31. desember 2012

Áramót

Þá er enn eitt árið að kveðja. Árið 2012 hefur bara verið ágætt, auðvitað hafa skipst á skin og skúrir eins og vera ber en það sem stendur upp úr er að í kringum mig er heill hellingur af góðu fólki sem ég nýt að vera nálægt og vonandi nýtur það þess líka að vera nálægt mér. Það er nú ekki mikið meira sem maður getur óskað sér.

Takk fyrir samveruna, megi árið 2013 vera uppfullt af skemmtilegum viðburðum og góðum stundum.

16. desember 2012

þriðja helgi í aðventu

Þriðja og næstsíðasta helgi fyrir jól er búin, samt finnst mér eiginlega að næsta helgi sé jólahelgin, hálfgert svindl þegar jólin lenda svona alveg ofan í helginni. En við fórum af stað með metnaðarfulla dagskrá í gærmorgun þar sem við höfum bara tekið því rólega hingað til, horft á sjónvarpið út í eitt og svoleiðis huggulegheit. Ég hef bara ekki haft orku í meira því nemendur mínir eru orðnir svo spenntir að bíða eftir jólunum að öll mín orka fer í að halda skipulaginu og passa að ekki fari allt úr böndunum. Með góðri hjálp heimilismanna tæmdist listinn næstum því, aðeins tvö atriði eftir í tiltekt og ég náði ekki að fara út í búð. Sæta spætan og ég vorum einar heima á laugardagskvöldið og ákváðum að baka eina smákökusort. Ohh það er svo gott að fá svona gæðastundir með börnunum sínum.

Fjúff, löng og ströng helgi að baki og þá eru bara fjórir kennsludagar eftir!!! Á morgun eru svo tónleikar unglingsins og síðasti tíminn í frönsku. Örfáar jólagjafir eftir en ég er búin að ákveða hvað það á að vera að mestu svo það þarf bara að sækja.

9. desember 2012

Annar sunnudagur í aðventu

Þá er annar sunnudagur í aðventu liðinn. Ég bakaði tvær smákökusortir í gær og gerði brauð í morgun. Svo er búið að kaupa nokkrar jólagjafir. Í næstu viku eru jólatónleikar stelpnanna, held ég. Jólaljósin eru komin upp utan á húsinu, jólasveinninn stendur keikur við útidyrnar og jólaóróarnir hanga í stofunni. Jólaundirbúningurinn mjakast áfram.

3. desember 2012

Aðventan

Þá er aðventan gengin í garð með dimmum dögum og kertaljósum. Jólaskreytingar potast upp með hraða snigilsins, ég skil ekki hvað ég er róleg í þessu þetta árið. Ég hef miklar áhyggjur af því að ég er ekkert farin að baka ennþá, er að vísu búin að baka úr einum pakka úr IKEA en það er nú varla hægt að telja það með. Aðventukransinn er einfaldur þetta árið eins og síðustu ár, er ekki mikil kransatýpa. Ætla samt að búa til einn útikrans úr greni og berjum úr garðinum, komin vika síðan ég keypti grenið!
Dagarnir í vinnunni eru krefjandi svo ekki sé meira sagt þegar skjólstæðingarnir eru að missa sig úr spenningi.
Sæta spætan bað mig að prjóna háa ullarsokka fyrir vetrarskóna sem hana langar að kaupa. Ég var svo heppin að eiga tvær dokkur af jurtalituðu kambgarni frá Hespu og ákvað að prjóna sokkana frá tá og upp til að nýta garnið eins og kostur er. Bláa bandið er hælbandið en ég geri alltaf hælinn eins og þumal.
Svo er ég með þetta sjal á prjónunum og þegar það klárast langar mig að prjóna mér pils, þykkt og gott pils sem hægt er að klæðast utan yfir göngubuxurnar mínar.

4. nóvember 2012

Brauðbakstur

http://www.tipjunkie.com/all-crafts/artisan-bread-recipe/
Ég gerði tilraun 2 til að baka þetta brauð um helgina. Ég var búin að sjá þetta á Pinterest fyrir nokkru síðan og langaði að prófa. Þetta er ótrúlega einfalt brauð og tekur enga stund en biðtíminn er svolítið langur eða 14-20 klst.
1 bolli er u.þ.b. 2,5 dl.

