Tinni

Haustið 2009 létum við undan 10 ára þrýstingi frá þeirri eldri og ákváðum að fá okkur hund. Við fundum fljótlega út að tegundin Cavalier King Charles Spaniel myndi henta okkur vel. Þetta eru tiltölulega litlir hundar, með einstaklega þægilegt skap og það skipti líka máli að ég þekki nokkra sem eiga þessa tegund.

Okkur var bent á got hjá Söru During á Selfossi sem átti von á b/t hvolpum. Hvolpurinn fæddist svo 7. febrúar 2010, einn af þremur systkinum. Hann er hreinræktaður og eðalborinn þessi elska.
 
Þarna eru þau Apple Pie, Avatar og Alcatraz nokkurra daga gömul.


Strákurinn orðinn tæplega 3 vikna og við förum bráðum að skoða hann. 
  
Sunnudaginn 28. febrúar fórum við kíktum á litlu krúttin. Hér er Avatar okkar í fanginu á Þórunni og leiðist það ekki. Hvolparnir voru 3 vikna þennan dag. Þeir eru ósköp litlir og veikburða ennþá en stækka eflaust hratt og dafna vel. Það er svo vel hugsað um þá hjá Söru hvolpamömmu. Hvolparnir verða 10 vikna þann 18. apríl og um það leiti megum við sækja okkar hvolp.
  
Avatar orðinn 4 vikna. Við erum að spá í að hann fái nafnið Tinni. Nú eru bara tæpar 6 vikur þar til við getum sótt litla töffarann. Hann er farinn að borða graut og orðinn duglegri að labba. 
 
Tinni er orðinn 7 vikna gamall, það var mikið fjör þegar við fórum að kíkja á hvolpana sunnudaginn 28. mars. Þá eru bara tæpar 3 vikur þar til töffarinn flytur til okkar. Ég er búin að útbúa bæli fyrir hann og byrjuð að hekla teppi handa honum. Við erum líka í óða önn að gera íbúðina hvolpahelda. 
 
Á þessari mynd er Tinni 4 mánaða og byrjaður í hundaskólanum Gallerí Voff. Hann er orðinn 7 kg sem er einu og hálfu kg meira en hinir Cavalier hundarnir á námskeiðinu sem eru samt aðeins eldri. Sprækur og fallegur hundur sem er ljúfur og góður í umgengni. Það eru auðvitað svolítil hvolpalæti í honum eins og við er að búast en ekkert sem ekki er hægt að ráða við.
- - - *** - - -


- - - *** - - -

Tinni varð eins árs þann 7. febrúar 2011. Hann er farinn að róast svolítið, ekki eins mikið hvolpafjör í honum og bara fyrir 2-3 mánuðum. Hann er farinn að sofa frameftir á morgnana (alla vega stundum) og farin að hlýða betur. Hann er að verða hinn þægilegasti heimilismeðlimur (ef við tölum ekkert um hundahárin! OMG hvað hann fer úr hárum).

- - - *** - - -
Sept. 2014: Þó að Tinni sé hið mesta ljúfmenni (ljúfhundur) og gæti ekki verið þægilegri, hafa aðstæður okkar breyst þannig að ég sá mér ekki annað fært en að finna annað heimili fyrir hann. Hann flutti að heiman til Vestmannaeyja og dvelur þar í góðu yfirlæti með öðrum dýrum þess heimilis.
Related Posts with Thumbnails