29. desember 2008

Það er svo gaman að prjóna

Ég er vel hálfnuð með hyrnuna úr fallega Kauni garninu úr Nálinni. Ég vildi bara að ég ætti eins fallega prjóna og hún systir mín! Ég á örugglega eftir að prjóna aðra svona þegar Helga fær nýja sendingu með fleiri litum. Ég væri líka til í að gera peysu á mig úr þessu garni.

23. desember 2008

22. desember 2008

Allt klárt fyrir jólin

Þá er allt klárt fyrir jólin. Búin að kaupa allar jólagjafir, senda öll jólakort og þrífa allt sem þarf að þrífa. Bara eftir að skipta á rúmunum sem verður gert á miðvikudagsmorgun. Siggi sér alltaf um eldamennskuna og ég sé um að leggja á borð og strjúka burt síðustu rykkornin.
Á morgun er planað að fara í heimsókn til ömmu og afa og borða hangikjöt um kvöldið. Við reynum að fara sem minnst út á Þorláksmessu og aðfangadegi, það er hvort eð er allt ófært út af kirkjugarðinum. Borgar sig nú ekki að stressa sig á svoleiðis umferðarhnútum.

15. desember 2008

Jólasveinar einn og 8 (... hmmm 1 + 8 = 13 ! )

Ein ég sit og tölvast, inn í litlu húsi ...
En þessir jólasveinar, þetta er nú meiri snilldin, ég þarf ekki að segja nema einu sinni: burstaðu tennurnar og farðu að sofa. Hvar eru jólasveinarnir hina mánuði ársins þegar maður þarf að segja þessa setningu 14 sinnum sama kvöldið.

Skórinn fór í gluggann að kvöldi 11. des eins og lög gera ráð fyrir.
  • 12. des: Stekkjastaur
  • 13. des: Giljagaur
  • 14. des: Stúfur
  • 15. des: Þvörusleikir
  • 16. des: Pottaskefill
  • 17. des: Askasleikir
  • 18. des: Hurðaskellir
  • 19. des: Skyrgámur
  • 20. des: Bjúgnakrækir
  • 21. des: Gluggagægir
  • 22. des: Gáttaþefur
  • 23. des: Ketkrókur
  • 24. des: Kertasníkir

Eins gott að ruglast ekki í þessu, ég man alltaf bara fyrstu þrjá og svo þann síðasta.

mmmmm var að klára risastóra súkkulaðistykkið sem jólaálfurinn minn gaf mér í vinnunni.

Ó, já ég var að kaupa mér nýjustu kvenspæjarabókina, "Bláir skór og hamingja". Ég hlakka ekkert smá til að lesa hana, yndislegar bækur.

5. desember 2008

Mikið fjör

Það er búið að vera margt og mikið skemmtilegt um að vera í vikunni.
  • Ég bakaði fleiri jólasmákökur á mánudagskvöldið
  • Þreif og skreytti stofugluggana á þriðjudagskvöldið
  • Frábærlega skemmtilegur SPK fundur á miðvikudagskvöldið
  • Kennóstelpuhittingur á Jómfrúnni á fimmtudagskvöldið
  • Bæjarferð í dag, heimsókn í MMM, smá kikk á Laugaveginn og í Nálina.
  • Laufabrauð og piparkökumálun um helgina hjá mömmu

Þannið að það er ekki skrítið þó að ég hafi ekki verið mikið á MSN eða Facebook í vikunni, enda allt í lagi að taka stundum frí þar. Í kvöld er planið að prenta út límmiðana fyrir jólakortaumslögin, prenta út prufu af jólakortunum og reyna að klára dagatölin fyrir prentun. Talandi um prentun! Ég fór í A4 í gær til að kaupa prenthylki fyrir prentarann, þau höfðu hækkað um helming! Það kostaði 10.000 kr að kaupa eitt svart og eitt hvítt hylki. Eins gott að maður er á súperlaunum!

Önnumkafnar jólakveðjur frá Jóhönnu jólaóðu.

19. nóvember 2008

Rautt í Fókus

Kíkið endilega á þessa sýningu. Hún hefst n.k. föstudagskvöld og stendur til 14. desember.

18. nóvember 2008

Uppskrift og ljósmyndasýning

Hér er uppskrift af vettlingunum sem ég gerði um daginn.

Nú fer að sjá fyrir endann á önninni í BHS. Síðasta staðlotan er í lok nóv og þar með lýkur haustönninni. Þetta er búið að vera létt og skemmtilegt prógram. Eftir áramót fer ég í ljósmyndun og ljósmyndasögu og hlakka mikið til.

Næsta föstudag kl. 19:00 verður opnun á ljósmyndasýningu Fókus í Smáralind. Ég á eina mynd á sýningunni, sýnendur eru 32 talsins og mikið af mjög flottum myndum. Ég hvet ykkur til að fara og skoða. Ég held að sýningin verði í tvær vikur.

10. nóvember 2008

Sparnaðarráð í kreppunni

Ég var nú búin að ákveða það að það er nóg talað um kreppuna þó ég fari nú ekki að byrja á því líka ... en ég var að föndra um helgina og langar að sýna ykkur.