Hér er uppskriftin:
3 bollar hveiti (ég notaði 2 af hveiti og 1 af heilhveiti)
1/4 tsk þurrger
1 1/2 tsk salt
1 1/2 bolli volgt vatn

Þetta er hrært saman í skál með sleif. Það þarf ekki að hræra mikið og þetta lítur ekkert sérstaklega vel út þegar búið er að hræra en það er allt í lagi. Strekkið plastfilmu yfir skálina og látið standa á borði í 14-20 klst.

Næsta dag: Deigið hefur tvöfaldast að stærð, er með loftbólum og lyktar af geri. Hvolfið deiginu úr skálinni á borð með hveiti eða durumhveiti (þetta gula sem fæst í IKEA fyrir pizzurnar). Brjótið deigið saman nokkrum sinnum þar til það líkist kúlu. Takið hreint, vel þvegið viskustykki og stráið durumhveiti og hveiti á það, setjið brauðkúluna á, stráið meira hveiti yfir og lokið með hinum helmingnum af viskustykkinu. Látið standa í tvo tíma. Þegar einn tími er liðin, kveikið á ofninum (230°C) og setjið leirpott með loki inn til að hita hann. Þegar tveir tímar eru liðnir, takið leirpottinn úr ofninum og hvolfið brauðinu ofan í heitan pottinn. Setjið lokið á og bakið í ofninum í 30 mínútur. Takið lokið af og bakið í 10-15 mínútur í viðbót.

Látið kólna í 30-60 mínútur og njótið!

22. október 2012

Haustfrí

Haustfrí í góðu veðri er nú ekki alslæmt. Við mæðgur fórum í keilu í morgun með G litlu systur og hennar börnum. Það er nú huggulegt að vera búin að fá keilusal svona nálægt heimilinu, alveg spurning hvort hann verður ekki notaður nokkrum sinnum í náinni framtíð. Sæta spætan ætlaði nú ekki að þora að taka þátt, hún er alltaf svolítið óörugg þegar hún prófar nýja hluti, er hrædd um að vera léleg. Þetta gekk nú samt alveg ágætlega hjá henni miðað við fyrsta skipti.

Ég er að reyna að vanda mig að fríið (sem er í raun sumarfríið mitt) fari ekki bara í heimilisstörf. Ég þarf að hvíla mig eftir törnina í síðustu viku en þá voru foreldraviðtöl á föstudeginum og svo kosningavinna á laugardeginum. Ætli sé ekki best að læra fyrir frönskuna og prjóna. Nú er ég búin með Selbu húfuna sem ég byrjaði á í lok september sjá, hér á Ravelry. Næst ætla ég að prjóna sjal úr garni sem ég fékk í pakkaleik í prjónaklúbbnum um síðustu jól.

7. október 2012

Haustið



Mikið finnst mér nú helgarfríin yndisleg, jafnvel þó heilu og hálfu dagarnir fari í heimilisstörf og annað ámóta lítið spennandi. Þegar heimilisstörfin voru komin vel á veg í gærmorgun fengum við Tinni okkur göngutúr um Grafarvoginn. Við gengum 5,8 km í yndislegu haustveðri, þurru og sólríku, sem var merkilegt því rétt áður og rétt á eftir göngutúrnum var hellidemba. Nú eru liðnar 6 vikur af skólaárinu og ég er farin að ná andanum. Það er alveg ótrúlega mikill munur að kenna 2. bekk eða 4. bekk eins og ég var með í fyrra. Við höfum t.d. "hellum niður daginn" á næstum hverjum degi í nestistímanum í 2. bekk sem getur verið ansi þreytandi til lengdar.


Ég er að prjóna mér húfu úr mjúku eðalgarni frá Drops, ég er rúmlega hálfnuð með hana og klára hana örugglega mjög fljótlega. Það kom mér á óvart þegar ég fór að setja prjónaverkefnin mín inn á Ravelry hvað ég er búin að gera mikið undanfarin ár. Mér fannst þetta ekki neitt neitt en svo þegar maður safnar þessu á einn stað þá sé ég að ég hef bara verið nokkuð dugleg (klapp á bakið).

29. september 2012

Stuttar legghlífar


Ég kláraði þessar legghlífar nú í byrjun september og hef notað þær nokkrum sinnum. Mér finnst nefnilega flott að vera í grófum sokkum innan undir stígvélum en finnst allt of heitt að vera í heilum sokkum. Þegar ég datt niður á þessa lausn á Pinterest vissi ég að þetta væri næsta verkefni. Uppskriftin er á Ravelry síðunni minni.

