Ég var að leika mér smá í PS í gærkvöldi og tók fyrir mynd af Þórunni sem var tekin inni í herberginu hennar.
Ég kroppaði hana, notaði sepia tint action, clonaði út gluggakistuna og setti svo áferð á hana og hér er árangurinn.

Ég lenti í alveg stórskemmtilegu símtali við eitt foreldri í dag. Og fékk ennþá skemmtilegra tölvubréf frá öðru í gær. Kemur mér alltaf á óvart hvað sumir þekkja börnin sín illa, eða eru haldnir einhverri meinloku um að það megi ekki skamma börn fyrir óþekkt. Minnti mig á þáttinn með Dr. Martin frá því í síðustu viku. Eða mömmu hans Emils þegar hún sagði við Línu "En hann Emil er góður strákur, mundu það Lína". Hvernig eiga börn að læra muninn á réttu og röngu ef enginn segir neitt?
Þórunn mín er á árshátíð skólans í kvöld. Ég hélt að hún myndi fara í fermingarkjólnum, en nei ekki til að tala um. Hann vill hún nota í fyrsta skipti á fermingunni sjálfri. Hún fór í kjól sem ég keypti á útsölu í Hagkaup þegar hún var 7 ára og kostaði 500 kr. Það er nú ekki hægt að segja að hún sé dýr í rekstri þessi elska.


Frábært að hafa svona tvö áhugamál sem smellpassa saman :-)