Vaxlitir bakaðir í siliconformi við 150°C hita í 10 - 15 mín.

Kærustuparavettlingar, einn karlvettlingur, einn kvenvettlingur og einn miðjuvettlingur þar sem hægt er að leiðast í rómantískum gönguferðum.

27. október 2008

Frægust af okkur

Hún Ólöf mín er greinilega sú frægasta af okkur í fjölskyldunni. Nú á sunnudaginn var viðtal við hana í Mbl.

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/25/eru_god_i_lestri/

Fyrir um mánuði var viðtal við hana þegar sjúkraþjálfarar voru að kenna börnunum að bera skólatöskurnar rétt.

Svo verður mynd af henni á Fókussýningunni í Smáralind nú í lok nóvember. Í mars á þessu ári var mynd af henni á Fókussýningunni í Ráðhúsinu.

Hvað næst?

24. október 2008

Rautt í Fókus

Þann 21. nóvember verður opnuð ljósmyndasýning í Smáralind sem ber nafnið Rautt í Fókus. Þar ætlum við Fókusfélagar að sýna myndir sem við höfum tekið. Myndin sem ég sýni er af Ólöfu minni, tekin í útilegu í tjaldvagninum í sumar.

Ég eyddi löngum tíma í vikunni í að taka mynd fyrir sýninguna. Ég var ánægðust með myndina hér fyrir neðan en þegar ég sýndi þessar tvær, þ.e. Ólöf og trélitirnir þá var trélitamyndin slegin út af borðinu med det samme.


20. október 2008

9. október 2008

Splúnkuný frænka

Ég eignaðist nýja frænku kl. hálfsjö í morgun. Guðný systir og Gunnar mágur eignuðust stóra og fallega stelpu, 18 merkur og 55 sm. Til hamingju!
Ohhh hvað ég er spennt að fá að knúsa hana.
Hún Þórunn mín á afmæli í dag. Til hamingju!
Samúðarkveðjur til Elínar og fjölskyldu.

6. október 2008

Er gott að vera kennari?

Svei mér þá, ég held bara að við kennarar séum í góðri stöðu núna á þessum síðustu og verstu tímum. Við urðum ekkert vör við góðærið og gátum því ekki eytt eins og vitleysingar, keypt íbúðir, innréttingar og bíla á uppsprengdu verði á 100% myntkörfuláni. Það er að koma okkur til góða núna þegar krónan (sem aldrei hefur verið stöðug - aldrei) er í frjálsu falli og örugglega ekki komin á botninn ennþá. Þetta er nú meiri endemis vitleysan. Fermingardrengir í rándýrum jakkafötum eru búnir að spila svo rassinn úr buxunum að ekki stendur steinn yfir steini. Og nú eigum við, fólkið í landinu, almenningur sem hefur ekki haft tækifæri á 300 milljóna starfsbyrjunar- eða starfslokasamningi (eða eitthvað þar á milli), að redda málunum. Mér finnst samt eins og ein fjöður sé orðin að fimm hænum í þessu máli, eru ekki fjölmiðlar að fara offari í gúrkutíðinni?

25. september 2008

Sjóræningjar

Það er nú meira fjaðrafokið í sambandi við Dagvaktina! Þeir ættu að taka þetta sem hrós, hversu margir ætli hafi downloadað Singing Bee? Örugglega enginn.

Kíkið á síðuna sem ég er að búa til í DW.

http://bhs.is/johanna.hoskuldsdottir/johannah/index.html

14. september 2008

Skemmtileg verkefni

Var að vinna í gær og í kvöld að verkefnum í BHS. Hér eru tvær myndir sem ég á að skila í næstu viku í MHL kúrsinum mínum. Við erum að byrja í myndvinnslu. Þetta er rosa skemmtilegt og ég vona að ég læri alveg helling.

10. september 2008

Það rúllar

Þá er vetrarstarfið farið að rúlla, kennslan farin vel af stað, Borgó umræðutímarnir komnir af stað. Rosalega líst mér vel á þetta margmiðlunarnám mitt í Borgó, ekkert smá skemmtilegt.
Við vorum með bekkjarafmæli fyrir Ólöfu á föstudaginn, þar mættu 13 hressar stelpur og frændsystkinin tvö ásamt systur minni sem hjálpaði mér þegar aðrir fjölskyldumeðlimir brugðust. Takk Guðný mín.
Næsta sunnudag verður svo fjölskylduafmæli fyrir Ólöfu, hún tók það ekki í mál, dramadrottningin á heimilinu, að hafa fjölskylduafmæli með systur sinni. Nei takk það er sko ósanngjarnt að Þórunn eigi afmælisköku í "hennar" afmæli. Þannig að við höldum annað fjölskylduafmæli fyrir Þórunni eftir mánuð.
Gullkorn frá Ólöfu: Það var einhver strákur sem sá Guðnýju á ganginum í skólanum og hnippti í Ólöfu og sagði, þarna er mamma þín. Þá sagði Ólöf frekar pirruð í röddinni: sko þessi feita er ekki mamma mín, þessi mjóa er mamma mín. Hahahah best að njóta þess því ég verð ekki þessi mjóa mikið lengur, þ.e. þegar lillan er komin í heiminn.

