7. febrúar 2008

Prjóni ... prjóni ... prjóni



Haldiði ekki að hún Ólöf mín sé bara búin að læra að prjóna. Hún er svo spennt að hún tók prjónana með sér í skólann í dag.


Nú ætlum við 3, ég, E og G að fara á prjónanámskeið á laugardaginn í Nálinni. Við ætlum að læra að prjóna tvo hluti í einu á sama hringprjóninn. Hljómar spennandi.


Hvað er þetta með snjóinn? Það spáir brjáluðu veðri annað kvöld, ætli það þurfi ekki að fresta árshátíðinni! Þetta var útsýnið út um þvottahúsgluggann í dag.

2 ummæli:

Guðný sagði...

sko mína, hún hefur ekki nennt að bíða eftir að byrja hjá mér í textíl. Var hún ekki búin að segja að hún ætlaði að læra þetta hjá mér.? gott hjá henni. Við þurfum að hafa prjónakvöld bráðum með krökkunum, Jóhann prjónar líka af kappi og GM prjónaði heila húfu í dag á ömmu sína.

Nafnlaus sagði...

dúllan - þau eru nú meiri krúttin litlu frændsystkinin að vera svona dugleg að prjóna :)

Related Posts with Thumbnails