27. september 2012

Búin að uppgötva Ravelry


Já ég veit ég er sein að fatta þetta með Ravelry. Nú skoða ég og læt mig dreyma um allt sem mig langar að prjóna og hekla. Ég kláraði grænu peysuna um daginn en sennilega er hún heldur lítil, spurning hvort hún teygist nóg í þvotti til að passa.

4. september 2012

Nýja peysan tilbúin

Nýja peysan er tilbúin, hún kláraðist á fyrsta prjónakaffi vetrarins á laugardaginn. Mér finnst hún hafa heppnast ótrúlega vel og ég ætla að skrifa niður uppskriftina og setja í sölu. Hugmyndin er að við systur stofnum saman síðu á netinu þar sem við getum selt þær uppskriftir sem við erum að bardúsa við í það og það skiptið. Við erum enn að velta fyrir okkur nafni og fleiru sem viðkemur þessu öllu en vonandi er þess ekki langt að bíða að þessi draumur verði að veruleika.

31. ágúst 2012

Síðasti séns


Bara einn póstur kominn í ágúst! Mér finnst það nú ótrúlega lítið og aumingjalegt og ætla að reyna að bæta úr því á síðustu stundu. Nú eru tvær vikur frá því að sumarfríinu dásamlega lauk og alvara lífsins tekin við. Ég ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur því ég tók að mér yndislegan en alveg ótrúlega fjölmennan annan-bekk í vetur. Þetta eru 25 dugleg og mjög mislangt komin sjö ára börn. Ég vona svo sannarlega að mér takist vel upp með þessi börn.

Ég hlakka svo til í fyrramálið þegar prjónakaffið í Ömmu mús byrjar aftur eftir sumarfrí. Það er svo notalegt að sitja í góðra kvenna hóp, spjalla, prjóna og hlusta. Ég verð líka að muna eftir að skila málbandinu sem ég fékk lánað og gleymdi að skila síðast þegar við hittumst í vor.

1. ágúst 2012

Góð tilfinning

Unglingurinn minn ákvað að prófa að flytja að heiman í sumar og leigði sér litla einstaklingsíbúð í næsta hverfi með vinkonu sinni. Þær bjuggu þar í sátt og samlyndi í tvo mánuði í sumar en núna er þessi elska flutt aftur heim og ég verð að segja að það er góð tilfinning. Við skruppum saman í bæinn í dag og enduðum ferðina á kaffihúsi. Mikið er gott að gera eitthvað notalegt með dætrunum, bæði báðum saman og eins í sitthvoru lagi.

30. júlí 2012

ný peysa á leiðinni

Eftir að ég kláraði loksins Textílgarnslána um miðjan júní var næsta verkefni tilbúið en það var peysa úr Hojlandsgarni og Inca Alpaca frá Ömmu mús. Peysan er prjónuð í einu stykki, byrjað á hægri ermi og prjónað lárétt þar til maður er komin niður vinstri ermi. Fyrirmyndin er lítil blá barnapeysa fyrir 3-12 mánaða í Ömmu mús. Ég keypti garnið þar og fékk uppskriftina með fyrir barnapeysunni. Síðan þurfti að gera prjónafestuprufu og finna út hvað ég þyrfti að stækka hana mikið.
Ég byrjaði á peysunni í lok júní og nú mánuði seinna er bara ein ermi eftir. Ég SKAL klára hana áður en ég byrja að vinna 13. ágúst.
Næsta verkefni er svo að klára grænu peysuna en það er peysa sem ég byrjaði á fyrir 6 árum!!!

21. júlí 2012

Esjan

Skellti mér á Esjuna í fyrsta skipti ever í vikunni. S vinkona mín var svo elskuleg að draga mig með sér og stóð sig eins og hetja að hvetja okkur mæðgur áfram. Við vorum fjögur sem fórum á fjallið, S, ég, sæta spæta og hundurinn Tinni.




Samkvæmt Endomondo var þetta 595 m hækkun, tók 2 tíma og 45 mínútur og leiðin var 6,16 km. Þegar við komum upp að Steini skall á svarta þoka sem létti um leið og við lögðum af stað niður aftur. Myndirnar eru í boði S vinkonu en hún var svo sniðug að koma með myndavél.

