31. desember 2010

Síðasta blogfærsla ársins

Nú árið er liðið (eða næstum því) og tími til komin að senda síðasta bloggið út á þessu ári. Jólin liðu í rólegheitum með góðu fólki og góðum mat, alveg eins og lög gera ráð fyrir. Við fengum margar fallegar gjafir og þökkum kærlega fyrir okkur.
Við gáfum Tinna engan pakka en pössuðum að hann fengi langa og góða göngutúra þessa jóladaga og svo fékk hann auðvitað að smakka á jólasteikinni, bæði kalkún og hangikjöti sem honum leiddist nú ekki. Hann fékk samt tvo pakka, báðir innihéldu þeir góðgæti sem hann var mjög spenntur fyrir.
Þetta var svipurinn á sætu spætunni þegar hún opnaði pakkann frá okkur og augnabliki síðar var ég í kremjuknúsi með myndavélina fasta við andlitið.
Á jóladag fórum við til tengdafjölskyldu minnar í jólaboð og hittum alla ættingjana, borðuðum góðan mat og hlógum og skemmtum okkur. Á annan í jólum var svo jólaboðið hjá minni fjölskyldu og sagan endurtók sig, góður matur og góður félagsskapur.
Inn á milli jólaboða, skemmtana og huggulegheita þarf svo að þrífa og taka til (lesist sópa hundahár). Það er því viðeigandi að hundkvikyndið stilli sér upp við ryksuguna hehehe.

19. desember 2010

síðasta helgi fyrir jól

Litla stelpan mín orðin svo stór :-) Svona var hún fín á jólaballinu í skólanum á föstudaginn.

Þessi síðasta helgi fyrir jól er alltaf svolítið annasöm, nóg að gera hjá öllum. Við erum búin að fara á tvö jólaböll þessa helgi, syngja í messu, skreyta jólatréð með ömmu S og afa H, skreyta jólatréð okkar, fara á fimleikaæfingu, kaupa 9 jólagjafir, pakka inn jólagjöfum, baða hundinn, þrífa hús og bíl og fara í bíó. Ég er samt örugglega að gleyma einhverju hehehe.
Jólasveinarnir sem mættu á jólaball Fjölnis voru heldur skemmtilegri en þeir sem mættu til okkar í skólann. Þessir voru greinilega alvöru!!!
Ég hlakka svo til að prófa linsuna sem ég fæ í jólagjöf, 28mm, f1.8. Það verður ekkert smá gaman að prófa hana. Þessar myndir eru teknar með 50mm linsunni minni og heimatilbúnu móti framan á henni, galdurinn er að stilla á f1.8 og þá koma hjörtun þegar maður stillir fókusinn aðeins úr fókus. Það kom meira að segja hjarta í glampann í augunum á ÓH, ótrúlega sætt.

17. desember 2010

Jólafrí - loksins

Þessi mynd er tekin í jólaþorpinu í Hafnarfirði um síðustu helgi en þá fórum við mæðgur ásamt kvikyndinu í Cavaliergöngu um Hafnarfjörðinn. Tinni var alveg að tapa sér af gleði að sjá alla þessa hunda og ekki nóg með það heldur varð hann ástfanginn af 8 mánaða tík sem heitir Kókó. Það er nú alveg greinilegt að hann þarf meiri æfingu í svona hópgöngu hehehe.

Jólafríið mitt byrjaði á hádegi í dag, vikan er búin að vera frekar strembin og ég hlakkaði til að eiga rólegan og ljúfan dag með nemendum mínum á litlu jólunum en einn af nemendum mínum var ekki á sama máli og var með dónaskap og leiðindi. Ég ætla samt ekki að taka það með mér í jólafríið heldur tækla það á nýju ári.

Helgin er vel plönuð í kringum dæturnar, alltaf nóg um að vera hjá þeim. Ég náði að kaupa 6 jólagjafir í dag eftir vinnu og vonandi náum við klára mestan part af restinni um helgina á meðan stelpurnar verða hjá mömmu og pabba að hjálpa þeim að skreyta jólatréð. Ef veðrið verður alveg brjálað ætla ég samt að reyna að kúra bara í sófanum og horfa á góða mynd. Við systur ætlum svo í næstu viku í ljúfa bæjarferð með kaffihúsi og kósíheitum. Oh hvað ég hlakka til.