4. september 2008

Hundraðasti spítukallinn

Jæja þetta er víst færsla númer 100.
Ég er búin að vera í bölvuðu basli með fartölvuna mína, í byrjun síðustu viku bilaði hún og ég fór með hana í viðgerð í EJS, viku seinna hringdi ég og spurði hvort þetta væri ekki að koma. Þá var mér sagt að þeir væru ekki byrjaðir að kíkja á hana, klukkutíma seinna hringdi viðgerðarmaður og sagði mér að harði diskurinn væri ónýtur og samkvæmt ábyrgðinni ætti ég að fá nýjan. Hann spurði líka hvort ég vildi láta bjarga gögnunum mínum. Auðvitað vildi ég það. Á þriðjudaginn var hún svo tilbúin og maðurinn sagði að reikningurinn fyrir gagnabjörguninni væri 15000 kr. Þá hringdi ég í tryggingafélagið sem ég keypti kaskótrygginguna hjá (Elko). Af því að ég vildi að þeir greiddu reikninginn því ef diskurinn hefði ekki verið gallaður hefði ég ekki þurft gagnabjörgun. En það gekk víst ekki og ég borgaði reikninginn.

Þetta er samt ekki það versta, því í öllum þessum hamagangi þurfti auðvitað að strauja vélina og þar með vantar mig allan Adobe pakkann. Tölvuvinur minn lenti í svipuðum hremmingum og diskurinn hans sem geymdi Adobe hrundi, því getur hann ekki hjálpað mér í þetta sinn. Ég er búin að vera að lesa mér til á Torrent síðunni thepiratebay en er orðin alveg rugluð. Þannig að nú er ég alveg ráðalaus, ef einhver getur gefið mér eintak væri það vel þegið.

29. ágúst 2008

ég og unglingarnir

Ég fór í fyrstu staðlotuna í Borgó eftir hádegi í dag. Í dag var bara kynning á dreifnáminu, og þessum áföngum sem við tökum, ég tek bara tvo áfanga af því að ég fékk metna listaáfangana úr Kennó, þannig að þetta verður rólegt hjá mér. Síðan var kynning á UTN áfanganum sem allir þurfa að taka. Ég skoðaði fyrstu tvö verkefnin sem við eigum að skila og sprakk næstum úr hlátri - við eigum að finna mynd á netinu, geyma hana og setja í word skjal ásamt texta og verkefni 2 er að gera skjal með inndregnum línum og bullets. Ég ætla samt að vera í þessum áfanga, kannski læri ég eitthvað nýtt eða fæ flóknari verkefni.
Þegar tíminn var að verða búinn kom íþróttakennari skólans inn í stofuna til að minna okkur á að við þyrftum að skila íþróttaeiningum til að útskrifast, þá dó ég næstum úr hlátri, á að fara að senda aldraða konuna í leikfimi eins og í gamla daga. Ég spurði auðvitað hvort ég þyrfti endilega að fara í leikfimi en var þá sagt að fyrst ég væri með stúdentspróf þyrfti ég þess ekki. En svo kom í ljós að nemendur í Borgó fá frían aðgang að Heilsuakademíunni, World class og fleiri stöðum á ákveðnum tímum, soltið cool. Ó já ég verð að muna að sækja um ókeypis strætókort (af því að ég er alltaf í strætó!).
Og í lokin þá toppaði einn unglingurinn daginn:
unglingur: uuu heyrðu get ég ... fengið ... að skipta um hóp
kennari: af hverju viltu það?
unglingur: sko ... hérna ... ég á svo erfitt með að vakna á morgnana. (dreifnámið er þannig að við mætum kl. 9 á laugardagsmorgni þrisvar til jóla).
Þetta á eftir að verða bráðskemmtilegt.

25. ágúst 2008

tölvuvesen

Hvað er þetta með fartölvurnar á heimilinu, ef þeim er ekki stolið þá bila þær. Þetta er nú ekki besti tíminn til að mín tölva bili því ég er að fara að byrja í skólanum á föstudaginn og gerði ráð fyrir að þurfa að taka hana með. Ég ætla að tala við Hrafnkel á morgun en á svo sem ekki von á því að hann geti lagað eitthvað, annars þarf ég að fara með hana á verkstæði.

Fyrsti kennsludagurinn í dag. Það gekk nú alveg ljómandi vel. Þetta eru svo sem indælir krakkar sem ég kenni, það er bara einn og einn samstarfsmaður sem þarf aðeins að tukta til. Fer í það ásamt fleirum á næstu dögum.

15. ágúst 2008

Sund

Ég lofaði krökkunum að fara með þau öll 4 í sund í fyrramálið. Er alveg að guggna á því en ætla að harka af mér, það verður bara hressandi.