29. júní 2012

Aftur til hversdagsleikans

create animated gif
how do you make a gif at gickr.com
Ég kom heim úr húsmæðraorlofinu mínu til Ítalíu aðfararnótt þriðjudags. Ferðin var einu orði sagt dásamleg. Staðurinn sem við gistum flestar nætur á, lítið 300 manna fjallaþorp, Corfino, var eins og klipptur út úr póstkorti. Litlar götur, falleg hús, blóm alls staðar, yndislegt fólk. Hópurinn sem fór í þessa ferð var einstaklega vel samsettur og skemmtilegur en eins og allir vita er það ekki sjálfgefið.


 Þetta er umferðargata, maður þurfti að stökkva inn í dyragætt til að hleypa framhjá.
Þvottasnúrurnar voru almennt utan á húsunum og þar var engin feimni, stórar ömmunærur héngu við hliðina á handklæðum og borðdúkum.

how to make a gif

Þetta er aðalfjallið, Pania di Corfino. Þorpið er í 840 m hæð yfir sjávarmáli og fjallið er annað eins. Við fórum ekki upp á efsta toppinn heldur í gegnum skarðið sem örin bendir á. Þetta var 10 km leið sem tók okkur um 5 klst með klukkutíma stoppi á barnum þarna upp (sem var því miður ekki opinn), hækkunin var um 600 m.
Í lok ferðarinnar tókum við E lest til Pisa og kíktum á skakka turninn. Það var stórkostleg upplifun. Turninn var stærri, marmarinn hvítari og hallinn meiri en ég hafði gert mér í hugarlund. Þá hefur enn eitt atriði bæst á listann hjá mér yfir merkilega staði í útlöndum sem ég hef séð með eigin augum. 
  • San Marino smáríkið á Ítalíu, 1987.
  • Feneyjar, Ítalíu, 1987 og 2000.
  • Akropolis hæð í Aþenu, Grikklandi, 1990.
  • Uffici safnið í Flórens, Ítalíu, 2000.
  • Stonehenge, Bretlandi, 2003.
  • Skakki turninn í Pisa, Ítalíu, 2012
Það er spurning hvað verður næst, mig langar að sjá Eiffel turninn í París, Frelsisstyttuna í NY og örugglega margt fleira.

Ferðin var sem sagt mögnuð upplifun og kemst engan veginn fyrir í þessum pósti. Hversdagsleikinn skall hins vegar harkalega á þegar heim kom, þrif, eldamennska, þvottur og annað slíkt sem tilheyrir heimilishaldi. En ég get yljað mér við minningar um hrikalega skemmtilega ferð.

13. júní 2012

Textílgarnssláin tilbúin

Ég var að klára að prjóna textílgarnsslána mína, júhú. Ég er svo hræðilega lengi að prjóna (mest út af því að ég hangi öll kvöld í tölvunni í stað þess að nota tímann til að prjóna), ég byrjaði á þessari einföldu flík í ágúst í fyrra þegar prjónaklúbburinn minn fór á kynningu á Textíl-garni en það er lítið heimafyrirtæki sem selur gæðagarn á góðu verði. Ég notaði prjónamerki til að ég þyrfti ekki að telja á milli í úrtökunum og var svo snjöll að gleyma að taka eitt úr þegar ég var komin að hálsmálinu. Mér finnst það samt svolítið flott og er að spá í að hafa bara merkið þarna.

Nú eru aðeins örfáir sólarhringar í Ítalíuferðina mína og ég að verða heldur betur spennt. Búin að skoða veðurspána fyrir svæðið og það spáir um 30°C hita og sólskini flest alla dagana, sem er svona í það heitasta fyrir minn smekk en þar sem við verðum uppi í fjöllum mest allan tímann vona ég að þetta verði bærilegt.

Sumarfríið mitt langþráða hófst um hádegi í gær og svo byrja ég aftur að vinna 12. ágúst þannig að framundan eru tveir heilir dásamlegir mánuðir sem verða örugglega notaðir í einhver skemmtileg verkefni.

9. júní 2012

Hattur

Þennan hatt keypti ég fyrir mörgum árum í tilefni af einhverri vorferðinni í vinnunni. Hann er barðastór og léttur og gæti því verið upplagður fyrir Ítalíuferðina.

Nú hefur unglingurinn ákveðið að prófa að flytja að heiman og hefur tekið holu á leigu ásamt vinkonu sinni. Þetta verður lærdómsríkt fyrir þær að prófa að reka heimili þó í mini útgáfu sé. Á meðan nota ég tækifærið og þríf unglingaherbergið sem veitir sko ekki af því unglingurinn hefur séð um þrif (eða ekki) þar inni sjálf nú í nokkur ár.