Ó já og ekki má gleyma að ég fékk 9 í einkunn fyrir kvikmyndaáfangann minn í Borgó, júhú, sú gamla er bara að standa sig.

6. desember 2010

Desember er annasamur mánuður

Fyrstu helgi í aðventu vorum við í laufabrauðsútskurði og þá höfum við alltaf piparkökumálun í leiðinni. Í þetta skiptið var ég búin að kaupa tilbúið piparkökuhús í Tiger og stelpurnar skreyttu það svona listilega. Það var svo ekki fyrr en í gær að við höfðum tíma til að setja það saman og stilla því upp í stofunni. Tinni hélt auðvitað að þetta væri sérstaklega fyrir hann og fékk sér bita áður en við gátum nokkuð að gert. Hann var auðvitað skammaður greyið og nú veit hann að það má ekki snerta þetta hús :-)
 Aðventumót Ármanns var haldið sömu helgi og laufabrauðið og Ólöf tók þátt í tveimur greinum. Hún hefur verið treg til að taka þátt þannig að við foreldrarnir vorum mjög ánægð með að hún skyldi fást til þess að taka þátt í tveimur greinum. Vonandi tekur hún þátt í fleiri greinum næst.
Þann 1. desember fór ég svo á jólaljósarölt með Flickr konum. Ég klikkaði auðvitað á því að hafa þrífótinn með mér þar sem mikið myrkur var, en það er ótrúlegt hvað ég náði þó lítið hreyfðum myndum miðað við að hraðinn var oft ekki meiri en 1/15.
TO DO listinn styttist stöðugt, ég sendi dagatölin frá mér í prentun í gær, tók upp jólaskrautkassann í dag og skreytti smá, svo þarf maður að fara að huga að jólagjöfum ... hvað það verður veit nú enginn!

29. nóvember 2010

Jólaverkin

Nú er ég að byrja á dagatölunum sem ég geri alltaf fyrir hver jól. Ég er búin að nota Publisher í þetta verkefni nú í nokkur ár, en publisher er einfalt og fljótlegt í svona vinnslu og maður getur breytt öllu sem maður vill breyta. Ég hugsa að ég noti prentþjónustuna hjá jola.is en þar pantaði ég jólakortin eftir vandlega verðathugun á netinu. Kortin komu í dag og ég er bara mjög ánægð með þau, fallegur frágangur og góð litvinnsla.

24. nóvember 2010

Logn

Fór út að ganga með hundinn áðan í æðislegu veðri. Uppáhaldsveðrið mitt er logn, uppáhaldsskapið mitt er logn, uppáhaldsfélagsskapurinn minn er logn. Ég held að ég sé ekki mikil félagsvera frekar svona einvera. Það er eitthvað svo mikill erill í vinnunni þessa dagana, börnin hávær, hávaði á kaffistofunni o.s.frv. sem minnir mig á það að það eru bara 17 kennsludagar eftir fram að jólafríi.

Tók þessa mynd fyrr í haust í Fókusrölti við Álafoss. Langar að fara aftur þangað, þetta er algjör perla, svo fallegt þarna. Við ætlum að halda jólafund SPK á kaffihúsinu við Álafoss núna fljótlega, er að vinna í því að finna góðan dag.

21. nóvember 2010

Nýr matseðill

Ég sá þessa hugmynd á einhverri blogsíðu núna um daginn, get engan vegin munað hvaða, nema þar hafði konan notað járnbökunarbakka sem bakgrunn og svo sett segul aftan á miðana. Ég hugsaði með mér að ég myndi vera í vandræðum með að finna stað fyrir bakkann, þannig að ég ákvað að minn matseðill færi beint á ísskápinn. Einfalt, ekki satt? Ég gerði auðvitað fullt fullt af miðum.
Á miðvikudaginn var alveg geggjuð þoka úti svo ég ákvað eftir þemadag nr. 2 að taka smá pásu áður en kennarafundurinn byrjaði og skjótast og taka myndir af þokunni. Ég fór nú ekki langt en var fegin að ég brá mér aðeins frá því ég var eins og sprungin blaðra eftir daginn.

19. nóvember 2010

Gjafabréf

Þá er erfiðri viku í skólanum lokið. Það er alveg með ólíkindum hvað þemavikur taka á! Ég var eins og undin tuska eftir þessa þrjá daga, samt var meirihlutinn af börnunum sem rann í gegn hjá mér ljúfir og yndislegir unglingar en það er þessir fáu óhefluðu (lesist leiðinlegu) sem setja strik í reikninginn.

