17. júlí 2010

Ferðasagan - fyrri hluti

Fyrsta ferðalag sumarsins byrjaði á miðvikudaginn en þá lögðum við mæðgur af stað á litla vörtusvíninu með hundinn með okkur. Guðný og co fóru líka með okkur á sínum bíl. Við tókum þessu rólega enda með bæði hvolp og smábarn með í för. Við lögðum af stað rúmlega ellefu um morguninn og ókum í Borgarnes en þá var Lilja orðin svöng og við fengum okkur nesti í Skallagrímsgarði. Næsta nestisstopp var á Blönduósi og við vorum komin til Akureyrar rúmlega sex. Þar hittum við Guðmund, Þuru og Emmu Kristínu og fengum okkur að borða á Bautanum með þeim. Eftir það var haldið til Ólafsfjarðar þar sem við mæðgur gistum hjá Ingu en Guðný og co gistu í íbúð vinar.

Daginn eftir lögðum við líka af stað um ellefu og héldum til Akureyrar þar sem við stelpurnar fórum í búðarrölt en strákarnir fóru í fótbolta og tóku Lilju með sér. Þegar við vorum að fá okkur Subway í grasinu fyrir aftan staðinn komu Hulda og Rannveig skyndilega gangandi með börnin sín, en þær voru búnar að vera á norðurlandi í nokkra daga. Við héldum svo af stað upp úr tvö í áttina að Þórshöfn og vorum búin að ákveða að fara Sléttuna vegna þess að Hólaheiðin sem átti að vera búið að opna var ekki opin. Við keyrðum auðvitað í gegnum Húsavík og mikið er það nú orðinn fallegur staður, búið að útbúa miðbæinn þannig að hann var mjög túristavænn. Myndin hér að ofan er tekin þar. Við ákváðum að stoppa aðeins bæði á Kópaskeri og Raufarhöfn og ég verð að segja að Þórshöfn er nú heimsborg miðað við þessi tvö þorp. En mikið óskaplega er nú þessi Slétta löng! Við vorum ekki komin til Þórshafnar fyrr um kl. 7 á fimmtudeginum. Þegar hér var komið höfðum við keyrt 820 km, mest í sól og góðu veðri. Við komum okkur svo fyrir í kjallaranum í Lyngholti og höfðum það kósí um kvöldið.

Á föstudeginum hittum við Stínu og Katrínu í Kaupfélaginu og hvöttum Katrínu til að taka þátt í "Ljósmyndamaraþoni Kátra daga og Canon 2010" sem ég, Guðný og Guðrún María tókum þátt í. Daginn eftir kom svo í ljós að af 10 keppendum hafði ég lent í 1. sæti og fékk Canon Ixus 105 í verðlaun, Katrín hafði lent í 2. sæti og fengið Canon fjölnota prentara í verðlaun og Guðrún María lenti í 3. sæti og fékk Canon ljósmyndaprentara í notkun. Umsjónarmaður maraþonsins var Kerly Ilves frá Eistlandi en hún var á Þórshöfn í hópi SEEDs-liða sem planta trjám og sinna fleiri verkefnum.

Nú þegar þetta er skrifað er Ólöf á balli í Félagsheimilinu Þórsveri, Þórunn er búin að mála sig og gera sig klára fyrir unglingaballið á eftir, og ég er búin að kaupa miða á fullorðinsballið sem byrjar um miðnætti.

So far hafa allir skemmt sér konunglega þrátt fyrir að það hafi byrjað að rigna á fimmtudagskvöldið og það rignir enn þrátt fyrir sólarspá fyrir daginn í dag. En eins og Guðný segir, það hefur enginn dáið úr rigningu ennþá en maður getur fengið húðkrabbamein af sólinni. Svo við erum sátt. Tinni hefur verið með okkur í þessu öllu og staðið sig vel.

Engin ummæli:

Related Posts with Thumbnails