29. nóvember 2010
Jólaverkin
Nú er ég að byrja á dagatölunum sem ég geri alltaf fyrir hver jól. Ég er búin að nota Publisher í þetta verkefni nú í nokkur ár, en publisher er einfalt og fljótlegt í svona vinnslu og maður getur breytt öllu sem maður vill breyta. Ég hugsa að ég noti prentþjónustuna hjá jola.is en þar pantaði ég jólakortin eftir vandlega verðathugun á netinu. Kortin komu í dag og ég er bara mjög ánægð með þau, fallegur frágangur og góð litvinnsla.
kl.
22:12
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
Heimilið,
Ljósmyndun,
Tölvumál
24. nóvember 2010
Logn
Fór út að ganga með hundinn áðan í æðislegu veðri. Uppáhaldsveðrið mitt er logn, uppáhaldsskapið mitt er logn, uppáhaldsfélagsskapurinn minn er logn. Ég held að ég sé ekki mikil félagsvera frekar svona einvera. Það er eitthvað svo mikill erill í vinnunni þessa dagana, börnin hávær, hávaði á kaffistofunni o.s.frv. sem minnir mig á það að það eru bara 17 kennsludagar eftir fram að jólafríi.
Tók þessa mynd fyrr í haust í Fókusrölti við Álafoss. Langar að fara aftur þangað, þetta er algjör perla, svo fallegt þarna. Við ætlum að halda jólafund SPK á kaffihúsinu við Álafoss núna fljótlega, er að vinna í því að finna góðan dag.

20:58
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Hreyfing,
Hundahald,
Ljósmyndun,
Vinnan
21. nóvember 2010
Nýr matseðill
Ég sá þessa hugmynd á einhverri blogsíðu núna um daginn, get engan vegin munað hvaða, nema þar hafði konan notað járnbökunarbakka sem bakgrunn og svo sett segul aftan á miðana. Ég hugsaði með mér að ég myndi vera í vandræðum með að finna stað fyrir bakkann, þannig að ég ákvað að minn matseðill færi beint á ísskápinn. Einfalt, ekki satt? Ég gerði auðvitað fullt fullt af miðum.
Á miðvikudaginn var alveg geggjuð þoka úti svo ég ákvað eftir þemadag nr. 2 að taka smá pásu áður en kennarafundurinn byrjaði og skjótast og taka myndir af þokunni. Ég fór nú ekki langt en var fegin að ég brá mér aðeins frá því ég var eins og sprungin blaðra eftir daginn.
19. nóvember 2010
Gjafabréf
Þá er erfiðri viku í skólanum lokið. Það er alveg með ólíkindum hvað þemavikur taka á! Ég var eins og undin tuska eftir þessa þrjá daga, samt var meirihlutinn af börnunum sem rann í gegn hjá mér ljúfir og yndislegir unglingar en það er þessir fáu óhefluðu (lesist leiðinlegu) sem setja strik í reikninginn.
Herra Galin hringdi í mig rétt áður en ég kom heim úr aukavinnunni í dag og sagði að við hefðum fengið glaðning frá TM vegna þess að við leyfðum þeim að nota innbrotssöguna okkar í auglýsingu (þessi með rottunum). Ég spenntist auðvitað upp og gerði mér von um huggulega stund með bóndanum. Þegar ég kom heim og opnaði umslagið varð ég heldur betur fyrir vonbrigðum, í umslaginu var gjafabréf á leiksýningu að eigin vali sem sýnd er í landnámssetrinu í Borgarnesi ásamt leikhúshlaðborði. Frábært ... ehh NEI. Ég hef ekki áhuga á að horfa á leiksýningu um Egil Skallagrímsson! hvað þá að keyra langar leiðir til þess! Arrrgg
Svona er maður vanþakklátur ;-)Nú þarf að fara að skrifa TO DO lista fyrir jólin, best að byrja:
búa til jólakortin(pantaði hjá jola.is)prenta jólakortin(prentað hjá jola.is)baka(búin að baka 3 sortir)senda jólakortinbúa til dagatölinfá myndir frá systkinum mínum fyrir dagatalið fyrir ömmu og afaklára lokaverkefnið mitt í kvikmyndaáfanganum í BHSþrífa og taka tilmmmm baka meira ...klára myndvinnslu fyrir Söndruklára ævintýrablað fyrir Söndru- kaupa jólagjafir (bara 3 eftir)
- fara notalega bæjarferð með kaffihúsi o.fl.
skipuleggja jólahitting SPK á kaffihúsinu við Álafoss(geggjað kaffihús)jólaföndur foreldrafélagsins(mætum ekki, fimleikasýning ÓH á sama tíma)laufabrauðiðtónleikar með Þórunnifimleikasprell með Ólöfu- ... og kannski baka aðeins meira
finna skipulagið á fjölskylduboðinu á annan í jólumsetja upp seríurkúra og horfa á National Lampoons Christmas Vacation með fjölskyldunni
Gott að skrifa svona niður, þá kemst vonandi eitthvað af þessu í verk.
15. nóvember 2010
Ljúfur laugardagur
Dekurdagur fyrir mig á laugardaginn! Jú jú það gerðist, byrjaði daginn á prjónakaffi í Nálinni - skemmtilegur félagsskapur kátra myndarlegra kvenna, fór síðan í bæinn - var að leita að jólagjöfum fyrir dæturnar fyrir tengdó, endaði síðan daginn á skemmtilegri myndlistarsýningu í Hafnarhúsinu en þar var verið að opna sýningu á verkum barna í 7. og 8. bekk í anda Errós. Skemmst er frá því að segja að tveir nemendur í skólanum mínum gerðu það gott á þessari sýningu, svo flottir nemendur í skólanum mínum og ekki síðri kennarar.
Ég lagði litla vörtusvíninu við Ráðhúsið og stillti bílastæðaklukkuna (því ég er á svo umhverfisvænum bíl) og þegar ég kom til baka hafði annar trítill troðið sér í sama stæði - bílastæðavandi miðborgarinnar hvað!!!
Um kvöldið eldaði svo herra Galinn frábæran kvöldverð, humarsúpu og silung í forrétt og fiskrétt í ofni í aðalrétt, mmmm dásamlega gott. Kvöldinu var síðan eytt með fjölskyldunni fyrir framan sjónvarpið við misgóða dagskrá RÚV.