Herra Galin hringdi í mig rétt áður en ég kom heim úr aukavinnunni í dag og sagði að við hefðum fengið glaðning frá TM vegna þess að við leyfðum þeim að nota innbrotssöguna okkar í auglýsingu (þessi með rottunum). Ég spenntist auðvitað upp og gerði mér von um huggulega stund með bóndanum. Þegar ég kom heim og opnaði umslagið varð ég heldur betur fyrir vonbrigðum, í umslaginu var gjafabréf á leiksýningu að eigin vali sem sýnd er í landnámssetrinu í Borgarnesi ásamt leikhúshlaðborði.  Frábært ... ehh NEI. Ég hef ekki áhuga á að horfa á leiksýningu um Egil Skallagrímsson! hvað þá að keyra langar leiðir til þess! Arrrgg
Svona er maður vanþakklátur ;-)

Nú þarf að fara að skrifa TO DO lista fyrir jólin, best að byrja:

  • búa til jólakortin (pantaði hjá jola.is)
  • prenta jólakortin (prentað hjá jola.is)
  • baka (búin að baka 3 sortir)
  • senda jólakortin
  • búa til dagatölin 
  • fá myndir frá systkinum mínum fyrir dagatalið fyrir ömmu og afa
  • klára lokaverkefnið mitt í kvikmyndaáfanganum í BHS 
  • þrífa og taka til
  • mmmm baka meira ...
  • klára myndvinnslu fyrir Söndru
  • klára ævintýrablað fyrir Söndru
  • kaupa jólagjafir (bara 3 eftir)
  • fara notalega bæjarferð með kaffihúsi o.fl.
  • skipuleggja jólahitting SPK á kaffihúsinu við Álafoss (geggjað kaffihús)
  • jólaföndur foreldrafélagsins (mætum ekki, fimleikasýning ÓH á sama tíma)
  • laufabrauðið
  • tónleikar með Þórunni
  • fimleikasprell með Ólöfu
  • ... og kannski baka aðeins meira
  • finna skipulagið á fjölskylduboðinu á annan í jólum
  • setja upp seríur
  • kúra og horfa á National Lampoons Christmas Vacation með fjölskyldunni
Gott að skrifa svona niður, þá kemst vonandi eitthvað af þessu í verk.

15. nóvember 2010

Ljúfur laugardagur

Dekurdagur fyrir mig á laugardaginn! Jú jú það gerðist, byrjaði daginn á prjónakaffi í Nálinni - skemmtilegur félagsskapur kátra myndarlegra kvenna, fór síðan í bæinn - var að leita að jólagjöfum fyrir dæturnar fyrir tengdó, endaði síðan daginn á skemmtilegri myndlistarsýningu í Hafnarhúsinu en þar var verið að opna sýningu á verkum barna í 7. og 8. bekk í anda Errós. Skemmst er frá því að segja að tveir nemendur í skólanum mínum gerðu það gott á þessari sýningu, svo flottir nemendur í skólanum mínum og ekki síðri kennarar.

Ég lagði litla vörtusvíninu við Ráðhúsið og stillti bílastæðaklukkuna (því ég er á svo umhverfisvænum bíl) og þegar ég kom til baka hafði annar trítill troðið sér í sama stæði - bílastæðavandi miðborgarinnar hvað!!!

Um kvöldið eldaði svo herra Galinn frábæran kvöldverð, humarsúpu og silung í forrétt og fiskrétt í ofni í aðalrétt, mmmm dásamlega gott. Kvöldinu var síðan eytt með fjölskyldunni fyrir framan sjónvarpið við misgóða dagskrá RÚV.

