22. september 2013

myndir

 Vaskur hópur kennara og maka að leggja í hann.



 Við mættum þessu prjónanámskeiði fljótlega eftir að ferðin hófst.






Mesta afrek sumarsins var klárlega ganga yfir Fimmvörðuháls um miðjan ágúst. Ferðin var skipulögð af  Kennarafélagi Reykjavíkur og það voru 36 galvaskir kennarar og makar sem gengu í 11 tíma yfir hálsinn, 26 km leið. Ferðin var erfið en gefandi á margan hátt, mér fannst frábært að ég skildi komast þetta en ég hafði ekki verið neitt sérstaklega dugleg að æfa mig áður en ég fór í ferðina. Veðrið sem við fengum var allskonar, sól, hiti, rigning, kuldi og slydda en logn allan tímann. Ég var sérstaklega ánægð með að fá ekki eina einustu blöðru eftir alla þessa gönguDaginn eftir leið mér skringilega, ég var auðvitað dösuð eftir alla áreynsluna en tilfinningin var eiginlega eins og ég væri timbruð.



Nokkrum dögum seinna fór ég ásamt vinkonu minni út í Viðey að tína kúmen. Við tókum bátinn snemma eða kl. 17:15, tíndum í klukkutíma og tókum bátinn til baka um 18:30. Þegar heim var komið tók við nokkur vinna að þurrka kúmenið og tína það af stönglunum. Sæta spætan og vinkona hennar sáu um mesta puðið við eftirvinnuna. Úr þessu kúmeni er búið að hella upp á kaffi og baka brauð. Næst langar mig að prófa að gera kúmenpönnukökur.
Við erum nú búin að vera nokkuð dugleg í höndunum í sumar en sæta spætan heklaði þennan stóra og glæsilega púða úr afgöngunum mínum og fékk svo að setja bak í hann hjá bestu frænku, handavinnukennaranum sínum.

 Herra Galinn smíðaði þetta krúttlega rúm fyrir nýjasta afabarnið sitt.
 Sæta spætan prjónaði húfur eins og enginn væri morgundagurinn í textílmennt í skólanum. Hún náði að gera tvær húfur á meðan margir af bekkjarfélögum hennar náðu ekki einu sinni að gera eina. Þetta er fyrri húfan sem hún gaf frænku sinni í afmælisgjöf, seinni húfuna gaf hún svo stóru systur sinni.

 Ég hélt áfram með dagatalssjalið en það er úr lítilli bók frá Isager sem er líka dagatal fyrir árið 2013.

 Góð nýting á afgangsgarni.
Þarna sést sæta spætan og púðinn góði.
Árlega heldur fjölskylda herra Galins golfmót. Eftir golfmótið sem er púttmót er haldin grillveisla og þetta árið var veislan heima hjá okkur. Sæta spætan hefur sjaldan viljað taka þátt en þetta árið gerði hún það og lenti í fyrsta sæti og fékk farandbikar að launum.

Heimasætan tók þátt í busun í framhaldsskólanum sínum og var hópstjóri sem stjórnaði aðgerðum við að busa nýju krakkana. Hún er alveg á síðustu metrunum í náminu, útskrifast líklega um jólin.
Merkilegust af öllu var samt litla stúlkan sem lét aðeins bíða eftir sér og gerði okkur hjónakornin að afa og ömmu í þriðja sinn. Dásamlega falleg og vel gerð og ég hlakka til að kynnast henni.

Stoltir foreldrar á leiðinni heim af fæðingardeildinni.
Peysan sem ég prjónaði, ásamt húfu og vettlingum.


Stóra systir passar hana vel.
Related Posts with Thumbnails