19:54
Engin ummæli:
Merkimiðar:
Akstur,
Fjölskyldan,
Umhverfismál,
Vinnan
1. nóvember 2010
Rómantík
Við fórum í Ráðhúsið um helgina að skoða sýninguna Handverk og hönnun. Sýningin í ár var einstaklega falleg og margt sem ég hefði viljað eiga. Ég keypti filmu í glugga frá Svartfugli sem ég er búin að setja í baðgluggann og það kemur alveg svakalega vel út. Ég á slatta eftir af svona filmum, það voru margar greinar á blaðinu, þannig að ég á örugglega eftir að setja þetta í fleiri glugga, svona þegar þeir verða orðnir hvítir.
Ef allt húsið væri eins krúttlegt og litla baðið þá væri það nú flott. Þetta kemur allt með kalda vatninu.
Hundkvikindið fylgir mér eins og skugginn, hér er hann að bíða á meðan ég tek myndir af baðinu. Ósköp ljúfur þessi elska.
Gott kaffi í fallegum bolla og jólasmákökur með, getur ekki orðið miklu betra.
Smá stemning á pallinum, alltaf svo gott þegar er logn úti. Reyndar finnst mér allt í lagi að heyra gnauðið í vindinum ef ég þarf ekki að fara út.
Mér finnst þessi kertastjaki sem ég keypti fyrir mörgum árum af samstarfskonu minni alltaf jafnfallegur, þar fyrir innan er engill sem Þórunn gerði þegar hún var í 3. bekk og er líka í uppáhaldi.
Við Ólöf erum búnar að taka fyrstu umferð í jólasmákökum, mig klæjar í fingurna að halda áfram, haustmyrkur og jólasmákökubakstur er einstaklega ljúft.

haust vetur
rómantík snjór kuldi
myrkur jólaljós ylur
ljós fallegt ró
birta friður
ást
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)