27. janúar 2009

bla bla

Jæja það fór nú betur en á horfðist með vinnufélagann, hurðaskellirnir voru víst ekki ætlaði mér!
Kom heim úr vinnunni rétt fyrir 4, náði að hlusta á fyrirlesturinn í ísl.náminu sem ég átti eftir að hlusta á síðan í síðustu viku. Fór svo út í búð, tók til í eldhúsinu og sópaði holið sem var nú ekki vanþörf á miðað við lóna sem kom í ljós við þessa aðgerð. Svo lét ég Ólöfu lesa, horfði á fréttirnar og reyni að koma fleiri heimaverkefnum frá. Í kvöld er svo planið að fara í saumaklúbb hjá K-stelpunum, alltaf gaman að hitta þær.

Og btw líst vel á nöfnu mína í stjórnmálunum! Örugglega ein af fáum í þessari stöðu sem er ekki gjörspillt.

S fékk neitun um atvinnuleysisbætur í gær vegna þess að hann sagði sjálfur upp þegar hann skipti um vinnu í fyrrasumar, en hann var samt búinn að vinna í hálft ár á nýja staðnum þegar honum var sagt upp þar! Þetta er nú eitthvað dularfullt! Má maður ekki skipta um vinnu án þess að það hafi áhrif á réttarstöðu manns til atvinnuleysisbóta?

Næsti laugardagur! Hvað er þetta þarf fólk alltaf að velja sama daginn til að bjóða manni til sín, 3 atburðir á dagskrá þennan dag!

18. janúar 2009

Í ræktinni!

Þórunn plataði mig með sér í ræktina í gærmorgun, því hún er ekki orðin nógu gömul til að fara ein. Ég lét til leiðast og við vorum þarna í klukkutíma. Þegar við komum heim vorum við auðvitað orðnar svangar og ég segi svona við hana: Þórunn eigum við að fá okkur ávaxtaboost? Hún lítur á mig eins og ég sé ekki í lagi og segir: ég er sko ekki að fara að fá mér einhvern heilsudrykk!

13. janúar 2009

Skilasíður !!!

Ég var til 12 í gærkvöldi og svo 2 tíma í kvöld að klára skilasíðu fyrir eitt fag í Borgó. Ég er í þremur fögum þannig að það eru tvær skilasíður eftir. Næ vonandi að komast langt með næstu í kvöld.

12. janúar 2009

Orðin fjörtíuogeins

Nú eru bara 7 mínútur eftir af afmælisdeginum. Mig langar að þakka fyrir allar kveðjurnar og gjafirnar. Þetta var bara ljúfur og yndislegur afmælisdagur. Ég er búin að vera í allt kvöld að búa til heimasíður fyrir margmiðlunarnámið mitt, það á að skila öllum verkefnum á vefinn. Ég er í þremur fögum og mér sýnist það taka svona eitt til tvö kvöld að búa til heimasíðu fyrir hvert fag áður en ég get byrjað að gera verkefnin sem á að setja á síðurnar. En mér finnst þetta gaman og sé ekki eftir tímanum í þetta. Ég kunni t.d. ekkert á Illustrator fyrir helgi en nú er ég á fullu að nota það til að gera bakgrunna fyrir síðurnar. Búin að læra helling bara um helgina.

7. janúar 2009

Skólinn byrjar eftir tvo daga

Á föstudaginn og laugardaginn fer ég í staðlotu í BHS. Ég tek 3 áfanga núna á vorönninni. MHL203 sem er ljósmyndun, MHL213 sem er grafísk hönnun og SJL203 sem er myndbygging og formfræði.
Í næstu viku byrjar svo barnabókmenntaáfanginn sem ég tek með GB og SS úr vinnunni. Það verður greinilega nóg að gera á næstunni en allt mjög spennandi.

