29. desember 2013

fimmti

Þá er aðventan frá og öll jólaboðin líka. Eftir eru nokkrir frídagar fyrir prjónaskap og rólegheit. Búin að skipta því sem þurfti að skipta, sem var nú reyndar ekki mikið. Hér komu 3 diskar af "Mamma þarf að djamma" upp úr pökkunum og jólaórói Georg Jensen sem við erum ekki að safna. Þessu var því skipt í annað notadrýgra.
Sjalið á myndinni er ég að prjóna í annað sinn en fyrri útgáfuna rakti ég upp því uppskriftin passaði ekki alveg við garnið sem ég nota.

22. desember 2013

fjórði

Heimasætan útskrifaðist með pompi og pragt á föstudaginn. Hún fékk meira að segja verðlaun! Fyrir afburða árangur í ensku. Við erum svo stolt af henni að það hálfa væri nóg. Eftir áramót ætlar hún svo að hefja nám í ensku við HÍ og eftir það í eðlisfræði. Veislan heppnaðist alveg frábærlega en við vorum með opið hús fyrir nánustu ættingja og vini. Við buðum upp á súpu og brauð og svo voru sætir molar og kaffi í eftirrétt. Seinna um kvöldið var svo örlítið pottapartý hjá unga fólkinu. Við keyptum aðeins of mikið af brauði með súpunni og daginn eftir voru vangaveltur um hvað ætti að gera við afganginn. Frysta eða gefa smáfuglunum? Allt í einu datt mér í hug að búa til brauðteninga eins og samstarfskona mín í vinnunni gerir. "How to make croutons" var jútúbað og árangurinn lét ekki á sér standa.
 Ég setti svona 1-3 tsk af hverju eftir smekk.

 Slatta af góðri ólívuolíu og annað eins af ISIO4 olíu.

 Hrærði vel saman.
 Bakaði í ofni við 180°C í um 20 mínútur. Hrærði einu sinni í þegar tíminn var hálfnaður.
 Út komu þessir dásamlega ljúffengu og stökku teningar sem smellpassa með súpu eða í salatið.
Jólaundirbúningurinn miðaðist að mestu við stúdentsveisluna en daginn eftir var tekinn algjör power shopping dagur og næstum allar jólagjafir keyptar á um þremur tímum. Núna tveimur dögum fyrir jól er allt tilbúið nema auðvitað að sópa hundahárin upp úr gólfinu (daglega) og skipta á rúmunum.

15. desember 2013

þriðji

Þriðji sunnudagur aðventu að kvöldi kominn, allir sofnaðir og kyrrð og ró yfir mér og friends sem rúlla í sjónvarpinu. Í dag var merkilegur dagur, litla óskastjarnan, þriðja ömmubarnið mitt fékk nafnið sitt. Heimasætan og kærastinn sungu í kirkjunni og tókst það líka svona ljómandi vel. Hvernig er hægt annað en að dást að þessu unga, hæfileikaríka fólki. 
Mágkona mín og bróðir eignuðust dóttur í kvöld. Mágkona mín á líka afmæli í dag svo hún fékk risastóra afmælisgjöf þetta árið. Ég hlakka til að hitta nýju frænku mína á morgun.
Veðrið hefur verið svo fallegt og jólalegt undanfarið, það snjóar í logni og alls staðar er umhverfið eins og á póstkorti, drifhvítur snjór yfir öllu, stillt veður og dásamlegt. Nú nálgast útskrift heimasætunnar óðfluga, undirbúningurinn mjakast áfram. Þetta gengur allt saman þegar allir hjálpast að.

8. desember 2013

annar

 Annar sunnudagur í aðventu. Helgin hefur farið í tiltekt og fyrstu jólagjafirnar voru keyptar. Eldhúsið var tekið í gegn, þrifið og skreytt og ég er bara mjög ánægð með afraksturinn.
Undirbúningur fyrir stúdentsfagnað er í fullum gangi, heimasætan er samt ótrúlega róleg yfir þessu öllu saman, er enn í prófum, á fullu í vinnu og tónlistinni, svo það er nóg að gera hjá henni.
Jólakúlur, piparkökur og hekluð snjókorn, bara krúttlegt.

