Jæja þá eru jólin búin, skiptidagarnir búnir og bara tveir dagar eftir af árinu. Ég þurfti að fara tvær ferðir í bæinn til að skipta jólagjöfum. Í gær gat ég fengið stærri peysu fyrir eiginmanninn (mín misreiknaði aðeins stærðina á honum), fékk inneignarnótu fyrir unglinginn í staðinn fyrir vestið hennar, og stærri peysu fyrir sætu spætuna. Sætan var ekki ánægð með val mitt á nýrri peysu fyrir hana þannig að við þurftum að fara aftur á Laugaveginn til að leyfa henni að velja, og tókum þá jólagjöf eiginmannsins til mín í leiðinni því sú búð var lokuð í gær. Búðin var samt eiginlega tóm eftir jólin þannig að ég fékk inneignarnótu og var sagt að nýjar vörur kæmu í febrúar.
Á morgun er planið að baka eitthvað gómsætt, klára aukavinnuna og kaupa flugelda ...
... já og ég vonast til að hafa tíma í smá ljósmyndarölt. Ekki skil ég hvernig ég á koma vinnunni fyrir þegar hún hefst eftir helgi, það er svo nóg að gera (reyndar sef ég þar til birtir en það getur varla verið ástæðan).
29. desember 2009
27. desember 2009
Jólatónleikar Þórunnar
Jólatónleikar Þórunnar from Jóhanna Höskuldsdóttir on Vimeo.
Jólatónleikar tónskóla Hörpunnar voru í Grafarvogskirkju þann 5. desember sl. Þórunn spilaði eitt lag og stóð sig vel eins og venjulega.
kl.
23:02
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Fjölskyldan
23. desember 2009
Þorláksmessa
Jólatréð var dregið inn í gær og sett í glænýjan og fagran jólatrésfót. Það er almenn fýla á heimilinu með stærðina á trénu, eða réttara sagt smæðina. Ég fékk sem sagt að ráða um þessi jól. Mér finnst nefnilega einstaklega ósmekklegt að vera með hálfan skóginn inni í stofu hjá mér, vil heldur lítið og krúttlegt jólatré. Dvergatréð er samt ekki svo lítið eða milli 170 og 180 cm hátt. Í fyrsta skipti í mörg ár fær engillinn okkar ekki hálsríg vegna nálægðar við loftið.Þorláksmessan í dag. Það þýðir hið árlega skötuboð í hádeginu hjá tengdó. Ég reyndi í mörg ár að spila með í þessum leik, en fyrir nokkrum árum ákvað ég að eyða tíma mínum í eitthvað skemmtilegra og betur lyktandi og hef því farið einn rúnt á Laugaveginum á meðan aðrir í tengdafjölskyldunni háma í sig skötuviðbjóðinn. Í ár breytti ég út af vananum og ákvað að sitja í fýlunni og taka þátt að öllu leyti nema með því að borða skemmda matinn. Mér var ekki boðið sæti við borðið og settist því inn í stofu. Þar maulaði ég á sörum og reyndi að anda í gegnum munninn. Ætli ég fari ekki bara á Laugaveginn að ári.
Merkimiðar:
Fjölskyldan
21. desember 2009
Jólahreingjörningi miðar áfram ...
20. desember 2009
sjónvarp á sunnudagskvöldi
je minn eini hvað hann Alexander Rybak er mikið krútt!
kl.
21:27
Engin ummæli:
11. desember 2009
Bakstur
1. desember 2009
Desember
Jæja þá er desember mættur. Við erum búin að kveikja á jólaljósum úti og aðventuljósinu inni. Þetta er allra besti tíminn í skammdeginu, það er svo gott að fá smá ljós í myrkrið.
Ég er að horfa á prjónadiskinn "Prjónum saman" sem Ragnheiður Eiríksdóttir var að gefa út. Ég get alveg mælt með þessum diski, Ragga gerir þetta allt mjög skemmtilegt.
Nú erum við fjölskyldan að spá í að fá okkur hund. Við erum búin að spá og spekúlera í um mánuð núna og erum mest að spá í tegundina Cavalier King Charles Spaniel, sem er meðalstór (um 5 kg) hundur með ljúft og þægilegt skap, talinn auðveldur sem fyrsti hundur.