1. nóvember 2010

Rómantík

 Við fórum í Ráðhúsið um helgina að skoða sýninguna Handverk og hönnun. Sýningin í ár var einstaklega falleg og margt sem ég hefði viljað eiga. Ég keypti filmu í glugga frá Svartfugli sem ég er búin að setja í baðgluggann og það kemur alveg svakalega vel út. Ég á slatta eftir af svona filmum, það voru margar greinar á blaðinu, þannig að ég á örugglega eftir að setja þetta í fleiri glugga, svona þegar þeir verða orðnir hvítir.
 Ef allt húsið væri eins krúttlegt og litla baðið þá væri það nú flott. Þetta kemur allt með kalda vatninu.
 Hundkvikindið fylgir mér eins og skugginn, hér er hann að bíða á meðan ég tek myndir af baðinu. Ósköp ljúfur þessi elska.
 Gott kaffi í fallegum bolla og jólasmákökur með, getur ekki orðið miklu betra.
 Smá stemning á pallinum, alltaf svo gott þegar er logn úti. Reyndar finnst mér allt í lagi að heyra gnauðið í vindinum ef ég þarf ekki að fara út.
 Mér finnst þessi kertastjaki sem ég keypti fyrir mörgum árum af samstarfskonu minni alltaf jafnfallegur, þar fyrir innan er engill sem Þórunn gerði þegar hún var í 3. bekk og er líka í uppáhaldi.
Við Ólöf erum búnar að taka fyrstu umferð í jólasmákökum, mig klæjar í fingurna að halda áfram, haustmyrkur og jólasmákökubakstur er einstaklega ljúft.

haust      vetur
rómantík snjór kuldi
myrkur jólaljós ylur
ljós fallegt ró
birta friður
ást

30. október 2010

Haustmyndataka af stelpunum

Við löbbuðum út að Korpu einn fagran haustdag nú í október til að taka myndir af börnunum. Stelpurnar voru voða stilltar að stilla sér upp og Tinni var forvitinn fyrst ...
... en svo varð hann órólegur og nennti ekki að vera í þessum leik lengur.
Þær systur náðu samt að hemja hann og ég náði ágætis myndum af þeim, sem verða m.a. notaðar á jólakort og dagatöl. Ég er byrjuð á dagatölunum en jólakortin verða að bíða betri tíma. Ég þarf líka að finna mér góða og ódýra prentþjónustu, ég var ekki alveg nógu ánægð með Háskólaprent sem ég notaði sl. haust, myndirnar urðu allt of dökkar og asnalegir litir hjá þeim.

9. október 2010

Heimasætan orðin 16 ára

Fyrir 16 árum fæddist þessi yndislega stúlka, 11 merkur og 50 cm, lítil en sterk og dugleg. Hún hefur alltaf haft ákveðnar skoðanir á lífinu og lætur ekki vaða ofan í sig. Hún var skírð í höfuðið á ömmu Stellu, hennar fyrsta barnabarn og þær hafa verið góðar vinkonur alla tíð, Þórunn var ekki nema 9 eða 10 mánaða þegar hún gisti fyrst hjá ömmu sinni og hún hefur gist óteljandi sinnum hjá henni og finnst það alltaf jafnskemmtilegt.
Nú er hún komin í framhaldsskóla, á fullt af góðum vinum og gengur bara allt í haginn, ennþá lítil en sterk og dugleg.
Eftir nokkra daga fer hún í fyrsta ökutímann sinn. Ég hlakka til að fara með henni í æfingaaksturinn og allt hitt sem hún á eftir að taka sér fyrir hendur í framtíðinni.
Haustið er svo fallegur tími, allir þessir litir í náttúrunni, þessi kaldi ferski andvari, alla vega þegar ekki er rok og rigning. Ég skrapp í smástund út að mynda í vikunni, fór nú ekki langt, bara niður götuna mína. Það þarf ekki alltaf að leita langt yfir skammt. Haustlitirnir eru líka fallegir við bæjardyrnar.
Þetta er nú örugglega væmnasta færsla hingað til en maður verður svolítið mjúkur þegar fyrsta barnið manns verður 16 ára. Mér finnst þessi 16 ár hafa flogið hjá.

7. október 2010

Fyrirsætan


Í dag kom í búðir nýjasta tölublað Ístex Lopi 30. Guðný á nokkrar æðislegar uppskriftir í blaðinu og hún bað Ólöfu að sitja fyrir á nokkrum myndum. Blaðið er vel heppnað en mér finnst nú uppskriftirnar hennar Guðnýjar og Bergrósar flottastar.