1. desember 2013

fyrsti

Fyrsti sunnudagur í aðventu hefur farið í laufabrauðsgerð og piparkökumálun með fjölskyldunni minni. Ég gerði smá laufabrauðsvideo í dag og er búin að klippa það og það er að hlaðast inn á Vimeo, as we speak.
Við erum byrjuð að undirbúa jólin. Það er búið að kveikja á seríunni utan á húsinu, setja upp einfaldan aðventukrans, ná í jólaskrautið og komast í jólagírinn. Við þurfum að gera allt voða fínt því heimasætan ætlar að skarta stúdentshúfu fyrir jólin, dugnaðarforkurinn sem hún er.
Ég er nú komin aðeins lengra með sængurgjöfina fyrir litlu bróðurdóttur mína en vil ekki sýna meira eins og er. Þarf samt að fara að drífa mig að klára því það er von á barninu innan tveggja vikna.

11. nóvember 2013

hausthandavinna

 Litla Óskastjarna í knúsutíma hjá ömmu sinni.

 Úr þessu garni verður peysa á mig, ég þarf samt fyrst að klára þessi þrjú verkefni sem eru á prjónunum nú þegar.
Er að prjóna úr þessu garni núna.

22. september 2013

myndir

 Vaskur hópur kennara og maka að leggja í hann.



 Við mættum þessu prjónanámskeiði fljótlega eftir að ferðin hófst.






Mesta afrek sumarsins var klárlega ganga yfir Fimmvörðuháls um miðjan ágúst. Ferðin var skipulögð af  Kennarafélagi Reykjavíkur og það voru 36 galvaskir kennarar og makar sem gengu í 11 tíma yfir hálsinn, 26 km leið. Ferðin var erfið en gefandi á margan hátt, mér fannst frábært að ég skildi komast þetta en ég hafði ekki verið neitt sérstaklega dugleg að æfa mig áður en ég fór í ferðina. Veðrið sem við fengum var allskonar, sól, hiti, rigning, kuldi og slydda en logn allan tímann. Ég var sérstaklega ánægð með að fá ekki eina einustu blöðru eftir alla þessa gönguDaginn eftir leið mér skringilega, ég var auðvitað dösuð eftir alla áreynsluna en tilfinningin var eiginlega eins og ég væri timbruð.



Nokkrum dögum seinna fór ég ásamt vinkonu minni út í Viðey að tína kúmen. Við tókum bátinn snemma eða kl. 17:15, tíndum í klukkutíma og tókum bátinn til baka um 18:30. Þegar heim var komið tók við nokkur vinna að þurrka kúmenið og tína það af stönglunum. Sæta spætan og vinkona hennar sáu um mesta puðið við eftirvinnuna. Úr þessu kúmeni er búið að hella upp á kaffi og baka brauð. Næst langar mig að prófa að gera kúmenpönnukökur.
Við erum nú búin að vera nokkuð dugleg í höndunum í sumar en sæta spætan heklaði þennan stóra og glæsilega púða úr afgöngunum mínum og fékk svo að setja bak í hann hjá bestu frænku, handavinnukennaranum sínum.

 Herra Galinn smíðaði þetta krúttlega rúm fyrir nýjasta afabarnið sitt.
 Sæta spætan prjónaði húfur eins og enginn væri morgundagurinn í textílmennt í skólanum. Hún náði að gera tvær húfur á meðan margir af bekkjarfélögum hennar náðu ekki einu sinni að gera eina. Þetta er fyrri húfan sem hún gaf frænku sinni í afmælisgjöf, seinni húfuna gaf hún svo stóru systur sinni.

 Ég hélt áfram með dagatalssjalið en það er úr lítilli bók frá Isager sem er líka dagatal fyrir árið 2013.

 Góð nýting á afgangsgarni.
Þarna sést sæta spætan og púðinn góði.
Árlega heldur fjölskylda herra Galins golfmót. Eftir golfmótið sem er púttmót er haldin grillveisla og þetta árið var veislan heima hjá okkur. Sæta spætan hefur sjaldan viljað taka þátt en þetta árið gerði hún það og lenti í fyrsta sæti og fékk farandbikar að launum.

Heimasætan tók þátt í busun í framhaldsskólanum sínum og var hópstjóri sem stjórnaði aðgerðum við að busa nýju krakkana. Hún er alveg á síðustu metrunum í náminu, útskrifast líklega um jólin.
Merkilegust af öllu var samt litla stúlkan sem lét aðeins bíða eftir sér og gerði okkur hjónakornin að afa og ömmu í þriðja sinn. Dásamlega falleg og vel gerð og ég hlakka til að kynnast henni.

Stoltir foreldrar á leiðinni heim af fæðingardeildinni.
Peysan sem ég prjónaði, ásamt húfu og vettlingum.


Stóra systir passar hana vel.
Related Posts with Thumbnails