12. ágúst 2008

Síðasta vika sumarfrísins

Jæja, þá er síðasta vika sumarfríisins byrjuð. Á sunnudaginn gerði ég lista yfir allt það sem ég þarf að gera áður en ég byrja að vinna, hér er hann:
  • hringja í lögguna út af sottlu
  • hringja í TM
  • reikna launin
  • fara í IKEA
  • hreinsa niðurfallið í sturtunni
  • þvo þvott
  • skila bókum á bókasafnið
  • skila korti til Rúnu
  • ath með hálsmen hjá Jóni og Óskari
  • Sorpa - gras og arfi
  • úrverk fyrir klukku
  • tannréttingar Þ
  • tannlæknir Þ Ó J
  • skipta á rúmum
  • skólagarðar að reita arfa
  • kvittanir fyrir S í stéttarfélagið
  • hringja í IE vegna HM poka
  • RL - sturtugrind
  • ath með tölvu, videovél og linsur
  • prjóna

Meiri hlutinn af þessum lista er nú búinn (grænt) þannig að restin af vikunni verður létt.

Ég verð nú að segja það að ég væri alveg til í tvær til þrjár vikur í viðbót í fríi.

23. júlí 2008

Swiss mocca

Er alveg að verða háð þessu!

21. júlí 2008

Hvað er þetta ...

... með póstinn hjá Menntasviði, tölvupósturinn er búinn að vera bilaður meira og minna í heila viku. Ef þetta heldur svona áfram verður maður bara að fá sér pósthólf einhvers staðar annars staðar.

18. júlí 2008

Í sól og sumaryl

Þetta er nú meiri blíðan, geggjað veður dag eftir dag.
Ég er búin að vera í sólbaði og vinnandi þessi venjulegu húsverk til skiptis þessa síðustu daga. Ég reyni að njóta lífsins með swiss mocca á pallinum og tímarit á milli þess sem ég set í þvottavél, í uppþvottavél, þríf klósett, sópa gólf, þríf bílinn, færi til hluti og gef börnum hverfisins að borða. Á morgun er planið að halda áfram að njóta góða veðursins og slá jafnvel blettinn ef vel liggur á mér.
Jarðaberjaplönturnar á pallinum dafna vel, nú þegar erum við búin að fá þó nokkra uppskeru og von á meiru.

Ó já, ekki má gleyma því, þessa helgi eru 21 ár síðan við Siggi kynntumst í Þórsmörk í ferð með Ísgerð EmmEss. Hihi ég hef aldrei, hvorki fyrr né síðar farið í Þórsmörk, veit ekki hvort ég þori aftur, hihi.

11. júlí 2008

Always look on the bright side of life ...

Ég er að reyna að horfa jákvætt á þetta innbrot. Það gengur ágætlega þegar ég hugsa til þess að nú get ég keypt mér Canon 450D (eða jafnvel 40D) þegar við fáum greitt úr tryggingunum, en svo þegar ég er að fara að sofa eða fara út úr húsinu hugsa ég: ætli þeir komi aftur? Og það er mjög óþægileg tilfinning.

Ólöf þarf svolítið að tala um innbrotið, í gærkvöldi bað hún mig að loka glugganum (hún sefur oftast með opinn gluggann), örugglega svo það kæmu ekki þjófar inn um gluggann hennar.

Þórunn er svo spæld yfir tölvunni sinni og iPodinum en ber sig samt vel.

Nýja útlitið á síðunni er í boði www.shabbyprincess.com sem Ariana blogvinkona mín í Ameríku kenndi mér (og öðrum) að nota.

10. júlí 2008

arg !!! urr !!! ojbara !!!

Það var brotist inn hjá okkur í dag og öllum nýlegum raftækjum stolið. Öllum skartgripunum mínum en mest græt ég þó yfir myndavélinni minni, snökkt.

7. júlí 2008

Útilega

Ó já, mín fór í útilegu um helgina í tjaldvagninum. Reyndar var það fínt, gat eiginlega ekkert kvartað, nýjar dýnur (mjög góðar), æðislegur svefnpoki, dásamlegt veður og frábært tjaldstæði í Skorradal.
Þessi mynd er uppstillt, Þórunn var ekki vandræðaunglingur í ferðinni.
Þessi lýsir henni betur.
Í heimsókn hjá Sigrúnu Björk og Brandi í Skógarbæ innst í Skorradal. Æðislegur staður, ég er ekki hissa að þeim líði vel þarna.
Systurnar borða nammi, hmm þær eru sennilega ekki að rífast akkúrat þarna!

Sjálfsmynd af fjölskyldunni, vantar bara unglinginn inn á myndina.

Ólöf var ekki lengi að finna sér vinkonur. Þessar búa líka í Grafarvoginum, lítið land!

1. júlí 2008

Ævintýri

Í kvöld fórum við Siggi, Ólöf og Guðrún María með Fókusfélaginu heim til Hrafns Gunnlaugssonar til að mynda.

Hrafn var heima og sagði okkur að við mættum fara um allt hjá honum, honum fannst bara gaman að fá okkur í heimsókn.