3. október 2010

Róleg og góð helgi

Við Ólöf vorum einar heima um helgina, Þórunn fór í Vatnaskóg og Siggi fór norður á Ólafsfjörð. Við höfðum það huggulegt á föstudagskvöldið, sátum og horfðum á sjónvarpið, borðuðum snakk og súkkulaði og Ólöf heklaði þar til hún sofnaði.
 Á laugardaginn var nóg að gera hjá okkur, fimleikaæfing, prjónakaffi, aukatími í Borgó, gengið til góðs fyrir Rauða krossinn og svo matarboð hjá Guðnýju og co, Ólöf gisti svo þar á meðan ég fór í flott afmæli til Ingu um kvöldið. Tinni var líka mjög upptekinn við að snyrta rúmið sitt.
Hann er auðvitað svo krúttlegur þessi elska að maður verður að fyrirgefa honum svona vitleysu.
Mér finnst svo frábært að nú er ég búin að finna Envirosax innkaupapokana til sölu hér á Íslandi en www.disir.is selja þessa frábæru poka. Ég keypti tvo venjulega innkaupapoka í sumar frá Danmörku og er búin að nota þá mjög mikið, þeir eru einstaklega rúmgóðir, léttir og sterkir. Um daginn keypti ég svo tvo í viðbót frá Dísum. Pakkinn kom heim og ég opnaði spennt, en varð fljótlega pirruð því aðeins einn poki var í pakkanum, ef klukkan hefði ekki verið orðin svona margt hefði ég hringt til þeirra og hundskammað konuna. Seinna um kvöldið var Ólöf eitthvað að kíkja undir sófa og þar fann hún hinn pakkann, eitt hornið nagað, og þá vissum við af hverju ég hafði ekki fundið hann. Tinni hafði sem sagt verið á undan mér að ná honum og ákveðið að skoða hann nánar. Sem betur fer át hann bara pappírinn og pokinn var alveg heill



25. september 2010

Flokkum og skilum

 Ég hef ætlað lengi að nýta mér ráð sem ég fann á einhverri umhverfisblogsíðunni fyrir svolítlu síðan, en það er að hafa flokkunarruslaföturnar aðgengilegri en almenna sorpið. Myndin hér fyrir ofan er semsagt af ruslaskápnum okkar eins og hann hefur verið sl. 13 ár. Heimilisfólkið var orðið heldur latt að fara með plast og pappír inn í bílskúr þannig að ég fór í IKEA og keypti þrjár ruslafötur sem smellpassa inn í skápinn, ég var auðvitað búin að mæla þetta allt út og nú er engin afsökun fyrir að flokka ekki. Ég á samt ennþá eftir að finna lausn fyrir járn og ál sem fellur til í eldhúsinu eins og niðursuðudósir og sprittkertaálið.
Svo fínt í ruslaskápnum núna að það hálfa væri yfirdrifið ;-)

22. september 2010

Snilldarráð fyrir stígvél

Sá þessa snilldarhugmynd á blogginu hjá Ólöfu Jakobínu og rauk til og framkvæmdi strax í mínum eigin forstofuskáp.
Ef þetta er ekki tær snilld þá veit ég ekki hvað, fer svo miklu betur með stígvélin en að láta þau kúldrast í hrúgu á botninum á skápnum. Ég fór í svo mikinn ham við þetta að ég þreif skápinn að innan og tók föt úr honum sem hafa ekki verið notuð í nokkur ár! Ég er ekki ein af þeim sem tek fataskápa í gegn einu sinni eða tvisvar jafnvel á ári. Ég þarf bara að fá traustari stöng og þá er málið klárt. Ohhh ég vildi að það væri meira skápapláss í þessu húsi, mig dreymir um fataherbergi (kannski þegar stelpurnar flytja að heiman). Svona walk-in closet er á óskalistanum, verst hvað svoleiðis er sjaldgæft hér á Íslandi.

7. september 2010

afmæli afmæli

Sæta spætan mín á afmæli í dag, er orðin 9 ára ung stúlka og Tinni óþekktarormur er 7 mánaða í dag. Stór dagur og mikið að gera á stóru heimili, húsmóðirin að fara á prjónanámskeið í kvöld en vonandi dekra húsbóndinn og heimasætan við hana. Næstu helgi verða svo maraþonafmælisveislur, bekkjarafmæli á föstudaginn, fimleikaafmæli á laugardaginn og fjölskylduafmæli á sunnudaginn!!!

11. ágúst 2010

Tinni 6 mánaða

Tinni varð 6 mánaða sl. sunnudag og af því tilefni fórum við Þórunn með hann út á tún í gær og tókum myndir af honum. Hann er nú að verða ágætisfyrirsæta og er duglegur að horfa í myndavélina.

