7. júlí 2008

Útilega

Ó já, mín fór í útilegu um helgina í tjaldvagninum. Reyndar var það fínt, gat eiginlega ekkert kvartað, nýjar dýnur (mjög góðar), æðislegur svefnpoki, dásamlegt veður og frábært tjaldstæði í Skorradal.
Þessi mynd er uppstillt, Þórunn var ekki vandræðaunglingur í ferðinni.
Þessi lýsir henni betur.
Í heimsókn hjá Sigrúnu Björk og Brandi í Skógarbæ innst í Skorradal. Æðislegur staður, ég er ekki hissa að þeim líði vel þarna.
Systurnar borða nammi, hmm þær eru sennilega ekki að rífast akkúrat þarna!

Sjálfsmynd af fjölskyldunni, vantar bara unglinginn inn á myndina.

Ólöf var ekki lengi að finna sér vinkonur. Þessar búa líka í Grafarvoginum, lítið land!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir kveðjuna. Jújú ég er alveg á haus núna síðustu klukkutímana - pjúff - gangi þér vel í búðarkonuleiknum ;)

e

Related Posts with Thumbnails