Eini gallinn var að öll rigning júnímánaðar féll á þessum klukkutíma. Við létum það ekki stoppa okkur, pökkuðum vélunum inn í nestispoka, renndum úlpunum upp í háls og þrömmuðum af stað.

Ég er svo glöð að við skildum fara því þetta var einstakt tækifæri til að sjá Ævintýraland í miðri stórborg.

Það var svo mikil rigning að ég sá eiginlega ekki hvað ég var að mynda, smellti bara af í gríð og erg og vonaði það besta. Ég var sennilega með tímastillinguna stillta aðeins of hratt því allar myndirnar mínar voru mjög dökkar. Þess vegna er ég búin að vera að lýsa allar 64 myndirnar í PS og ætla svo að setja þær bestu inn á Flickr. Hér er samt ein af pallinum.

28. júní 2008

Dreifnám fyrir fólk með myndlistargrunn

Ó já, ég fékk bréf frá Borgó í gær. Umsóknin mín var samþykkt og ég fæ stundatöflu í byrjun ágúst. Nú er bara að ákveða hvort ég á að taka þetta á tveimur eða þremur árum. Kíkið hér og segið mér.

25. júní 2008

Brjálað að gera í sumarfríinu

Búin að vera í fríi í tvær vikur og leiðist sko ekki. Búið að vera nóg að gera og dásamlegt veður. Við Guðný erum búnar að bíða í marga daga eftir rigningardegi til að geta saumað úr efninu sem við keyptum okkur í síðustu viku. Í dag gátum við ekki beðið lengur og ég fór til hennar og saumaði mér kjól á mettíma í overlock vélinni hjá henni, ég á bara eftir að setja rennilás í hliðina svo ég geti komist í hann og þá er hann tilbúin. Þetta var svo auðvelt að mig langar í meira efni og sauma eitthvað fleira.

Ólafar herbergi er tilbúið og ég er næstum búin að ganga frá öllu í vinnuherberginu. Það kom nú ýmislegt í ljós í flutningunum og ég er að spá í að ráðast í að klára nokkur, hmmm, ókláruð verkefni sem ég fann.

Fór í sund í gær og hitti stelpurnar úr vinnunni. Frábært að hitta þær, svo skemmtilegar allar.

Næsti hittingur er fimmtudaginn 3. júlí á Kaffi Flóru í Grasagarðinum. Ólöf verður meira að segja á námskeiði í næstu viku þannig að ég kemst barnlaus, það er nú alltaf ljúft.

23. júní 2008

Flutningar - dagur 4

Við tókum því nú bara rólega í gær í þessu flutningastandi, Sigga var orðið illt í veiku höndinni þannig að ég var bara smá að færa til hluti og svona og náði að tæma tilvonandi Ólafar herbergi alveg. En í morgun byrjuðum við aftur, Siggi málaði eina umferð yfir stóru veggina, ég þreif gluggann og skúraði og bónaði gólfið. Síðan fórum við í skólagarðana að vökva.
Síðan var byrjað á fullu að raða inn í herbergið. Ólöf vildi hafa autt veggpláss, handstöðuvegg, en því miður var það ekki hægt, hún verður bara að halda áfram að standa á höndum upp við útihurðina.

Nú er soldið eftir af dóti sem á eftir að raða í vinnuherberginu, vonandi hef ég kraft til þess á morgun, langar samt meira að fara í sólbað eða byrja að sauma kjólinn sem ég er búin að sníða.

21. júní 2008

Flutningar - dagur 2

Jæja þá er dagur 2 í flutningunum liðinn. Í dag hefur heilmikið gerst, Siggi er búinn að fjölga tenglum í nýja vinnuherberginu svo um munar, bætti við 9 tenglum og færði símadósina. Okkur vantar bara einn þrefaldan ramma utan um tenglana og þá er rafmagnsvinnan búin. Seinni partinn byrjaði ég svo að flytja inn í herbergið.

Svona lítur stofan okkar út núna. Ólöf er sofandi þarna í rúminu í miðri hrúgunni. Það sést meira að segja ekki allt því öll fötin hennar eru í sófanum sem sést ekki vinstra megin.

Vinnuherbergið sem er tilvonandi herbergi Ólafar er næstum orðið tómt.









Nýja vinnuherbergið er farið að taka á sig mynd. Ég er að reyna að hafa það aðeins krúttlegra en það gamla. Veit ekki hvort það tekst því það er ennþá hellingur eftir af dóti sem ég veit ekki alveg hvað ég á að gera við. Sennilega er besta lausnin að kaupa krúttlega kassa sem passa á efstu hilluna og koma því þannig fyrir.

20. júní 2008

Flutningar

Nei við erum ekki að flytja, en í dag byrjuðum við á því að færa Ólöfu yfir í vinnuherbergið og vinnuherbergið yfir í Ólafar herbergi. Hljómar einfalt en þeir sem hafa komið inn í vinnuherbergið vita að þetta er allt annað en einfalt og fljótlegt. Við erum búin að tæma Ólafar herbergi og flytja hana inn í stofu. Nú er Siggi að fjölga tenglum þar inni og þegar það er búið er hægt að byrja að flytja allt draslið yfir, ég ætla nú samt að vera dugleg að henda. Úff hvað ég er mikill draslsafnari!!!