Nú fer alvara lífsins að bresta á, ég fer á morgun á námskeið í stærðfræðikennslu og svo byrjar vinnan fyrir alvöru eftir helgi. Mér finnst ég nýbyrjuð í sumarfríi en er samt þakklát fyrir mitt langa frí því sumir fá ekkert sumarfrí eða mun styttra en ég.

7. ágúst 2010

Það er svo leiðinlegt að sitja í bíl

Þokan á Holtavörðuheiði er alltaf söm við sig. Við fengum svartaþoku á leiðinni á Þórshöfn og svo aftur hálfum mánuði seinna á leiðinni á Ólafsfjörð. En svo undarlega vildi til að á leiðinni heim var ekki þoka!

Annars er ég eiginlega komin með ógeð á því að sitja í bíl, bílstjóri eða farþegi, skiptir ekki máli. Ég stillti trip mælinn í bílnum í fyrri ferðinni og keyrði 1580 km samtals, í seinni ferðinni var S alltaf að núllstilla tripmælinn þannig að ég tók bara saman vegalengdir á milli þeirra staða sem við fórum á en þá voru auðvitað ekki taldir þeir km sem keyrðir voru inni á hverjum stað. Í seinni ferðinni keyrðum við 1528 km + eitthvað smá í viðbót fyrir innanbæjarakstur. Þetta er því jafnmikil keyrsla á báða staði, báðar ferðir voru frá mið til mánudags.

Ég fór á gay pride gleðigönguna í dag í fyrsta skipti, ég er búin að ætla að fara í mörg ár en nú ákvað ég að drífa mig, sérstaklega þar sem Fókus ljósmyndaklúbburinn minn hittist þar til að taka myndir. Þessi ganga er algjört augnakonfekt fyrir ljósmyndara, litirnir og gleðin sem skín af hverjum manni er alveg óborganleg. Ég ætla að vinna nokkrar myndir (ég tók tæplega 500 myndir) og setja inn á Flickr á morgun.

Ó já og Tinni er 6 mánaða í dag, litla krúttið, verð að taka myndir af honum á morgun.

2. ágúst 2010

strákastand á frúnni

Við vorum á Óló um helgina sem er ekki í frásögur færandi nema ég upplifði sól og sumaryl þar nyrðra í fyrsta skiptið síðan við fórum að venja komur okkar þangað. Hef að vísu lent í ágætisveðri nokkrum sinnum en laugardagurinn var alveg toppur.

Auðviðtað fórum við nokkrum sinnum inn á Akureyri eins og lög gera ráð fyrir og á sunnudeginum kolféll ég fyrir strák! Við vorum sumsé að ganga í miðbæ Ak eins og fjöldinn allur af fólki þegar hundkvikindið gengur fyrir lappirnar á mér þannig að ég steig á tærnar á honum, hann æpti auðvitað af sársauka (ég er engin léttavara) og mér brá svo að ég reyndi að stíga yfir hann svo ég slasaði greyið ekki meira en tókst ekki betur upp en svo að ég rak tærnar í hann og hrundi í götuna og meiddi mig á hnénu :-(

Sveitamarkaðurinn við jólahúsið er algjör skylduheimsókn ef maður er staddur á þessum slóðum á sunnudögum. Krúttlegri markaður finnst ekki norðan alpafjalla.

25. júlí 2010

Myndataka

Við fórum yfir heiðina í gær að heimsækja sætu fjölskylduna og taka 10 mánaða myndir af Bjarna. Þau eru að endurnýja þakkantinn hjá sér þannig að Siggi hjálpaði Davíð að rífa gamla kantinn niður. Ólöf skemmti sér konunglega á trampolíninu með Birtu og svo kom Birta með okkur í bæinn og gisti. Það gekk bara mjög vel og þær fengu að horfa á mynd inni í herberginu hennar Ólafar og fóru soldið seint að sofa, hehehe

24. júlí 2010

hvolpur í heimsókn

Vinkona Ólafar kom í heimsókn í dag með litla hvolpinn sinn hann Krumma. Krummi er Cavalier eins og Tinni og er bara 8 vikna gamall, pínulítill og valtur á fótunum og var orðinn voða þreyttur í heimsókninni og sofnaði oft.

