Þjófurinn Tinni situr um herbergi sætu spætunnar og nappar því sem er á gólfinu (sem er reyndar ansi margt). Hann hefur sérstakt dálæti á Bratz dúkkunum og hleypur eins og fjandinn sé á hælunum á honum þegar hann nær einni. Hann fer með þær beint á leynistaðinn sinn (sjá grasið í hárinu á þeim) og nagar af þeim útlimi Ólöfu til mikillar skelfingar.
30. maí 2010
24. maí 2010
Hið ljúfa líf á pallinum heima
Þriggja daga helgi og ekki ský á himni allan tímann. Gerist ekki mikið betra en þetta. Við erum búin að njóta veðurblíðunnar út í ystu æsar hér á pallinum, bæði menn, konur og hundur. Siggi er að smíða hlið fyrir pallinn hérna að framan svo hægt verði að hafa opið út án þess að hundurinn fari sér að voða. Ég er búin að halda vel áfram með bókina sem ég er að lesa "Undomestic goddess" e. Sophie Kinsella á milli þess sem ég reyni að gera einhver heimilisverk. Bókin er ótrúlega góð, eiginlega betri en kaupalkinn sem ég las í vetur.
Tinni var alveg að fíla pallinn og sólina og lesturinn, hann skreið uppí til mín um leið og ég lagðist á pallinn að lesa.
Tinni var alveg að fíla pallinn og sólina og lesturinn, hann skreið uppí til mín um leið og ég lagðist á pallinn að lesa.
kl.
21:06
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
Hundahald
13. maí 2010
Ég þrái sumarleyfi
Þegar veðrið er svona gott dag eftir dag fer maður virkilega að þrá sumarleyfið eftir langan og strembinn vetur. Allt það sem mig langar að gera og framkvæma er að mótast í langan og góðan lista í hausnum á mér. Ég hlakka til að dúllast og snúast í ýmsu í húsinu mínu og garðinum. Ég er byrjuð að skipuleggja allar lautarferðirnar sem ég ætla í og vonandi koma einhverjir með mér. Nýja saumavélin okkar GM fær að finna fyrir því, efnisstrangarnir verða keyptir í bunkum. Ég fékk smá forsmekk að sælunni í dag í ferð með Flickr konum í Grasagarðinn, það er nú meira hvað það er yndislegur staður. Að rölta þar um, skoða blómin og hlusta á fuglasönginn er á við margra vikna slökun. Ekki skemmdi góður félagsskapur í dag. Ég er svo ánægð með þennan hóp kvenna sem ég er komin í, allt konur á góðum aldri sem hafa ánægju af passlega löngum ferðum og fallegum stöðum til myndatöku.
kl.
23:34
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Handavinna,
Heimilið,
Ljósmyndun
9. maí 2010
Mæðradagurinn
Í dag hugsum við líka hlýtt til stjúpdóttur minnar því hún missti móður sína í dag. Innilegar samúðarkveðjur til hennar og fjölskyldu hennar.
Merkimiðar:
Bakstur,
Fjölskyldan
2. maí 2010
Í matinn er þetta helst
Frú Galin vill helst af öllu gera matseðil og versla bara einu sinni eða tvisvar í viku. Það er nú erfiðara en það virðist. Í morgun fékk ég kast og bjó til þessa krúttlegu matseðla sem passa á A4 blað. Skrautið er frá Shabby Princess, síða sem er afskaplega flott og fullt af fríu niðurhali til að leika sér með.
Ef ég gef mér tíma til að útbúa matseðilinn sparar það ekki bara peninga í hverri viku heldur líka tíma og pirring yfir því hvað á að vera í matinn. Vildi samt að hinir í fjölskyldunni væru duglegri að koma með hugmyndir, en það kemur kannski með tíð og tíma.
ps. hægri smella á myndina og velja "save picture as", þá getur þú líka gert matseðil.
Ef ég gef mér tíma til að útbúa matseðilinn sparar það ekki bara peninga í hverri viku heldur líka tíma og pirring yfir því hvað á að vera í matinn. Vildi samt að hinir í fjölskyldunni væru duglegri að koma með hugmyndir, en það kemur kannski með tíð og tíma.
ps. hægri smella á myndina og velja "save picture as", þá getur þú líka gert matseðil.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)