19. júní 2008

Skjótið björninn og málið er dautt

Hvað er þetta með ísbirni og Íslendinga. Halda menn að þetta séu einhver gæludýr? Ég segi enn og aftur, ef það kemur annar björn á að skjóta hann strax og málið er dautt.

14. júní 2008

Ww knit in public day

World wide knit in public day var haldinn hátíðlegur í Hallargarðinum í rjómablíðu í dag. Sennilega hafa verið um 50-60 manns þarna að njóta útiveru, spjalla og prjóna.
Bleiku kökurnar mínar runnu út eins og heitar lummur.



Þetta eru húfurnar sem ég er búin að vera að gera undanfarna daga. Mjög einfaldar og krúttlegar. Ég keypti 3 dokkur á útsölu í Storkinum og mér sýnist að ég nái að gera 3 húfur úr þeim.

8. júní 2008

Óvissuferð

Við hjónin fórum í stórkostlega skemmtilega óvissuferð með vinnunni minni á föstudaginn. Við byrjuðum upp í Mosó í gróðrastöðinni Dalsgerði. Þar átti eigandinn að hitta okkur og sýna okkur rósaræktunina sína, en hann gleymdi okkur þannig að við æddum þarna um allt leiðsagnarlaus. Eftir það var farið að Reynisvatni, þar sem nefndin setti okkur í ratleik um nágrennið og á meðan byrjaði nefndin að grilla ofan í okkur. Ratleikurinn gekk vel, fyrir utan það að blái hópurinn var með hryðjuverkastarfsemi! Ég tók myndavélina með og tók fullt af skemmtilegum myndum, sumar eru ekki birtingarhæfar svona á netinu en hér koma nokkrar.



Appelsínugula liðið, það er augljóst að við erum appelsínugul!


Svilarnir lentu í sama liði.

Bleikir eru beautiful ...

Nefndin góða sem stóð sig frábærlega.

Ég var alveg komin með gubbuna upp í háls út af þessu starfi mínu í síðustu viku og var eiginlega búin að ákveða að segja upp, en núna eftir þessa ferð er ég á báðum áttum, ég tími ekki að sleppa þessum frábæru vinnufélögum þannig að það er spurning um að þrauka einn vetur enn. Þá verð ég líka búin með íslenskunámið og búin með einn vetur í margmiðlunarnáminu. Ég er samt svo óánægð með að það sé ekki hægt að bjóða mér einn vetur án umsjónarbekks, það var nefnilega ráðinn nýr kennari um daginn við skólann, samfélagsfræðikennari og hann vildi ekki umsjón og það var samþykkt! Þetta finnst mér mjög skítt af stjórn skólans því þetta er annað árið í röð sem ég vil ekki umsjón en það er gengið fram hjá mér.

Jæja en góðu fréttirnar eru þær að ég á bara eftir að vinna 2 daga og svo er ég komin í sumarfrí.

3. júní 2008

agi - agaleysi

Ég bauðst til að hjálpa til á fimleikasýningu hjá Fjölni í dag, Ólöf var að sýna. Þegar gestum var hleypt í salinn var einn strákur (9-10 ára) sem hengdi sig á handriðið og ég sagði honum að setjast, eftir augnablik var hann svo aftur sestur á handriðið, þannig að ég gekk að honum og sagði ákveðið (án nokkurs æsings) fáðu þér sæti, nú hef ég sagt þér þetta tvisvar og nú skaltu hlíða. Nema hvað við hliðína á stráknum krýpur ein mamma með tvö lítil börn sem eru svona við það að klifra á handriðinu, henni mislíkaði greinilega það sem ég sagði og hún sendi mér manndrápsaugnatillit, en færði sig samt ekki í sæti! Ég starði auðvitað bara á móti og hélt mínu striki.

Svo er fólk að tala um agaleysi í skólum landsins, þarna voru bara börn með foreldrum sínum. Á ekki ögunin að byrja heima?

1. júní 2008

Skjálfti

Við vorum heima og úti á palli á fimmtudaginn þegar jarðskjálftinn var. Ég sat á stól, Siggi og Þórunn stóðu og Ólöf var í rólunni. Ólöf fann ekki fyrir neinu og sagði við pabba sinn: pabbi ert þú ekki bara orðinn svona mikill hlunkur?

Við fórum í heimsókn til Söndru í Hveragerði. Það var töluvert um skemmdir hjá henni, aðallega þó á lausamunum, leirtaui og svoleiðis. Sem betur fór skemmdist húsið hennar ekki. Þau voru enn að taka til og meta skemmdir inni hjá sér. Gangi ykkur vel.

Laugardaginn 14. júní kl. 14 verður alþjóðlegur prjónadagur, "Knit in public", haldinn hér á landi í fyrsta sinn. Ákveðið hefur verið að safnast saman í Hallargarðinum við Fríkirkjuveg og prjóna á túninu. Í tilefni af þessu keypti ég mér garn í húfu fyrir Ólöfu. Við systur ætlum að sjálfsögðu að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni.