23. júlí 2010

Ferðasaga - seinni hluti

Á sunnudeginum fórum við stelpurnar (Guðný og Lilja voru heima því Lilja þurfti að leggja sig) inn í sveit til Karenar, það var gaman að sjá sveitina hennar og stelpurnar duttu strax inn í leik og vildu varla fara aftur til baka. Karen benti mér á að passa að Tinni og minnkahundarnir hennar þrír hittust ekki því þeir myndu éta hann í orðins fyllstu merkingu. Hundarnir hennar voru því lokaðir inni þegar við komum en þegar við vorum að fara voru þeir komnir út þannig að Þórunn hélt á Tinna en það stoppaði samt ekki einn hundinn í að stökkva upp og glefsa í hausinn á honum. Það sluppu samt allir vel frá þessum hildarleik.

Þegar Lilja var vöknuð ákváðum við Guðný að fara og skoða Ytra-Lón, en þar er nýbúið að setja upp gistiaðstöðu og jafnframt var auglýst í bæklingnum um Káta daga að þar væri listasýning. Gunnar hafði farið með Konna og Jóhanni að skoða fuglabjörg út á Langanesi. Við lögðum af stað og keyrðum heillengi og vorum eiginlega komnar á þá skoðun að við værum villtar þegar afleggjarinn að Ytra-Lóni sást loksins. Í stuttu máli var þetta nú ekki ferð til fjár, vörusvik kom upp í hugann, því gistiaðstaðan sem var til sýnis var kuldaleg og listasýningin samanstóð af passamyndum af kindum og teikningum eftir börnin á bænum.

Seinni partinn fórum við í heimsókn til Stínu og Rabba og þar var ísbjörn í heimsókn, ekki alvöru ísbjörn heldur hundurinn hennar Kristínar Ýrar sem er grænlenskur sleðahundur, yndislega ljúfur og góður en feldurinn á honum var ævintýralega mikill og það snjóaði hárum af honum, sem gerði Stínu einstaklega glaða.

Um kvöldið vorum við boðin í mat til Erlu og Konna. Þau eru búin að taka húsið sitt í gegn og það var gaman að skoða hjá þeim, þau eru bæði svo smekkleg. Eftir matinn fórum við út á Langanes aftur og nú hafði Karen meðferðis lykil að Sauðaneshúsinu sem er afar fallegt gamalt hús, eitt af elstu steinhúsum á norðurlandi, sem búið er að gera upp og setja upp sýningu á gömlum munum úr sveitinni. Við fórum líka í fjöruna við flugvöllinn, og skoðuðum gömlu brotlentu flugvélina.

Á mánudagsmorguninn þegar við vorum á leiðinni út úr þorpinu komum við við í Fánasmiðjunni og krakkarnir fengu að velja sér boli sem Erla og Karen skreyttu að þeirra óskum. Konni hafði bent okkur á kvöldið áður að fara Vopnafjarðarleiðina í gegnum Mývatm heim sem við gerðum og sáum sko ekki eftir því, bæði er vegurinn góður, eiginlega malbik alla leið, og svo er leiðin líka falleg. Við stoppuðum soldið á Akureyri og um kl. 5 héldum við mæðgur heim en Guðný og co ætluðu að gista nokkrar nætur í viðbót á Ólafsfirði. Heimferðin gekk vel og við vorum komnar heim um hálftíu og vorum þá búnar að vera á ferðalagi í 11 tíma.

Stelpurnar eru spenntar að fara aftur og ég býst við að við förum aftur næsta sumar og stoppum þá jafnvel lengur. Ég vildi samt að það væri hægt að komast á milli R og Þ á hraðvirkari hátt.

17. júlí 2010

Ferðasagan - fyrri hluti

Fyrsta ferðalag sumarsins byrjaði á miðvikudaginn en þá lögðum við mæðgur af stað á litla vörtusvíninu með hundinn með okkur. Guðný og co fóru líka með okkur á sínum bíl. Við tókum þessu rólega enda með bæði hvolp og smábarn með í för. Við lögðum af stað rúmlega ellefu um morguninn og ókum í Borgarnes en þá var Lilja orðin svöng og við fengum okkur nesti í Skallagrímsgarði. Næsta nestisstopp var á Blönduósi og við vorum komin til Akureyrar rúmlega sex. Þar hittum við Guðmund, Þuru og Emmu Kristínu og fengum okkur að borða á Bautanum með þeim. Eftir það var haldið til Ólafsfjarðar þar sem við mæðgur gistum hjá Ingu en Guðný og co gistu í íbúð vinar.

