25. apríl 2009

Vídeógláp!

Ég er búin að horfa á nokkrar bíómyndir í veikindaleyfinu mínu:
  • Must love dogs
  • Under the Tuscan sun
  • Look who´s talking
  • Look who´s talking too
  • 27 dresses
  • Catch me if you can
  • I am Sam

Ég get því miður ekki horft á Friends því það tekur svo í saumana að hlæja! þannig að ég verð að velja hálfsorglegar eða dramatískar myndir.

11. apríl 2009

Gleðilega páska

Hádegismaturinn í dag samanstóð af muffins með gulu kremi, lummum með súkkulaðispæni, marmaraköku og gulum marengstoppum.
Þessi er tekin í gær en þá var fyrsti dagurinn sem við sátum úti á palli þetta vorið.

8. apríl 2009

Ljósmyndaferð í Grasagarðinn í dag

Ég sannfærðist um það í dag að vorið er komið, þrátt fyrir að það hafi snjóað í nótt. Ég fór í Grasagarðinn til að reyna að ná myndum fyrir lokaverkefnið mitt í ljósmyndun og held bara að það hafi tekist. Við mæðgur fórum svo út að hjóla í dag. Þetta er búið að vera yndislegur dagur, bjartur og fallegur, logn og sól. Þessi skógarþröstur var svo upptekinn við að snyrta sig fyrir vorið að ég komst mjög nálægt til að taka myndir af honum. Ég notaði 50mm linsuna í þessar.





Fleiri myndir á Flickr
Related Posts with Thumbnails