2. júní 2012

Mynd á dag í júní

Nú er ég að byrja þriðja mánuðinn í ljósmyndaverkefninu "mynd á dag" sem áströlsk kona stendur fyrir. Ég byrjaði á þessu 1. apríl og náði að taka allar myndirnar í hverjum mánuði þó þær væru ekki allar teknar á réttum degi, ég var þó aldrei meira en þremur dögum of sein. Myndirnar má skoða í albúmum inn á Flickr síðunni minni.

Þema dagsins í dag er "empty". Morguninn fór í að taka til, þrífa og þvo þvotta. Það er alltaf gott þegar snúrurnar eru tómar en þær fyllast þó ótrúlega fljótt aftur. Kvöldið fer síðan í að fara yfir próf, ég er alveg að verða búin að fara yfir íslenskuprófið en á allt stærðfræðiprófið eftir.

Aðeins rúmar tvær vikur í dásamlegu Ítalíuferðina mína og E vinkonu. Ég var búin að leita í 5 búðum að góðum gönguskóm sem kosta ekki hálfan handlegg en gekk lítið fyrr en ég fór í nýju íþróttabúðina á Smáratorgi í vikunni. Þar fékk ég fína gönguskó, létta og góða sem passa fyrir innleggin mín á kr. 3990. Sem er auðvitað grín því skórnir sem ég var búin að skoða kostuðu frá 19900 - 38000 kr. Ég er líka búin að kaupa moskító fælu og sólarvörn, teygjubindi og hælsærisplástra. Hatturinn hins vegar vefst aðeins fyrir mér því mér verður alltaf svo heitt með höfuðfat. Stuttbuxurnar passa ennþá svo þetta er allt að smella saman.

4 ummæli:

e sagði...

oooh ætlaði einmitt að segja þér að ég er búin að kaupa moskítófæluna og afterbætið.....óþarfi að vera báðar með það hahahaha ;)
gönguskórnir eru líka að vefjast fyrir mér....geturðu sent mér mynd af skónum sem þú keyptir og hvað þeir heita...ég þarf einmitt að borga báða handleggi og tær fyrir gönguskó
hattahelv.....mér er alltaf heitt á hausnum og ef það fer eitthvað á hausinn á mér þá er það húfa í 20 stiga frosti
-kippi ábyggilega með einni derhúfu frá strákunum....

Nafnlaus sagði...

Langar að vita hvar þú fékkst flotta diskinn með doppunum? R

stina sæm sagði...

Ég rakst á þessa ljósmyndaáskorun um daginn. Það kítlaði dáldið að vera með núna í júni þó ég sé kvorki með flickr né instagram (sem virðist vera mest notað í þetta) var að spá í að deila bara á blogginu eða fb... eða bæði :)En sá þetta fremur seint. Er þetta ekki dáldið gaman? kallar á að hafa augun og hugann opin fyrir rétta myndefninu og bara smella.
Ætla að kikja á safnið þitt.
kv Stína

frugalin sagði...

Ég var í heimsókn þar sem doppótti diskurinn átti heima og spurði ekki hvar hann fékkst.

Stína, mér finnst þetta ljósmyndaverkefni voða skemmtilegt, ég er samt ekkert að stressa mig mikið á því að setja eða taka myndirnar nákvæmlega á réttum degi, ég reyni þó að vera ekki meira en þremur dögum of sein. Ég var orðin svo löt með myndavélina að þetta verkefni ýtti mér af stað. Það er hópur á fb sem hægt er að setja myndirnar í.
http://www.facebook.com/groups/209121522537743/
Gangi þér vel.

Related Posts with Thumbnails