25. maí 2008

Eurovision partý



Við mæðgur fórum í Eurovision partý til Guðnýjar og co í gær. Svaka fjör, grill, nammi og mismunandi góð tónlist! Við vorum nú ekki alveg sammála úrslitunum, okkur fundust mörg lög betri en vinningslagið. Sjáið bara svipinn á Ólöfu þegar úrslitin voru kunn.

22. maí 2008

Sumarfríið nálgast óðfluga

Nú eru bara rétt rúmar 2 vikur eftir af þessu skólaári og mál til komið að fara að koma sér í sumargírinn. Ég er búin að leggja stærðfræðipróf fyrir 3 hópa af fjórum þannig að þetta er allt að koma, ég er byrjuð að taka til í stofunni til að létta á síðustu dögunum ef sólin skyldi nú skína.

Etsy töskurnar mínar fínu komu í dag, eiginlega viku fyrr en ég áætlaði, eintóm hamingja með það. Töskurnar eru auðvitað bara flottar og ég hlakka til að byrja að nota þær. Ég þurfti að borga tæplega 7000 kr fyrir þær og svo stendur á póstaðflutningsskýrslunni: A Tollur 656 kr, Ö2 VSK 24,5% = 1767 kr, og tollmeðferðargjald = 450 kr. Þannig að heildarsumman er tæplega 10.000 kr. sem ég er bara sátt við, eiginlega alveg eins og ég gerði ráð fyrir.

12. maí 2008

Vantar HM í Reykjavík

Hef svosem ekkert merkilegt að segja í bili. Guðný og Gunnar eru í Þýskalandi (smá öfund í gangi - en ekkert alvarlegt). Það er víst aðeins meira sumar þar en hér - hmmm skrítið.


Það er búið að vera rólegt hérna um helgina. Ólöf er búin að vera hjá mömmu og pabba meira og minna alla helgina og skemmti sér konunglega, vildi helst ekki koma heim aftur.

Ég fór í smá húsmæðraorlof á föstudaginn. Fór ein í bæinn, niður á Laugaveg, heimsótti dúllubúðina, og labbaði um Laugaveginn, Skólavörðustíginn og alla leið í Kirsuberjatréð. Ég ætlaði að kaupa mér eitthvað fallegt, en sá svo ekkert sem heillaði mig upp úr skónum. Langaði mest að vera með Guðnýju í HM, ég hefði örugglega fundið eitthvað þar.

6. maí 2008

Nýjar töskur frá Funky chic design

Jæja, það er víst kominn tími á nýja færslu.
Ég var að ganga frá pöntun á etsy.com á nýrri tösku frá funky chic design. Þessi er töluvert stærri en hin, hún er nógu stór til að vera fartölvutaska. Hún er með fullt af hólfum.

Svo fyrst ég var að panta á annað borð, tók ég þessa litlu snyrtibuddu með líka.Þessar tvær kostuðu $90 með sendingarkostnaði (um 7000 kr.) og svo bætist tollafgreiðslugjaldið við sennilega 1500 - 2000 kr.

29. apríl 2008

EF (eftir fermingu)

Jæja þá er tímabilið eftir fermingu hafið. Veislan var á sunnudaginn og heppnaðist mjög vel. Ég fékk mikla hjálp frá Guðnýju, mömmu og Guðmundi. Siggi var auðvitað handlama á hægri en gerði sitt besta. Svo hjálpuðu Svala og Elín með kransakökurnar, þær voru báðar æðislega góðar. Þórunn var alsæl eftir daginn. Hún fékk margar fallegar gjafir, passlega mikið af skartgripum, 3 orðabækur, fullt af peningum og margt fleira fallegt. Við gáfum henni fartölvu sem hún var ótrúlega ánægð með. Veðrið var yndislegt og við gátum notað pallinn sem var frábært því það komu 60 gestir. Frábær dagur með frábæru fólki.

Næst á dagskrá er svo að ljúka við síðasta verkefnið í íslenskunáminu, sækja um námið sem mig langar í í Borgó og velja svo síðasta námskeiðið í íslenskunni (við eigum bara 4 einingar eftir). Sem sagt nóg framundan fyrir utan þessar venjulegu vorannir í kennslunni.

25. apríl 2008

Dúllí dúllí

Jæja við systur vorum í opnuninni í dúllubúðinni hjá dúlluvinkonunni. Ógó fint og flott og bleikt hjá minni, til hamingju með þetta dúllan mín.

Nóg að gera um helgina hjá okkur, undirbúningur, þrif, meiri undirbúningur og svo fermingin á sunnudaginn. Frekar lítið stress í gangi, enda ótrúlega flott fólk að hjálpa mér með þetta allt, takk elskurnar mínar. Ég hlakka ekkert smá til að setja saman kransakökurnar og skreyta þær á morgun, önnur verður með fiðrildum og hin með blómum. Það er líka smá vinna eftir við gestabókina sem verður unnin í kvöld, ég er nefnilega búin að fá hitablásarann lánaðan á verkstæðinu, hehehe, ég fór í gær til að fá hann lánaðan og fann hann ekki þannig að ég spurði L sem er pólskur og vinnur á verkstæðinu og talar litla íslensku og enga ensku.

