Sýnir færslur með efnisorðinu Ravelry. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Ravelry. Sýna allar færslur

26. janúar 2013

Janúar

http://www.ravelry.com/projects/JohannaHosk/gongupils
Janúar hefur liðið hjá í einu vetfangi. Daginn er tekið að lengja og vorið vonandi handan við hornið. Í byrjun janúar fórum við stórfjölskyldan til Florida í 8 daga. Þrátt fyrir átta tíma flug hvora leið var þetta indælt frí og frábær framlenging á jólafríinu sem ég þurfti svo sannarlega á að halda.

Ég prjónaði pilsið hér fyrir ofan í jólafríinu. Þetta er göngupils, þ.e. ætlað utan yfir göngubuxurnar mínar þegar kalt er í veðri. Uppskriftin er úr voðalega fallegri bók sem ég keypti í handprjón.is fyrir jól. Þar er þetta mynstur notað í herðaslá og í bókinni er byrjað neðst. Ég ákvað að byrja efst og breyta slánni í pils.

3. desember 2012

Aðventan

Þá er aðventan gengin í garð með dimmum dögum og kertaljósum. Jólaskreytingar potast upp með hraða snigilsins, ég skil ekki hvað ég er róleg í þessu þetta árið. Ég hef miklar áhyggjur af því að ég er ekkert farin að baka ennþá, er að vísu búin að baka úr einum pakka úr IKEA en það er nú varla hægt að telja það með. Aðventukransinn er einfaldur þetta árið eins og síðustu ár, er ekki mikil kransatýpa. Ætla samt að búa til einn útikrans úr greni og berjum úr garðinum, komin vika síðan ég keypti grenið!
Dagarnir í vinnunni eru krefjandi svo ekki sé meira sagt þegar skjólstæðingarnir eru að missa sig úr spenningi.
Sæta spætan bað mig að prjóna háa ullarsokka fyrir vetrarskóna sem hana langar að kaupa. Ég var svo heppin að eiga tvær dokkur af jurtalituðu kambgarni frá Hespu og ákvað að prjóna sokkana frá tá og upp til að nýta garnið eins og kostur er. Bláa bandið er hælbandið en ég geri alltaf hælinn eins og þumal.
Svo er ég með þetta sjal á prjónunum og þegar það klárast langar mig að prjóna mér pils, þykkt og gott pils sem hægt er að klæðast utan yfir göngubuxurnar mínar.

22. október 2012

Haustfrí

Haustfrí í góðu veðri er nú ekki alslæmt. Við mæðgur fórum í keilu í morgun með G litlu systur og hennar börnum. Það er nú huggulegt að vera búin að fá keilusal svona nálægt heimilinu, alveg spurning hvort hann verður ekki notaður nokkrum sinnum í náinni framtíð. Sæta spætan ætlaði nú ekki að þora að taka þátt, hún er alltaf svolítið óörugg þegar hún prófar nýja hluti, er hrædd um að vera léleg. Þetta gekk nú samt alveg ágætlega hjá henni miðað við fyrsta skipti.

Ég er að reyna að vanda mig að fríið (sem er í raun sumarfríið mitt) fari ekki bara í heimilisstörf. Ég þarf að hvíla mig eftir törnina í síðustu viku en þá voru foreldraviðtöl á föstudeginum og svo kosningavinna á laugardeginum. Ætli sé ekki best að læra fyrir frönskuna og prjóna. Nú er ég búin með Selbu húfuna sem ég byrjaði á í lok september sjá, hér á Ravelry. Næst ætla ég að prjóna sjal úr garni sem ég fékk í pakkaleik í prjónaklúbbnum um síðustu jól.

7. október 2012

Haustið



Mikið finnst mér nú helgarfríin yndisleg, jafnvel þó heilu og hálfu dagarnir fari í heimilisstörf og annað ámóta lítið spennandi. Þegar heimilisstörfin voru komin vel á veg í gærmorgun fengum við Tinni okkur göngutúr um Grafarvoginn. Við gengum 5,8 km í yndislegu haustveðri, þurru og sólríku, sem var merkilegt því rétt áður og rétt á eftir göngutúrnum var hellidemba. Nú eru liðnar 6 vikur af skólaárinu og ég er farin að ná andanum. Það er alveg ótrúlega mikill munur að kenna 2. bekk eða 4. bekk eins og ég var með í fyrra. Við höfum t.d. "hellum niður daginn" á næstum hverjum degi í nestistímanum í 2. bekk sem getur verið ansi þreytandi til lengdar.


Ég er að prjóna mér húfu úr mjúku eðalgarni frá Drops, ég er rúmlega hálfnuð með hana og klára hana örugglega mjög fljótlega. Það kom mér á óvart þegar ég fór að setja prjónaverkefnin mín inn á Ravelry hvað ég er búin að gera mikið undanfarin ár. Mér fannst þetta ekki neitt neitt en svo þegar maður safnar þessu á einn stað þá sé ég að ég hef bara verið nokkuð dugleg (klapp á bakið).

29. september 2012

Stuttar legghlífar


Ég kláraði þessar legghlífar nú í byrjun september og hef notað þær nokkrum sinnum. Mér finnst nefnilega flott að vera í grófum sokkum innan undir stígvélum en finnst allt of heitt að vera í heilum sokkum. Þegar ég datt niður á þessa lausn á Pinterest vissi ég að þetta væri næsta verkefni. Uppskriftin er á Ravelry síðunni minni.

27. september 2012

Búin að uppgötva Ravelry


Já ég veit ég er sein að fatta þetta með Ravelry. Nú skoða ég og læt mig dreyma um allt sem mig langar að prjóna og hekla. Ég kláraði grænu peysuna um daginn en sennilega er hún heldur lítil, spurning hvort hún teygist nóg í þvotti til að passa.
Related Posts with Thumbnails