Ég er að horfa á prjónadiskinn "Prjónum saman" sem Ragnheiður Eiríksdóttir var að gefa út. Ég get alveg mælt með þessum diski, Ragga gerir þetta allt mjög skemmtilegt.
Nú erum við fjölskyldan að spá í að fá okkur hund. Við erum búin að spá og spekúlera í um mánuð núna og erum mest að spá í tegundina Cavalier King Charles Spaniel, sem er meðalstór (um 5 kg) hundur með ljúft og þægilegt skap, talinn auðveldur sem fyrsti hundur.
kl.
18:20
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
Handavinna
20. nóvember 2009
Myndataka með Emmu
Ég fékk að taka myndir af Emmu litlu í dag, þetta var skemmtileg myndataka og það er greinilega búið að þjálfa hana fyrir myndatöku, hún brosti alveg eftir pöntun.
kl.
19:51
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
Ljósmyndun
19. nóvember 2009
Enginn safnskóli í Grafarvogi!
Horfið hefur verið frá fyrirætlunum um að gera Engjaskóla að safnskóla á unglingastigi. Menntaráð hefur mælst til þess að skólastjórar í norðanverðum Grafarvogi hafi með sér samstarf til að auka fjölbreytni í námi fyrir unglingana.
Það er þungu fargi létt af foreldrum hér í Engjahverfi eins og eflaust mörgum foreldrum í hinum 3 hverfunum.
Það er þungu fargi létt af foreldrum hér í Engjahverfi eins og eflaust mörgum foreldrum í hinum 3 hverfunum.
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
Vinnan
27. október 2009
Bjarni Marel 1 mánaða
Við fórum öll fjölskyldan (og tengdasonurinn) til Söndru og fjölskyldu um síðustu helgi. Tilgangurinn var að taka myndir af nýjasta fjölskyldumeðlimnum í tilefni eins mánaða afmælis hans. Nú er ég að skoða myndirnar og vinna þær aðeins. Set fleiri á Flickr.
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
Ljósmyndun
24. október 2009
Ég og Bjarni
Þarna er pilturinn tveggja daga gamall. Á morgun ætla ég að taka myndir af honum vegna þess að í dag er hann mánaðargamall.
kl.
13:31
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
Ljósmyndun
11. október 2009
Prjóni prjón
Bjarni Marel, ömmustrákurinn minn, kom í heimsókn í dag með mömmu sinni og stóru systur. Hann var svo flott dressaður því hann var að fara í afmæli til frænku sinnar. Hann var í gallabuxum og prjónavesti, algjör gæi ;-) en svo var hann líka í því sem ég prjónaði á hann, peysu, sokkum, húfu og með fína teppið. Það var svo skemmtilegt að fá þau í heimsókn.
Hér sést peysan sem ég er að prjóna á mig. Ég er búin með 200 m af garni, eða 30 sm.Mig vantaði prjóna í stærð 5 og keypti prjóna frá KnitPro í Nálinni. Ég hélt nú að allir prjónar væru svipaðir í notkun en mér finnst þessir æðislega góðir, þeir eru beittari en venjulegir prjónar, og snúran er einhvern vegin liprari.
Næsti fundur í safnskólaumræðunni er á morgun í Víkurskóla kl. 17:30. Ég ætla að fara þangað og líka á miðvikudaginn þegar svoleiðis fundur verður haldinn í Borgaskóla kl. 17:30. Ég missti af fundinum í Korpuskóla, hann var sl. miðvikudag.
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
Handavinna,
Vinnan
8. október 2009
Ný lopapeysa
Ég kláraði þessa peysu á Ólöfu um síðustu helgi og setti rennilásinn í á mánudaginn. Þann dag fékk ég líka sterakrem við exeminu sem ég fæ alltaf í kringum augun þegar ég prjóna úr lopa og er öll skrárri. Nú er ég búin að fitja upp í peysu á mig en svo lofaði ég lækninum að hætta að prjóna úr lopa þegar hún væri búin. Það er óþolandi að vera með ofnæmi fyrir einhverju sem maður hefur gaman af að gera.
