29. ágúst 2008

ég og unglingarnir

Ég fór í fyrstu staðlotuna í Borgó eftir hádegi í dag. Í dag var bara kynning á dreifnáminu, og þessum áföngum sem við tökum, ég tek bara tvo áfanga af því að ég fékk metna listaáfangana úr Kennó, þannig að þetta verður rólegt hjá mér. Síðan var kynning á UTN áfanganum sem allir þurfa að taka. Ég skoðaði fyrstu tvö verkefnin sem við eigum að skila og sprakk næstum úr hlátri - við eigum að finna mynd á netinu, geyma hana og setja í word skjal ásamt texta og verkefni 2 er að gera skjal með inndregnum línum og bullets. Ég ætla samt að vera í þessum áfanga, kannski læri ég eitthvað nýtt eða fæ flóknari verkefni.
Þegar tíminn var að verða búinn kom íþróttakennari skólans inn í stofuna til að minna okkur á að við þyrftum að skila íþróttaeiningum til að útskrifast, þá dó ég næstum úr hlátri, á að fara að senda aldraða konuna í leikfimi eins og í gamla daga. Ég spurði auðvitað hvort ég þyrfti endilega að fara í leikfimi en var þá sagt að fyrst ég væri með stúdentspróf þyrfti ég þess ekki. En svo kom í ljós að nemendur í Borgó fá frían aðgang að Heilsuakademíunni, World class og fleiri stöðum á ákveðnum tímum, soltið cool. Ó já ég verð að muna að sækja um ókeypis strætókort (af því að ég er alltaf í strætó!).
Og í lokin þá toppaði einn unglingurinn daginn:
unglingur: uuu heyrðu get ég ... fengið ... að skipta um hóp
kennari: af hverju viltu það?
unglingur: sko ... hérna ... ég á svo erfitt með að vakna á morgnana. (dreifnámið er þannig að við mætum kl. 9 á laugardagsmorgni þrisvar til jóla).
Þetta á eftir að verða bráðskemmtilegt.

25. ágúst 2008

tölvuvesen

Hvað er þetta með fartölvurnar á heimilinu, ef þeim er ekki stolið þá bila þær. Þetta er nú ekki besti tíminn til að mín tölva bili því ég er að fara að byrja í skólanum á föstudaginn og gerði ráð fyrir að þurfa að taka hana með. Ég ætla að tala við Hrafnkel á morgun en á svo sem ekki von á því að hann geti lagað eitthvað, annars þarf ég að fara með hana á verkstæði.

Fyrsti kennsludagurinn í dag. Það gekk nú alveg ljómandi vel. Þetta eru svo sem indælir krakkar sem ég kenni, það er bara einn og einn samstarfsmaður sem þarf aðeins að tukta til. Fer í það ásamt fleirum á næstu dögum.

15. ágúst 2008

Sund

Ég lofaði krökkunum að fara með þau öll 4 í sund í fyrramálið. Er alveg að guggna á því en ætla að harka af mér, það verður bara hressandi.

12. ágúst 2008

Síðasta vika sumarfrísins

Jæja, þá er síðasta vika sumarfríisins byrjuð. Á sunnudaginn gerði ég lista yfir allt það sem ég þarf að gera áður en ég byrja að vinna, hér er hann:
  • hringja í lögguna út af sottlu
  • hringja í TM
  • reikna launin
  • fara í IKEA
  • hreinsa niðurfallið í sturtunni
  • þvo þvott
  • skila bókum á bókasafnið
  • skila korti til Rúnu
  • ath með hálsmen hjá Jóni og Óskari
  • Sorpa - gras og arfi
  • úrverk fyrir klukku
  • tannréttingar Þ
  • tannlæknir Þ Ó J
  • skipta á rúmum
  • skólagarðar að reita arfa
  • kvittanir fyrir S í stéttarfélagið
  • hringja í IE vegna HM poka
  • RL - sturtugrind
  • ath með tölvu, videovél og linsur
  • prjóna

Meiri hlutinn af þessum lista er nú búinn (grænt) þannig að restin af vikunni verður létt.

Ég verð nú að segja það að ég væri alveg til í tvær til þrjár vikur í viðbót í fríi.

Related Posts with Thumbnails