11. september 2009

Lopavesti

Ég fór í síðustu viku upp í Álafoss í Mosó og keypti léttlopa í vesti handa Ólöfu. Það tók viku að ljúka við þetta litla stykki en nú langar mig að prjóna líka á hana rennda peysu úr sama blaði. Nýja blaðið Lopi 29 frá Ístex er fullt af girnilegum uppskriftum. Mig langar líka að prjóna eina á mig sem er svona sambland af Farmers Market peysunni og þessari í Ístex blaðinu. Ég vona bara að ofnæmið mitt fyrir lopa drepi mig ekki alveg, en ég tók Loritin þegar ég prjónaði vestið og það gekk bara mjög vel. Hér er það sem ég prjónaði fyrir Söndru og litla ófædda strákinn hennar. Hann hlýtur nú að fara að koma bráðum en hún er sett 15. sept.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta er mjög fallegt allt hjá þér. þú ert bara prjónavél þessa dagana :)
kv
Þuríður Svava

frugalin sagði...

Takk Þura mín, já ég er búin að prjóna óvenjumikið í sumar.

Related Posts with Thumbnails