5. janúar 2009

;-) janúar er góður mánuður :-)

Það var nú bara ágætt að koma í vinnuna í morgun og ekkert erfitt að vakna. Krakkarnir komu bara nokkuð góðir undan jólum og gaman að sjá þau aftur.
Fór eftir vinnu niður á Skólavörðustíg að skipta rúmfötum sem við fengum í jólagjöf. Þetta voru vönduð og flott rúmföt sem maður á í 10 ár og því ákvað ég að skipta yfir í annan lit sem er klassískari. Kom við í Beco á leiðinni heim, ooohhh það er svo margt sem mig langar í þar:
  • Einfótur (eins og þrífótur nema með eina löpp), sá einn sem myndi vera alveg frábær, kostar um 13.000 kr, (photo compact monopod MN680B + haus MN234RC)
  • Regnkápa fyrir myndavélina, hefði komið sér vel á laugardaginn var, 2 í pakka á 1.390 kr
  • Húdd á 17/85mm linsuna mína, kostar um 4.000 kr.
  • Flass, Metz - Mecablitz 58 AF-1 Digital fyrir Canon, kostar 66.500 kr

Ég er orðin svo góður viðskiptavinur hjá Beco að stelpan sem afgreiðir þar gefur mér alltaf súper-mega afslátt, við erum orðnar perluvinkonur. Í dag var alveg troðfull búð og hún passaði upp á að enginn færi fram fyrir mig í röðinni, algjört krútt.

3. janúar 2009

Skemmtilegur dagur

Í dag fór ég með nokkrum Flickr-konum í ljósmyndaferð að Rauðhólum. Það rigndi stanslaust en okkur tókst samt að mynda svolítið án þess að skemma græjurnar. Nokkrar voru með regnhlíf á myndavélina en ég á ekki svoleiðis svo ég tók bara með mér plastpoka og skæri, sem gerði nokkurn vegin sama gagn. Það hefði samt verið gott að eiga húdd á linsuna því ég var alltaf að þurrka dropa af henni. Nú klikkaði ég ekki á því að bera þrífótinn með mér (eins og í Öskjuhlíðinni) og náði þar af leiðandi flestum myndum óhreifðum.

Nú eru jólin búin hjá okkur, við Þórunn tókum niður jólaskrautið áðan. Það er allt komið ofan í kassa nema jólasveinninn við útidyrnar og serían utan á húsinu. Það fær að vera svolítið lengur.
Mér finnst alltaf svo gott að taka jólaskrautið niður, það verður allt svo hreint og fínt þegar það er farið en samt finnst mér æðislegt að skreyta fyrir jólin.

Siggi eldaði svo sterka grænmetissúpu og bakaði brauð með í kvöldmatinn, en það var bara forrétturinn því í aðalrétt var hnetusteik með villisveppasósu, mmmm gott.

Planið er svo að vekja krakkaormana klukkan hálfníu í fyrramálið svona aðeins til að venja þær við áður en skólinn byrjar aftur. Vona bara að ég geti vaknað svona snemma!

Ó já ekki gleyma því mikilvægasta, ég er búin með Kauni-hyrnuna. Ég á bara eftir að taka flotta mynd af henni til að sýna.

1. janúar 2009

Nýtt ár, nýtt upphaf

Þetta er nú búið að vera meiri letidagurinn, en þannig er nýársdagur alltaf hjá okkur. Sem betur fer engin boð á þessum degi, bara náttföt, nammi og sjónvarpsgláp. Við mæðgur erum virkilega búnar að leggja hart að okkur að klára allt nammið á heimilinu. Lakkrísinn kláraðist rétt áðan og Mackintoshið er bara á síðustu metrunum, sést í botninn á dallinum og allt.
Eldaði rosa góðan kjúklingakormarétt áðan með hrísgrjónum og heimatilbúnu naanbrauði, nammi namm.
Ég tók fullt af flugeldamyndum í gærkvöldi, held bara að margar hafi heppnast vel. Nenni ekki að setja þær inn á Flickr fyrr en á morgun.
Hyrnan góða úr Kauni garninu er alveg að verða tilbúin.

G L E Ð I L E G T Á R
Related Posts with Thumbnails