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
Handavinna
26. september 2009
Ótrúleg vika

Fimmtudaginn 24. september kom þessi fallegi drengur í heiminn, ömmubarn nr 2 hjá mér. Þetta gekk allt saman vel og öllum heilsast eins og best verður á kosið.Í vikunni var líka mikil togstreita í vinnunni vegna skýrslu sem á að kynna fyrir foreldrum í næstu viku. Hugmyndin er að breyta Engjaskóla í safnskóla á unglingastigi og senda öll litlu börnin okkar yfir Mosaveg ýmist í Borgaskóla eða Víkurskóla. Ég er verulega ósátt við þetta og finnst leyndin sem hefur hvílt yfir þessu með ólíkindum. Ég lít það alvarlegum augum að nokkrir foreldrar (sennilega 4) geti tekið sér það bessaleyfi að rústa tilveru 200 barna í þessu hverfi og öðru eins í næstu hverfum, bara af því að þeirra eigið félagslega hefta barn á í erfiðleikum með að finna sér vini í fámennum skóla. Einfaldasta lausnin fyrir þessa foreldra hefði verið að senda börnin sín í Rimaskóla, þar er mjög stór skóli og "betra" fyrir börnin að finna vini. Einmitt!!!
Fundurinn er í Engjaskóla kl. 17:30 fimmtudaginn 1. október.
Andspyrnuhreyfingin verður sett í gang, það er ekki spurning!!!
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
Vinnan
11. september 2009
Lopavesti
Ég fór í síðustu viku upp í Álafoss í Mosó og keypti léttlopa í vesti handa Ólöfu. Það tók viku að ljúka við þetta litla stykki en nú langar mig að prjóna líka á hana rennda peysu úr sama blaði. Nýja blaðið Lopi 29 frá Ístex er fullt af girnilegum uppskriftum. Mig langar líka að prjóna eina á mig sem er svona sambland af Farmers Market peysunni og þessari í Ístex blaðinu. Ég vona bara að ofnæmið mitt fyrir lopa drepi mig ekki alveg, en ég tók Loritin þegar ég prjónaði vestið og það gekk bara mjög vel.
Hér er það sem ég prjónaði fyrir Söndru og litla ófædda strákinn hennar. Hann hlýtur nú að fara að koma bráðum en hún er sett 15. sept.
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
hagsýni,
Handavinna
20. ágúst 2009
Skólavörur
Þá eru herra og frú Galin búin að versla skólavörur fyrir börnin sín tvö. Ég fór auðvitað í gegnum allar hálfkláraðar og næstum ónotaðar bækur sem til voru á heimilinu og gat notað helling fyrir Þórunni en það var nú minna til fyrir Ólöfu. Við versluðum í Office1 fyrir 5900 kr stílabækur o.fl. fyrir þær báðar í gær og í dag fékk Þórunn að kaupa sér nýja skólatösku og pennaveski sem kostaði samtals um 2000 kr. (RL og Office1). Þarf sennilega að leyfa Ólöfu að velja sér nýtt pennaveski, hennar er orðið ansi sjúskað.
Ég er bara sátt við þessa upphæð, 8000 kr. í skólavörur fyrir tvö börn.
Ég er bara sátt við þessa upphæð, 8000 kr. í skólavörur fyrir tvö börn.
kl.
18:24
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
hagsýni
16. ágúst 2009
Fuglar í hreiðri
Svona lætur Frú Galin 3 kjúklingabringur duga fyrir 4 manna fjölskyldu (það er einn pakki afgangs). Skar hverja bringu í 3 bita, steikti á pönnu, steikti líka sveppi. Pakkaði þessu ásamt sneið af camembert osti inn í smjördeig og allir ánægðir. Nema kannski ég, þetta tók rúman klukkutíma í vinnslu, soldið seinlegt en mjög gott.Uppskriftin er frá Rachel Ray.
kl.
21:00
Engin ummæli:
Merkimiðar:
hagsýni
14. ágúst 2009
10. ágúst 2009
Hagsýna húsmóðirin
Ég er búin að vera að lesa blogsíður síðustu daga. Ég hef verið að kynna mér lífsstíl sem kallast frugality, það þýðir að láta sér nægja lítið, eyða litlu, nýta vel það sem maður á og ekki síst að henda ekki verðmætum eins og mat.