Ég: Veistu um hitablásarann?
L: eehhh lykla?
Ég: nei, ekki lykla, hitablásara?
L: ehhh lykla?
Ég: nei ég er með lykla (sýni þá), mig vantar hitablásara (blæs út í loftið)
L: ahh, já (bendir upp í loftið þar sem loftræstikerfi verkstæðisins er)
Ég: nei, nei bara lítill (sýnt með táknum með tali)
L: ahh já (og fer og leitar en finnur ekki, segir svo stuttu seinna,) B er með heima
Ég: geturðu beðið hann að koma með hann á morgun
L: ha hringja morgun?
Ég: nei hringja núna, koma með á morgun (sagt nokkrum sinnum þar til skildist)

Svona er nú það.

21. apríl 2008

Hjólageymslan ehf

Helgin fór í að undirbúa fyrir fermingu, Siggi kláraði allt í sambandi við bílskúrshurðina, ég þvoði alla glugga, að utan og innan, kláraði stofuna og þreif tölvuherbergið. Þórunn tók sitt herbergi í gegn og byrjaði á Ólafar herbergi. Guðrún og Jóhann voru í heimsókn og voru nýtt í þrifin, allir eldhússtólarnir voru settir út á pall og þau þvoðu eins og þau ættu lífið að leysa. (Þegar ég tók stólana inn var samt eins og þau hefðu vandað sig við að þvo í kringum blettina, hehehe). Við Þórunn fórum í Föndru á laugardaginn til að finna skraut á kransakökurnar. Við fundum fiðrildalímmiða sem við límdum á pappírinn sem við höfðum keypt til að nota í gestabókinni og gerðum fullt af fiðrildum.
Ég er að hugsa um að stofna fyrirtæki. Það getur heitið Hjólageymslan ehf. Þannig er mál með vexti að við fjögur á heimilinu eigum öll reiðhjól, að auki eiga stelpurnar hlaupahjól og svo er hérna ennþá gamla hjólið hennar Ólafar og þríhjól síðan Þórunn var lítil. En þetta er nú ekki allt því vinkona Þórunnar geymir hjólið sitt oft hérna á meðan hún er í skólanum og bróðir hennar líka, sem væri auðvitað í fínu lagi ef þau færu með hjólin heim eftir skóla! Um helgina voru sem sagt öll okkar hjól hérna á tímabili á pallinum, hjól vinkonunnar og hlaupahjól bróður hennar og eitt hlaupahjól í viðbót sem ég veit ekki alveg hver átti. Samtals 11 hjól og geri aðrir betur.

9. apríl 2008

Fótafúið fólk á besta aldri

Ég fór að sækja Ólöfu í fimleika í gær sem er ekki í frásögur færandi, nema það að aldrei þessu vant fór ég á bílnum. Við Egilshöllina eru búnar að vera framkvæmdir í næstum ár og sífellt er erfiðara að komast að innganginum, þ.e.a.s. á bíl. Núna er mjó renna að dyrunum, stórt skilti við rennuna, innakstur bannaður og svo við endann á rennunni, við innganginn annað skilti sem á stendur "akstursleið, bifreiðastöður bannaðar". Samt sem áður eru ótal bílar að troðast þarna, væntanlega fólk sem er að sækja börn sín af íþróttaæfingu (bíddu ... hver er aftur tilgangurinn með íþróttaæfingum ... hmmm ... hvað var það aftur ... hmmm ... jú alveg rétt, hreyfing!) Geta börnin þá ekki gengið þessa 100 metra yfir á bílastæðið þar sem foreldrarnir geta beðið án þess að teppa aðkeyrsluna, t.d. fyrir sjúkrabílum.

Á kennarafundinum í dag var skóladagatal næsta árs kynnt. Nemendur eiga að vera frá 22. ágúst - 11. júní á næsta skólaári. Kennarar eiga að vera frá 14. ágúst til 15. júní. Inn á dagatalinu eru auðvitað tvö vetrarfrí! - hvað er þetta með vetrarfrí og þessa konu? Kennarar voru mjög reiðir vegna þess að ekki var gefinn kostur á að hafa áhrif á hvort vetrarfrí yrðu tekin. Ég var beðin um það sem trúnaðarmaður að kanna það hjá KÍ hvort við hefðum ekki kosningarrétt varðandi þessi vetrarfrí, sem ég gerði. Ég sendi bréf til Sesselju hjá KÍ áðan og vonandi fáum við svör fljótlega.

7. apríl 2008

Svona strumpur er ég

Banner framleiðsla







Ég var á vakt í Ráðhúsinu áðan, tók tölvuna með mér því ég vissi að það yrði rólegt (komu um 10 manns). Notaði tímann til að búa til bannera fyrir þessa síðu.
Related Posts with Thumbnails