31. desember 2010

Síðasta blogfærsla ársins

Nú árið er liðið (eða næstum því) og tími til komin að senda síðasta bloggið út á þessu ári. Jólin liðu í rólegheitum með góðu fólki og góðum mat, alveg eins og lög gera ráð fyrir. Við fengum margar fallegar gjafir og þökkum kærlega fyrir okkur.
Við gáfum Tinna engan pakka en pössuðum að hann fengi langa og góða göngutúra þessa jóladaga og svo fékk hann auðvitað að smakka á jólasteikinni, bæði kalkún og hangikjöti sem honum leiddist nú ekki. Hann fékk samt tvo pakka, báðir innihéldu þeir góðgæti sem hann var mjög spenntur fyrir.
Þetta var svipurinn á sætu spætunni þegar hún opnaði pakkann frá okkur og augnabliki síðar var ég í kremjuknúsi með myndavélina fasta við andlitið.
Á jóladag fórum við til tengdafjölskyldu minnar í jólaboð og hittum alla ættingjana, borðuðum góðan mat og hlógum og skemmtum okkur. Á annan í jólum var svo jólaboðið hjá minni fjölskyldu og sagan endurtók sig, góður matur og góður félagsskapur.
Inn á milli jólaboða, skemmtana og huggulegheita þarf svo að þrífa og taka til (lesist sópa hundahár). Það er því viðeigandi að hundkvikyndið stilli sér upp við ryksuguna hehehe.

19. desember 2010

síðasta helgi fyrir jól

Litla stelpan mín orðin svo stór :-) Svona var hún fín á jólaballinu í skólanum á föstudaginn.

Þessi síðasta helgi fyrir jól er alltaf svolítið annasöm, nóg að gera hjá öllum. Við erum búin að fara á tvö jólaböll þessa helgi, syngja í messu, skreyta jólatréð með ömmu S og afa H, skreyta jólatréð okkar, fara á fimleikaæfingu, kaupa 9 jólagjafir, pakka inn jólagjöfum, baða hundinn, þrífa hús og bíl og fara í bíó. Ég er samt örugglega að gleyma einhverju hehehe.
Jólasveinarnir sem mættu á jólaball Fjölnis voru heldur skemmtilegri en þeir sem mættu til okkar í skólann. Þessir voru greinilega alvöru!!!
Ég hlakka svo til að prófa linsuna sem ég fæ í jólagjöf, 28mm, f1.8. Það verður ekkert smá gaman að prófa hana. Þessar myndir eru teknar með 50mm linsunni minni og heimatilbúnu móti framan á henni, galdurinn er að stilla á f1.8 og þá koma hjörtun þegar maður stillir fókusinn aðeins úr fókus. Það kom meira að segja hjarta í glampann í augunum á ÓH, ótrúlega sætt.

17. desember 2010

Jólafrí - loksins

Þessi mynd er tekin í jólaþorpinu í Hafnarfirði um síðustu helgi en þá fórum við mæðgur ásamt kvikyndinu í Cavaliergöngu um Hafnarfjörðinn. Tinni var alveg að tapa sér af gleði að sjá alla þessa hunda og ekki nóg með það heldur varð hann ástfanginn af 8 mánaða tík sem heitir Kókó. Það er nú alveg greinilegt að hann þarf meiri æfingu í svona hópgöngu hehehe.

Jólafríið mitt byrjaði á hádegi í dag, vikan er búin að vera frekar strembin og ég hlakkaði til að eiga rólegan og ljúfan dag með nemendum mínum á litlu jólunum en einn af nemendum mínum var ekki á sama máli og var með dónaskap og leiðindi. Ég ætla samt ekki að taka það með mér í jólafríið heldur tækla það á nýju ári.

Helgin er vel plönuð í kringum dæturnar, alltaf nóg um að vera hjá þeim. Ég náði að kaupa 6 jólagjafir í dag eftir vinnu og vonandi náum við klára mestan part af restinni um helgina á meðan stelpurnar verða hjá mömmu og pabba að hjálpa þeim að skreyta jólatréð. Ef veðrið verður alveg brjálað ætla ég samt að reyna að kúra bara í sófanum og horfa á góða mynd. Við systur ætlum svo í næstu viku í ljúfa bæjarferð með kaffihúsi og kósíheitum. Oh hvað ég hlakka til.

Ó já og ekki má gleyma að ég fékk 9 í einkunn fyrir kvikmyndaáfangann minn í Borgó, júhú, sú gamla er bara að standa sig.

6. desember 2010

Desember er annasamur mánuður

Fyrstu helgi í aðventu vorum við í laufabrauðsútskurði og þá höfum við alltaf piparkökumálun í leiðinni. Í þetta skiptið var ég búin að kaupa tilbúið piparkökuhús í Tiger og stelpurnar skreyttu það svona listilega. Það var svo ekki fyrr en í gær að við höfðum tíma til að setja það saman og stilla því upp í stofunni. Tinni hélt auðvitað að þetta væri sérstaklega fyrir hann og fékk sér bita áður en við gátum nokkuð að gert. Hann var auðvitað skammaður greyið og nú veit hann að það má ekki snerta þetta hús :-)
 Aðventumót Ármanns var haldið sömu helgi og laufabrauðið og Ólöf tók þátt í tveimur greinum. Hún hefur verið treg til að taka þátt þannig að við foreldrarnir vorum mjög ánægð með að hún skyldi fást til þess að taka þátt í tveimur greinum. Vonandi tekur hún þátt í fleiri greinum næst.
Þann 1. desember fór ég svo á jólaljósarölt með Flickr konum. Ég klikkaði auðvitað á því að hafa þrífótinn með mér þar sem mikið myrkur var, en það er ótrúlegt hvað ég náði þó lítið hreyfðum myndum miðað við að hraðinn var oft ekki meiri en 1/15.
TO DO listinn styttist stöðugt, ég sendi dagatölin frá mér í prentun í gær, tók upp jólaskrautkassann í dag og skreytti smá, svo þarf maður að fara að huga að jólagjöfum ... hvað það verður veit nú enginn!
Related Posts with Thumbnails