Hér er smá kynning á þessu frá konu í Frakklandi.
Svo eru hér nokkrar blogsíður sem ég hef lesið:
Frugal girl, My year without spending og Frugal chick.
Hér er myndband um neyslusamfélagið eins og það er núna og hvernig það þróaðist frá ca.1950.
The story of stuff
Ég er alveg til í að einfalda líf mitt og spara fé í leiðinni, en það er fín lína á milli þess að vera hagsýnn eða nískur. Hagsýni er góð en níska er ekki góð. Mér líst best á hugtakið frugalista en það þýðir að vera meðvitaður neytandi, spara á sviðum sem skipta mann litlu máli (eins og að venja sig á að slökkva ljós þar sem enginn er) en velja svo vel það sem maður vill eyða í.
Ég hef aldrei þolað að henda mat, og þeir sem hugsa frugal eru líka á móti því. Matarkostnaður er stærsti útgjaldaliðurinn á þessu heimili og því auðveldast að leita leiða þar til að lækka kostnað.
Hér er smá kynning á þessu frá konu í Frakklandi.
Svo eru hér nokkrar blogsíður sem ég hef lesið:
Frugal girl, My year without spending og Frugal chick.
Hér er myndband um neyslusamfélagið eins og það er núna og hvernig það þróaðist frá ca.1950.
The story of stuff
Ég er alveg til í að einfalda líf mitt og spara fé í leiðinni, en það er fín lína á milli þess að vera hagsýnn eða nískur. Hagsýni er góð en níska er ekki góð. Mér líst best á hugtakið frugalista en það þýðir að vera meðvitaður neytandi, spara á sviðum sem skipta mann litlu máli (eins og að venja sig á að slökkva ljós þar sem enginn er) en velja svo vel það sem maður vill eyða í.
Ég hef aldrei þolað að henda mat, og þeir sem hugsa frugal eru líka á móti því. Matarkostnaður er stærsti útgjaldaliðurinn á þessu heimili og því auðveldast að leita leiða þar til að lækka kostnað.
Merkimiðar:
hagsýni,
Umhverfismál
3. ágúst 2009
Verslunarmannahelgin í Svínadal og fleira
Picnic á pallinum í síðustu viku. Guðný og fjölskylda kom og mamma líka. Ég bakaði brauð og bláberjamuffins.
Muffins með bláberjum út í vöktu lukku hjá öllum nema Ólöfu sem fannst eins og það væri sulta í þeim og hún þolir ekki sultu.
Lilja fór í pottinn með Ólöfu, Guðrúnu Maríu og Ástu og líkaði bara vel.
Á laugardaginn fórum við í sumarbústaðinn í Svínadal.
Á sunnudeginum komu Sigurvin, Rúna og börn til okkar.
Við héldum hálfgerða kvöldvöku á sunnudagskvöldið með gítarspili og söng.
Merkimiðar:
Bakstur,
Fjölskyldan,
Ljósmyndun
26. júlí 2009
Ný Photoshop þekking
Í dag lærði ég að nota clipping mask í Photoshop, það er einfaldara en ég hélt og ég sé nú þegar ótal möguleika í notkun. Þetta storyboard er frá coffeeshop (tengill hér hægra megin), litlu rammarnir koma tilbúnir og maður setur inn í þá með clipping mask.Myndin er af sólblómum á pallinum hjá mér. Ég keypti fræ í vor og sáði fyrir þeim í eldhúsglugganum hjá mér, flutti þau svo út þegar fór að hlýna og nú eru þau að blómstra. Í pottinum eru 6 plöntur og það eru nokkrir knúppar á hverri plöntu. Þetta er eitthvað baby afbrigði af sólblómum þannig að þau verða ekki nema um hálfur metri á hæð eða minni.
kl.
