Sýnir færslur með efnisorðinu náttúran. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu náttúran. Sýna allar færslur

26. september 2014

Haustið

Loksins kominn tími á nýja færslu, ég er búin að vera ótrúlega löt að blogga í sumar, gaf mér einhvern veginn aldrei tíma til þess þó ég hefði nægan tíma. Það urðu smá breytingar á heimilishögum hér í síðustu viku en þá flutti hundurinn Tinni að heiman og settist að hjá góðu fólki í Vestmannaeyjum. Þar veit ég að honum á eftir að líða vel því á því heimili eru bæði fleiri dýr og fólk sem nennir meiri útiveru en ég og dætur mínar elskulegar.
 Þarna eru þau saman síðasta kvöldið hans Tinna hér heima. Þetta var sama dag og við héldum upp á afmæli sætu spætunnar. Hún er svo flink í höndunum og tók að sér að greiða frænkum sínum í afmælinu, setti í þær hringfléttur.
Svo fínar frænkur.
Nú þegar ég er orðin hundlaus kona gefst tækifæri til að fara með myndavélina í göngutúr og það gerði ég einn fagran haustdag í vikunni. Náttúrufegurðin hér í kring er engu lík og ekki þarf að ganga langt til að finna haustlitina.






 Einmana lúpína, þetta var sú eina sem var enn í blóma.


Nú skal ég verða duglegri að setja eitthvað inn á bloggið, ég lofa ...

4. maí 2014

Viðburðarrík helgi

Við mæðgur fengum okkur stuttan göngutúr upp á Esju í blíðunni í dag. Við fórum nú bara að skilti 2 en tókum líka smá spássitúr inn í skóginn við skilti 1.
Í gær fór ég á útieldunarnámskeið á Úlfljótsvatni. Ég ætlaði auðvitað Nesjavallaleið, sá á kortinu að það væri stysta leiðin, en ...
Sú leið var enn lokuð eftir veturinn. Ég sneri því við og fór yfir Hellisheiðina. Námskeiðið var bara snilld þó það rigndi allan tímann.
Við elduðum ýmislegt, fisk, grænmeti, brauð, köku, epli og kaffi. Þetta smakkaðist að sjálfsögðu afskaplega vel svona úti í skógi. Á námskeiðinu voru kennarar og leikskólakennarar sem hafa áhuga á útikennslu sem sameinar náttúrufræði og heimilisfræði.
Ég keyrði svo Grafninginn og Þingvelli heim.



Related Posts with Thumbnails