Frú Galin er græn

Heima hjá mér erum við að færa okkur smátt og smátt í áttina að grænum lífsstíl. Ég reyni að flokka eins mikið og ég get og hvet dætur mínar til að gera það sama (tekst ekki alltaf):
  • allur pappír
  • plast
  • rafhlöður
  • föt til Rauða krossins
  • gler
  • ál og járn
  • kertavax
  • dósir og flöskur
Með þessu móti verða til u.þ.b. 1-2 ruslapokar á viku hjá mér með almennu óflokkuðu rusli.
Ég reyni líka að vera hagkvæm í matarinnkaupum. Það gengur nú misvel, aðallega eftir því hvað er mikið að gera í vinnunni og hvenær ég fæ upplýsingar um hvað verða margir í mat. Það sem kemur best út er að útbúa matseðil fyrir vikuna og versla inn einu sinni til tvisvar í viku.
Síðastliðin ár hef ég unnið í skólanum nálægt heimili mínu og hef þess vegna sparað ófáa lítra af eldsneyti, fyrir utan tímann sem fer venjulega í það að keyra á milli. Þetta er algjör lúxus.
Það má líka segja að græni lífsstíllinn endurspeglist í því að ég nota heimilistækin þar til þau eru ónýt en kaupi ekki ný eftir duttlungum tískunnar, ryksugan mín er frá mömmu og pabba frá því að þau byrjuðu að búa 1968. Ég er nýbúin að endurnýja hárblásarann minn en sá gamli var keyptur í kringum 1988 og var alveg hættur að blása.

Frugal living tengist minimaliskum lífstíl svolítið eins og er svo mikið í tísku núna.

Ég rakst á þennan lista um umhverfisvæn atriði á One ordinary day og ætla að reyna að íslenska hann:
  1. Ekki nota rör
  2. Veldu nei þegar hraðbankinn eða bensíndælan spyr hvort þú viljir kvittun
  3. Notaðu tauservettur, jafnvel þó það sé bara einu sinni í viku.
  4. Notaðu "cruise control" þegar færi gefst (við eigum reyndar ekki svo fínan bíl að hann hafi svona fínerí)
  5. Notaðu margnota vatnsflösku og fylltu á hana heima
  6. Notaðu borðtuskur og viskustykki í staðinn fyrir eldhúsbréf, (það er ótrúlega auðvelt að skipta, prófaðu bara)
  7. Notaðu margnota innkaupapoka, þeir eru þægilegir og þeir rifna ekki
  8. Flokkaðu eins mikið af sorpi og hægt er á þínu svæði
  9. Notaðu sparperur og slökktu ljósin þar sem enginn er
  10. Þvoðu fulla vél, bæði í þvottavélinni og uppþvottavélinni
  11. Notaðu hleðslubatterí í staðinn fyrir venjuleg
  12. Ekki kaupa nammi eða kex sem er pakkað hverju fyrir sig - allt of miklar umbúðir
  13. Safnhaugur. Á venjulegu heimili verða til um 100 kg af úrgangi í eldhúsinu á hverju ári. Það er hægt að setja mest allt í safnhaug, nema kjöt, kjötafurðir, mjólkurafurðir og mjög feitar matvörur. En vissirðu að það má líka setja ýmislegt annað á safnhauginn eins og t.d. rifin dagblöð, auglýsingabæklinga, klósettrúllur, kaffifilter og jafnvel ló.
  14. Styddu við bakið á bændum í nágrenninu og keyptu vörur af svæðinu
  15. Taktu rafmagnstæki úr sambandi þegar þau eru ekki í notkun
  16. Gerðu við leka krana
  17. Borgaðu reikningana í heimabanka, bæði til að spara pappír og bensínkostnað
  18. Fáðu far með öðrum og/eða gefðu öðrum far
  19. Lækkaðu í ofnunum (ég er reyndar svo mikil kuldaskræfa að ég vil ekki spara mikið í þessum lið)
  20. Láttu ekki heitt eða kalt vatn renna að óþörfu
  21. 100 milljón tré eru felld á hverju ári til að prenta ruslpóst, merktu póstkassann þinn þannig að þú fáir ekki ruslpóst
  22. Salt á götum og gangstéttum er óhollt fyrir náttúruna, reyndu að finna aðrar aðferðir við hálkuvarnir
  23. Þegar þú notar bakaraofninn, reyndu að opna hurðina eins lítið og hægt er til að lágmarka hitatap. Ekki forhita ofninn nema þess þurfi
  24. Hreinsaðu lósíuna í þurrkaranum oft (ég er nýbúin að kaupa mér þurrkara og finnst hann algjör snilld þó hann sé auðvitað orkusuga, ég þvæ og þurrka samt ekki nema svona 1-3 vélar á viku fyrir okkur 3)
  25. Sláðu grasið áður en það verður of hátt, þá geturðu látið það liggja á og rotna niður í jarðveginn og þannig komið næringarefnunum aftur niður í moldina
  26. Plantaðu trjám, þau veita skjól á sumrin og minnka vind á vetrum
  27. Úðaðu illgresið með venjulegu borðediki á sólríkum degi. Það er lífrænn illgresiseyðir sem er öruggur fyrir náttúruna og þig
  28. Fáðu lánaðar bækur og lánaðu öðrum bækurnar þínar. Á sumum bókasöfnum er hægt að skilja eftir kiljur og fá aðrar í staðinn
  29. Vertu með réttan loftþrýsting í dekkjunum á bílnum þínum
  30. Skoðaðu umbúðir utan af matvælum, keyptu matvörur í endurvinnanlegum umbúðum. Vertu meðvituð/aður um að minnka umbúðir, bananar þurfa t.d. ekki að fara í skrjáfpoka áður en við setjum þá í innkaupapokann
  31. Notaðu dagsbirtuna þegar hægt er
  32. Skoðaðu þennan lista með 75 atriðum sem mega fara í safnhauginn
  33. Ekki aka langar leiðir til að kaupa mat
  34. Notaðu matarsóda og edik til að losa stíflaða vaska en kallaðu fyrst á börnin, þau vilja sjá þetta
  35. Slökktu á tölvunni á nóttunni
  36. Fylltu frystinn, hann eyðir minna rafmagni fullur en tómur
  37. Settu uppþvottavélina bara af stað þegar hún er full og raðaðu vel í hana
  38. Farðu með nesti í vinnuna og notaðu margnota nestisbox
  39. Ef þú ert áskrifandi að tímariti, láttu það ganga til vina þegar þú hefur lesið það eða skildu það eftir á biðstofu lækna
  40. Þurrkaðu fötin þín á snúru í stað þurrkara.
  41. Finndu leiðir til að nota það sem þú hendir venjulega, athugaðu t.d. þessar skemmtilegu síður
Skoðaðu líka myndböndin á þessari síðu: The story of stuff. Fær mann til að hugsa aðeins!

Grænn apríl, umhverfissíða

Íslensk fjölskylda sem ákvað að verða græn.

Skref fyrir skref, bæklingur um umhverfisvernd frá Landvernd.

Til umhugsunar um plast- eða bréfpoka sem innkaupapoka. Ég nota innkaupapoka frá Envirosax sem eru frábærlega hannaðir, sterkir og fara vel í tösku auk þess sem þeir eru ótrúlega smart. Envirosax fást í netbúðinni www.disir.is
    Related Posts with Thumbnails