verður næst á dagskrá.

Á meðan ég var að stússast í kökudeiginu var Tinni mjög hljóður ... og það veit aldrei á gott. Enda sá ég útundan mér að hann hafði greinilega komist inn í herbergi heimasætunnar og rótað í óhreinatauskörfunni hennar. Það bregst ekki þegar hann kemst í körfuna þá rænir hann g-streng!
Stelpurnar hjálpuðu til við að hræra matarlitnum við deigið. Úr einni tveggja botna uppskrift fengum við 3 þunna botna. Við gerðum tvær uppskriftir og fengum því 6 þunna botna í 6 litum.
Það er gott að nota vel af matarlit, þá verða botnarnir skærari á litinn. Þessi uppskrift þarf að bakast við 200°C í 12 mínútur.
Fyrstu 3 botnarnir voru ofbakaðir hjá mér en seinni 3 voru í lagi. Í uppskriftinni stóð nefnilega að það ætti að baka þá í 30-40 mínútur, en þá er auðvitað meira deig í hverjum botni. 12 mínútur reyndist alveg hæfilegt fyrir þunnu botnana.
Kakan varð nú ekki alveg sú fallegasta í laginu en það má segja að tilraunin hafi heppnast að mestu leiti. Ólöf og Ásta voru alla vega spenntar að fá að skera fyrstu sneiðina en að sjálfsögðu fengu allir brauð fyrst.
Við buðum Guðnýju í kaffi, skömmu seinna kom svo Guðrún María og feðgarnir fengu heimsendingu vegna veikinda. Mér fannst fullmikið krem á kökunni en samt reyndi ég að smyrja mjög þunnu lagi á milli botnanna. Ég notaði hvítt Betty Crocker krem, en kannski er betra að vera með aðeins bragðminna krem. Skemmtileg tilraun og góður fyrsti í sumarfríi.

12. júní 2010

Frú Galin er græn eða allavega ljósgræn

Kíkið á flipann hér að ofan "Frú Galin er græn". Var að bæta við löngum lista sem ég fann á einni af mörgum bloggsíðum sem ég hef verið að skoða undanfarið. Ég reyndi að þýða og staðfæra eins og hægt var, sleppti tveimur atriðum sem áttu ekki við Ísland.

Related Posts with Thumbnails