Daginn eftir lögðum við líka af stað um ellefu og héldum til Akureyrar þar sem við stelpurnar fórum í búðarrölt en strákarnir fóru í fótbolta og tóku Lilju með sér. Þegar við vorum að fá okkur Subway í grasinu fyrir aftan staðinn komu Hulda og Rannveig skyndilega gangandi með börnin sín, en þær voru búnar að vera á norðurlandi í nokkra daga. Við héldum svo af stað upp úr tvö í áttina að Þórshöfn og vorum búin að ákveða að fara Sléttuna vegna þess að Hólaheiðin sem átti að vera búið að opna var ekki opin. Við keyrðum auðvitað í gegnum Húsavík og mikið er það nú orðinn fallegur staður, búið að útbúa miðbæinn þannig að hann var mjög túristavænn. Myndin hér að ofan er tekin þar. Við ákváðum að stoppa aðeins bæði á Kópaskeri og Raufarhöfn og ég verð að segja að Þórshöfn er nú heimsborg miðað við þessi tvö þorp. En mikið óskaplega er nú þessi Slétta löng! Við vorum ekki komin til Þórshafnar fyrr um kl. 7 á fimmtudeginum. Þegar hér var komið höfðum við keyrt 820 km, mest í sól og góðu veðri. Við komum okkur svo fyrir í kjallaranum í Lyngholti og höfðum það kósí um kvöldið.

Á föstudeginum hittum við Stínu og Katrínu í Kaupfélaginu og hvöttum Katrínu til að taka þátt í "Ljósmyndamaraþoni Kátra daga og Canon 2010" sem ég, Guðný og Guðrún María tókum þátt í. Daginn eftir kom svo í ljós að af 10 keppendum hafði ég lent í 1. sæti og fékk Canon Ixus 105 í verðlaun, Katrín hafði lent í 2. sæti og fengið Canon fjölnota prentara í verðlaun og Guðrún María lenti í 3. sæti og fékk Canon ljósmyndaprentara í notkun. Umsjónarmaður maraþonsins var Kerly Ilves frá Eistlandi en hún var á Þórshöfn í hópi SEEDs-liða sem planta trjám og sinna fleiri verkefnum.

Nú þegar þetta er skrifað er Ólöf á balli í Félagsheimilinu Þórsveri, Þórunn er búin að mála sig og gera sig klára fyrir unglingaballið á eftir, og ég er búin að kaupa miða á fullorðinsballið sem byrjar um miðnætti.

So far hafa allir skemmt sér konunglega þrátt fyrir að það hafi byrjað að rigna á fimmtudagskvöldið og það rignir enn þrátt fyrir sólarspá fyrir daginn í dag. En eins og Guðný segir, það hefur enginn dáið úr rigningu ennþá en maður getur fengið húðkrabbamein af sólinni. Svo við erum sátt. Tinni hefur verið með okkur í þessu öllu og staðið sig vel.

13. júlí 2010

Hellisgerði í Hafnarfirði

Fyrsta formlega lautarferð sumarsins var í gær. Við fórum (að vísu án Þuru og Emmu) til Hafnarfjarðar og gengum aðeins um miðbæinn og gömlu göturnar þar fyrir ofan og slefuðum yfir fallegu húsunum þar. Ég er búin að finna draumahúsið, það stendur við Austurgötu 37 og er guðdómlega fallegt að utan og örugglega ekki síðra að innan. Þegar slefrúntinum var lokið héldum við að Hellisgerði sem er ævintýralegur garður. Þar tókum við upp nesti og höfðum það huggulegt.
Við fórum á svefntímanum hennar Lilju og hún átti að sofa á meðan við gengum um bæinn, en sú stutta ætlaði sko ekki að missa af neinu og vakti allan tímann og naut þess í botn að vera með okkur, rölta um bæinn og garðinn, fá sér af girnilegu nestinu og njóta lífsins.
Smá uppstilling hjá sætu systrunum.
og svo líka hjá frænkunum fallegu. Við fengum yndislegt veður í þessari ferð og lautarferðir eru svo sannarlega mál málanna núna. Það þarf ekki að fara langt eða kosta mikið til að njóta lífsins í góðum félagsskap.
Related Posts with Thumbnails