7. ágúst 2013

Eftir verslunarmannahelgi

 Eftir verslunarmannahelgi fer maður að detta í vinnugírinn, bara vika eftir af sumarfríinu. Ég er búin að vera dugleg að nota rigningardagana í að prjóna og nú áðan á þessu yndislega sumarkvöldi skrapp ég út í garð og tók nokkrar myndir.

 Það eru ekki nema svona 3-4 vikur í að litla ljósið hennar ömmu sinnar mæti á svæðið. Ég er sko farin að hlakka til, það er svo yndislegt að knúsa ungbörn.

 Bróðir minn og mágkona eiga líka von á barni og fengu að vita í sónar í dag að það er stelpa á leiðinni. Þegar ég er búin að prjóna fyrir ömmubarnið fer ég af stað með eitthvað krúttlegt fyrir litlu frænku.

 Mér finnst alveg nauðsynlegt að huga vel að smáatriðum, t.d. eins og þessar tréperlur á endanum á þessari húfu. Húfan er á nýfætt barn þannig að engin hætta skapast á því að barnið stingi perlunum upp í sig. Það þarf nú að reyna að hugsa fyrir öllu.
 Ég er að prjóna aðra svona sokka, einlita úr sama garni og peysan með laufunum og hvíta húfan.

 Sæta spætan vildi auðvitað ekki láta sitt eftir liggja og heklaði þetta barnateppi fyrir systurdóttur sína. Hún er búin að vera voða dugleg og lærði meira að segja krabbahekl fyrir kantinn.

Annars er ég himinlifandi eftir daginn þar sem hjólin á grindinni í uppþvottavélinni minni komu loksins í dag en ég er búin að vaska upp í nærri því 6 vikur í sumar og alveg búin að fá nóg af uppvaski í sumarfríinu mínu.
Related Posts with Thumbnails