Svona er aðventukransinn þetta árið. Einfaldur og látlaus og kostaði ekki krónu. Um að gera að vera hagsýnn á þessum árstíma.
Ég gerði viðburðardagatal fyrir okkur mæðgur nú í lok nóvember þar sem jólasveinninn sinnir frekar yngri börnum og sæta spætan vildi ekki súkkulaðidagatal.
Ég náði mér í grein af birkitré úr garðinum og spreyjaði hana hvíta og nokkra köngla líka sem ég hafði tínt hér í hverfinu.
Svo keypti ég svona spjöld með númerum í IKEA, tveir pakkar, 20 spjöld kostuðu heilar 220 krónur. Á miðana skrifaði ég svo ýmislegt sem við ætlum að gera til að undirbúa jólin, t.d. horfa á jólamynd, fara á kaffihús, pakka inn jólagjöfum, dekur-spa hér heima, baka smákökur, skera út laufabrauð og sitt lítið af hvoru sem kemur okkur í hátíðarskap.
Við erum búnar að skreyta svolítið fyrir jólin, en í ár langar mig mest að hafa hvítt og látlaust í jólaskreytingunum.
Fyrstu aðventuhelgina gerðum við systkinin svo laufabrauð hér í bílskúrnum. Það heppnaðist bara alveg ljómandi vel þó að mamma og pabbi séu að sóla sig í útlöndum en mamma hefur stjórnað þessu í áraraðir.
Og nú er svo ljómandi jólalegt úti, það er vonandi að það haldist nú þannig fram að jólum. Samt ekki of mikinn snjó, takk fyrir.