Sýnir færslur með efnisorðinu Pinterest. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Pinterest. Sýna allar færslur

5. júní 2014

DIY garðborðið mitt fær andlitslyftingu

 Stóra borðið á pallinum var farið að láta á sjá og því ákvað ég að hreinsa mósaíkflísarnar af því og breyta útlitinu. Ég fór auðvitað á Pinterest og safnaði hugmyndum í nýja möppu til að vinna út frá. Mig langaði að nota vörubretti og helst fá svolítið grófan við. Pabbi var svo elskulegur að koma færandi hendi með tvö stór vörubretti sem ég reif í sundur og naglhreinsaði, ég fékk smá aðstoð við að búta fjalirnar í réttar lengdir og ég pússaði, málaði og pússaði meira.
 Ég fór í Húsasmiðjuna og keypti málningu og fermingardrengurinn sem afgreiddi mig sagði það góða hugmynd að nota Lady innanhúsmálningu í svona verkefni þar sem sú málning væri akrílmálning og það er víst bara gott. Ég keypti því eina prufudós af bláa litnum en átti hvítt og grænt í bílskúrnum.

 Ég ákvað að olíubera borðið í lokin til að skerpa á litunum og finnst það hafa heppnast vel. Vona að þessar tilfæringar mínar séu ekki mjög misheppnaðar en það verður tíminn að leiða í ljós.

4. nóvember 2012

Brauðbakstur

http://www.tipjunkie.com/all-crafts/artisan-bread-recipe/
Ég gerði tilraun 2 til að baka þetta brauð um helgina. Ég var búin að sjá þetta á Pinterest fyrir nokkru síðan og langaði að prófa. Þetta er ótrúlega einfalt brauð og tekur enga stund en biðtíminn er svolítið langur eða 14-20 klst.
1 bolli er u.þ.b. 2,5 dl.

Hér er uppskriftin:
3 bollar hveiti (ég notaði 2 af hveiti og 1 af heilhveiti)
1/4 tsk þurrger
1 1/2 tsk salt
1 1/2 bolli volgt vatn

Þetta er hrært saman í skál með sleif. Það þarf ekki að hræra mikið og þetta lítur ekkert sérstaklega vel út þegar búið er að hræra en það er allt í lagi. Strekkið plastfilmu yfir skálina og látið standa á borði í 14-20 klst.

Næsta dag: Deigið hefur tvöfaldast að stærð, er með loftbólum og lyktar af geri. Hvolfið deiginu úr skálinni á borð með hveiti eða durumhveiti (þetta gula sem fæst í IKEA fyrir pizzurnar). Brjótið deigið saman nokkrum sinnum þar til það líkist kúlu. Takið hreint, vel þvegið viskustykki og stráið durumhveiti og hveiti á það, setjið brauðkúluna á, stráið meira hveiti yfir og lokið með hinum helmingnum af viskustykkinu. Látið standa í tvo tíma. Þegar einn tími er liðin, kveikið á ofninum (230°C) og setjið leirpott með loki inn til að hita hann. Þegar tveir tímar eru liðnir, takið leirpottinn úr ofninum og hvolfið brauðinu ofan í heitan pottinn. Setjið lokið á og bakið í ofninum í 30 mínútur. Takið lokið af og bakið í 10-15 mínútur í viðbót.

Látið kólna í 30-60 mínútur og njótið!

29. september 2012

Stuttar legghlífar


Ég kláraði þessar legghlífar nú í byrjun september og hef notað þær nokkrum sinnum. Mér finnst nefnilega flott að vera í grófum sokkum innan undir stígvélum en finnst allt of heitt að vera í heilum sokkum. Þegar ég datt niður á þessa lausn á Pinterest vissi ég að þetta væri næsta verkefni. Uppskriftin er á Ravelry síðunni minni.

29. desember 2011

fegurðin ein

 Fallegustu stelpurnar í bænum.
 Fallega fjölskyldan mín kom í mat til okkar á annan í jólum.
 Fallegt jólaveður, vona samt að það hætti að snjóa bráðum.
 Fallegar bollakökur í fallega kökuhjálminum sem við fengum í jólagjöf.

 Fallegi blómagatarinn minn getur klippt út svona fallega miða sem ég fann á Pinterest
Horfum á fallegu hliðar lífsins og njótum þess að vera til.

23. desember 2011

Fyrsta jólaboðið

 23. desember, Þorláksmessa: Í kvöld héldum við fyrsta jólaboðið þessi jól. Stjúpdóttirin og hennar fjölskylda komu til okkar, borðuðu kalkún og við höfðum það huggulegt saman. Hún er því miður ekki alveg laus við afleiðingar aðgerðarinnar sem hún fór í í byrjun mánaðarins enda er erfitt að halda kyrru fyrir og hvíla sig þegar maður á tvö börn og jólin alveg að bresta á. Hún er því ósköp slöpp greyið þessa dagana, vonandi nær hún að hvíla sig vel næstu vikurnar svo hún geti farið að byggja upp kraftinn að nýju. En það var gott að fá þau í heimsókn og gaman að spjalla og njóta samvista við þau. Það er nefnilega það sem svona hátíðir snúast um, að vera með ástvinum sínum.
Nú hefur pökkunum fjölgað undir trénu þó ekki hafi þeir allir skilað sér í hús ennþá. Við erum búin að koma öllum pökkum af okkur nema til ömmu en hann kemst til skila í fyrramálið.

Þá er bara einn dagur eftir af þessu dagatalsverkefni. Mér hefur fundist þetta skemmtilegt og ég held bara að það verði skrítið þegar þetta klárast. Kannski ég taki nýtt verkefni fyrir í janúar, ég væri til í að finna eina góða hugmynd á Pinterest á hverjum degi og spjalla um hana, eða kannski framkvæma!

11. desember 2011

Dótakassinn

11. desember: Ég er búin að komast að því að jólagjafaóskalistinn minn er svo fáránlega dýr að það er ekki séns að ég fái neitt af honum í jólagjöf. Ég bjó til borð á Pinterest fyrir jólagjafalistann minn bara svona upp á grínið, kannski bæti ég líka einhverjum skynsamlegum gjöfum inn á hann smátt og smátt fram að jólum.
Ég prófaði aftur að stífa dúka með sykurvatni í dag. Var búin að fá leiðbeiningar frá áreiðanlegu fólki um sykurlöginn en leiðbeiningarnar fólust í því að það þyrfti að setja sykurinn út í sjóðandi vatn eða sjóða vatnið og sykurinn saman í smá stund. Ég reyndi sem sagt báðar aðferðir og í stuttu máli var árangurinn ekki glæsilegur. Það fer nú alveg að líða að því að ég sæki trélímið!
Svona leggst dúkurinn niður nokkrum sekúndum eftir að ég tek hann af skálinni. Þetta er nú alveg hætt að vera fyndið.
Heimasætan og hundkvikyndið kúrðu saman og horfðu á sjónvarpið í gærkvöldi, svo sæt saman. Honum finnst svo gott að kúra undir sæng. Við erum nýbúin að hækka hitann í forstofunni og þá rauk gólfhitinn upp, núna finnst honum æði að liggja á forstofugólfinu og njóta hitans.

Stekkjastaur kemur í nótt, whoop whoop, ætli ég fái eitthvað í skóinn?

2. október 2011

Pinterest er mál málanna

(Mynd fundin á Pinterest en kemur héðan)
Related Posts with Thumbnails