22:51
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Tölvumál
24. júlí 2009
Picnic á Selfossi og nágrenni
Miðvikudaginn 22. júlí fórum við í picnic á Selfoss. Við byrjuðum á því að skoða rústir Valhallar á Þingvöllum sem brann 10. júlí s.l. Síðan fórum við á Selfoss þar sem Sandra hitti okkur og skilaði Ólöfu af sér en hún var búin að gista hjá Söndru í 2 nætur. 

kl.
11:25
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Fjölskyldan
19. júlí 2009
Endurvinnsludagur í gær
Ég sló grasið í gær. Takið eftir rósarunnanum mínum við fjarendann á girðingunni.
Fór síðan í Sorpu með:- gras
- dagblöð
- plast
- sléttan pappa
- og bylgjupappa
Svona erum við umhverfisvæn á þessu heimili. Við söfnum líka gleri, rafhlöðum og einnota drykkjarumbúðum. Það var bara ekki kominn tími á að fara með það í gær.

Þetta er rós úr runnanum mínum :-)
Húsmæðraorlofið endaði með hvelli í gær, en þá kom liðið mitt heim frá Ólafsfirði. Það var nú gott að fá þau heim, þó húsmæðraorlofið hafi verið ósköp indælt. Ólöf fór beint til mömmu og gisti þar en Þórunn fékk S vinkonu sína í gistingu til okkar. Þær voru nú svo "elskulegar" að stinga af út um miðnætti með stæl eða með öðrum orðum út um gluggann og komu svo heim aftur um hálftvö. Ég gómaði þær þegar þær skriðu inn um gluggann aftur og þær voru heldur lúpulegar í dag, hehehe.
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
Umhverfismál
15. júlí 2009
Fimmti í húsmæðraorlofi
Þessi er tekin í síðustu viku. Okkur Ólöfu þykir svo gaman að baka muffins.
Picnic í Skallagrímsgarði í Borgarnesi. Við fórum í gróðrastöðina Dalsgerði, í Skallagrímsgarð, í fatabúðir á Akranesi og síðan heim aftur. Góður dagur með góðu fólki.
Merkimiðar:
Bakstur,
Fjölskyldan
5. júlí 2009
Fjölskylduboð
Hér var skemmtilegt matarboð í gærkvöldi. Tvær systur hans tengdapabba sem búa í Bandaríkjunum eru í heimsókn og svo vildi svo vel til að Ninna, Inga og fylgifiskar voru í bænum líka þannig að við buðum þeim í mat. Stebba og Jón Þór komu með flottar skyrtertur í eftirrétt. Þessi hópmynd var tekin við þetta tækifæri.
kl.
14:06
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Fjölskyldan
1. júlí 2009
Dansk er dejlig
Ég var að koma úr búðinni þar sem ég vígði nýju hjólakörfuna mína, var eins og fín dönsk frú, ótrúlega skemmtilegt. Það er einhvern veginn allt svo frábært þegar veðrið er svona ljúft.Við mæðgur skelltum okkur líka á kaffihúsið í Grasagarðinum í hádeginu í dag og hittum þar fullt af flottum skvísum úr E..skóla. Reyndar var ég í Grasagarðinum í gærkvöldi líka í síðasta sumarhittingi Fókusfélaga, það var alveg himneskt, algjört logn og hlýindi með eindæmum. Ég tók fullt af flottum myndum, ótrúlega margar sem heppnuðust vel í gær, nokkrar komnar inn á Flickr síðuna mína.
Annars er mín byrjuð í hlaupaþjálfun! Ó já látið ekki líða yfir ykkur. Elín vinkona mín sagði mér frá frábærri síðu um daginn http://www.c25k.com/ þar sem hægt er að hlaða niður podcasti til að setja í iPodinn og svo er bara einhver hugguleg karlmannsrödd sem segir manni hvenær maður á að hlaupa og hvenær maður á að labba rösklega og undir þessu er tónlist (að vísu ekki alveg eftir mínum smekk, en hvað um það). Það besta við þetta er að þessi huggulegi maður segir mér alltaf reglulega hvað ég sé nú dugleg og frábær að hlaupa svona mikið, og auðvitað trúi ég honum, varla lýgur hann!
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
Hreyfing,
Vinnan
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)






