2. júní 2012

Mynd á dag í júní

Nú er ég að byrja þriðja mánuðinn í ljósmyndaverkefninu "mynd á dag" sem áströlsk kona stendur fyrir. Ég byrjaði á þessu 1. apríl og náði að taka allar myndirnar í hverjum mánuði þó þær væru ekki allar teknar á réttum degi, ég var þó aldrei meira en þremur dögum of sein. Myndirnar má skoða í albúmum inn á Flickr síðunni minni.

Þema dagsins í dag er "empty". Morguninn fór í að taka til, þrífa og þvo þvotta. Það er alltaf gott þegar snúrurnar eru tómar en þær fyllast þó ótrúlega fljótt aftur. Kvöldið fer síðan í að fara yfir próf, ég er alveg að verða búin að fara yfir íslenskuprófið en á allt stærðfræðiprófið eftir.

Aðeins rúmar tvær vikur í dásamlegu Ítalíuferðina mína og E vinkonu. Ég var búin að leita í 5 búðum að góðum gönguskóm sem kosta ekki hálfan handlegg en gekk lítið fyrr en ég fór í nýju íþróttabúðina á Smáratorgi í vikunni. Þar fékk ég fína gönguskó, létta og góða sem passa fyrir innleggin mín á kr. 3990. Sem er auðvitað grín því skórnir sem ég var búin að skoða kostuðu frá 19900 - 38000 kr. Ég er líka búin að kaupa moskító fælu og sólarvörn, teygjubindi og hælsærisplástra. Hatturinn hins vegar vefst aðeins fyrir mér því mér verður alltaf svo heitt með höfuðfat. Stuttbuxurnar passa ennþá svo þetta er allt að smella saman.

9. maí 2012

Hrökkbrauð

Ég fékk þessa uppskrift að hrökkbrauði frá Svölu vinkonu minni í haust en kom því aldrei í verk að baka fyrr en núna fyrir nokkrum dögum. Þetta er afskaplega einföld og góð uppskrift, bráðholl auðvitað og fljótleg.
  • 1 dl sólblómafræ
  • 1 dl graskersfræ
  • 1 dl hörfræ
  • 1 dl sesamfræ
  • 1 dl gróft haframjöl
  • 3 1/2 dl heilhveiti/spelt
  • 1 1/4 dl olía
  • 2 dl vatn
  • 2 tsk salt


Öllu blandað saman í skál og hrært í með sleif. Ég set bara eina tsk af salti í deigið og geymi hina til að mylja yfir þegar ég er búin að fletja þetta út.
Deiginu skipt í tvennt og flatt út á milli tveggja bökunarpappíra.
Síðan á að skera í deigið með pizzahníf eða kleinujárni til að fá hrökkbrauðið fallegt í laginu en ég gleymdi því auðvitað í hita leiksins og skar í lengjur í staðinn um leið og þetta kom úr ofninum. Hér set ég hina tsk af saltinu yfir.
Bakað í 200°C heitum ofni í um 20 mínútur.
Fallegt, ekki satt? og bragðgott. Meira að segja sæta spætan sem lætur nú yfirleitt ekkert hollt sleppa inn fyrir sínar varir er æst í þetta hrökkbrauð.

4. maí 2012

Total makeover hjá sætu spætu

Við byrjuðum að taka herbergi sætu spætunnar í gegn um páskana. Ég var nú smá upptekin við að klára margmiðlunarnámið þannig að ég kláraði ekki að mála húsgögnin fyrr en núna í vikunni. Við seldum Tromsö háa rúmið hennar með skrifborði undir og keyptum krúttlegt hvítt Ikea járnrúm í staðinn og gamalt furuskrifborð.


Sú sæta vildi endilega mála skrifborðið fjólublátt en þar sem mér finnst fjólublátt vera ljótasti litur í heimi, sagði ég við hana að það væri of mikil vinna að mála skrifborðið upp á nýtt þegar hún fengi leið á fjólubláa litnum og sagðist ætla að mála litlu skúffurnar fjólubláar og keypti svo krúttlegar höldur í Snúðum og snældu.





Ég verð nú að segja að þrátt fyrir fjólubláa litinn þá finnst mér þetta bara vel heppnað makeover. Og ekki nóg með það heldur var þetta svolítið grænt makeover þar sem við keyptum "nýju" húsgögnin notuð. Við komum nokkurn vegin út á sléttu svo ekki er hægt að kvarta yfir kostnaði.
Related Posts with Thumbnails