Fyrr í vetur keypti ég þennan langermabol í Vero Moda með það fyrir augum að breyta honum eins og Sachiko í Tea Rose Home gerir. Í kvöld kom ég mér loksins að verki, klippti ermarnar af og notaði til að skreyta.
Ermarnar klippti ég svo í ræmur eftir að ég hafði opnað þær og klippt alla sauma af.
Planið var að gera nokkrar rósir og nokkrar rendur með rykkingum. Ég fékk 8 lengjur úr ermunum.
Ég byrjaði á því að rykkja nokkrar lengjur með stóru spori á saumavélinni.
Ég saumaði fyrst rykktu lengjurnar, sneri svo upp á 5 lengjur og bjó til rósir. Lengjurnar saumaði ég á með mjóu, gisnu sikksakki. Rósirnar lagði ég á og festi með títiprjónum og saumaði síðan yfir tvær umferðir með beinu spori.
Bara ánægð með þetta, kemur vel út, sérstaklega þegar maður dregur inn magann fyrir myndatökuna.
30. maí 2011
21. maí 2011
Freezer paper
Ég er búin að vera með hugmynd í kollinum í smá tíma og fyrir nokkrum dögum ákvað ég að skella mér í verkefnið á SPK fundi. Ég tók gamlan, ljótan taupoka og ákvað að nota ammrískan freezer paper sem Systa frænka sendi mér frá Ammríku fyrir nokkrum árum. Þá var bara málið að finna skemmtilegt mynstur til að setja yfir ljótu merkin sem voru óþarflega stór að mínu mati og voru auk þess staðsett báðum megin.
Ég ákvað að gera gras yfir langa merkið. Fyrst teiknaði ég á pappírinn með blýanti, síðan skar ég mynstrið út með föndurhníf.
Svo þurfti að stilla þetta af miðað við merkið. Stensillinn er svo festur á með straujárni, en pappírinn er plasthúðaður og plastið bráðnar ofan í efnið við straujun.
Svo notaði ég Duncan föndurliti til að mála inn í stensilinn. Þegar búið er að mála er stensillinn fjarlægður og þótt furðulegt megi virðast er ekki vottur af plastinu frá pappírnum á efninu.
Þá var það hin hliðin og merkið á henni var jafnvel ljótara og því miður enn stærra. Það var því úr vöndu að ráða hvaða mótiv ætti að verða fyrir valinu. Ég er nú soddan sauður að kindamótiv heilla mig alltaf svolítið. Ég átti líka silfurlitan fatalit sem ég ákvað að nota sem aðallit, silfursauðurinn var að fæðast.
Silfurmálningin var lengi að þorna þannig að ég tók smá pásu og hélt áfram daginn eftir. Það þarf sér stensil fyrir hvern lit.
Silfursauðurinn tilbúinn en mig langar samt að bæta smá útsaumi við, t.d. strá út úr munninum á honum eða blóm á grasið hinum megin. Sé bara til hvað gerist.
Mér fannst þetta nú heppnast ótrúlega vel þó ég segi sjálf frá því ég er handónýt í því að teikna.

Merkimiðar:
hagsýni,
Handavinna,
project restyle,
snilld,
SPK
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)