28. ágúst 2011

Skottmarkaður - nei þetta er ekki um gæludýr

Við systur tókum þá í skottmarkaði á hverfahátíð miðborgar og Hlíða nú um helgina. Við vorum með alls konar dót, bæði föt og leikföng. Það var nú engin rífandi sala en það sem var vinsælast voru alls konar smáhlutir, bílar og pezkallar o.s.frv. En ... það sem var nú aðalmálið var að Ólöf og frænka hennar voru með naglalakksbás og tóku að sér að lakka neglur á þeim sem það vildu. Þetta byrjaði nú hægt vegna þess að fólk áttaði sig ekki á því hvað var boðið upp á en loksins þegar röðin byrjaði þá var tíminn eiginlega búinn þannig að við þurftum að vísa nokkrum viðskiptavinum frá í lokin.
Ólöf gerði prufu á mig og sjálfa sig til að sýna möguleikana. Hún er nú orðin ansi fær í þessu og í lokin þegar við vorum að reyna að afgreiða röðina á sem stystum tíma var ég aðstoðarkona og sá um að þrífa áhöldin.
Hún hafði mjög gaman af þessu og ekki skemmdi fyrir að hún vann sér inn smá aura með þessu uppátæki.
Hundurinn heldur víst að hann eigi líka að læra heima, hann stal a.m.k. blýanti um daginn og nagaði hann ótrúlega ánægður og var ekki til í að láta mig hafa hann, ég þurfti að elta hann alla leið út í bílskúr áður en kvikyndið gafst upp.

4. ágúst 2011

Síðustu dagar sumarfrísins

Jæja þá er sumarfríið að verða búið þetta árið. Ég hef nú ekki farið mikið út úr bænum enda alltaf best að vera heima. Vikuferð til Spánar í byrjun júní með vinnunni var góð viðbót við íslenska sumarið og svo tímdi ég nú ekkert að fara úr blíðunni hér í Reykjavík til að heimsækja norðurlandið með sínar 6°C. En um verslunarmannahelgina dró unglingurinn okkur á fjölskylduhátíð í Vatnaskógi sem var bara fínt þó veðráttan hafi verið heldur rök. Hundkvikyndið skemmti sér mjög vel og þau voru þreytt, börn og hundur þegar við komum heim aftur.

Ég hef nú ekki bara verið í fríi, maður fær ekki frí frá heimilisstörfunum auðvitað og svo hef ég líka verið dugleg að skoða skemmtileg amerísk kennslublogg á netinu í sumar þar sem ég hef fengið fullt af hugmyndum fyrir kennsluna næsta vetur, en ég á að taka við fjórða bekk. Ég ákvað að herma eftir amerísku súperkennurunum og stofnaði nýtt blogg sem verður bara um kennsluhugmyndir, mest auðvitað fyrir fjórða bekk, út af sottlu ;-) Bloggið heitir Kennslukonan.

Nú þarf að fara að huga að to-do lista sem þarf að komast í framkvæmd áður en starfsdagarnir hefjast.
Related Posts with Thumbnails