Jæja þá er tímabilið eftir fermingu hafið. Veislan var á sunnudaginn og heppnaðist mjög vel. Ég fékk mikla hjálp frá Guðnýju, mömmu og Guðmundi. Siggi var auðvitað handlama á hægri en gerði sitt besta. Svo hjálpuðu Svala og Elín með kransakökurnar, þær voru báðar æðislega góðar. Þórunn var alsæl eftir daginn. Hún fékk margar fallegar gjafir, passlega mikið af skartgripum, 3 orðabækur, fullt af peningum og margt fleira fallegt. Við gáfum henni fartölvu sem hún var ótrúlega ánægð með. Veðrið var yndislegt og við gátum notað pallinn sem var frábært því það komu 60 gestir. Frábær dagur með frábæru fólki.
Næst á dagskrá er svo að ljúka við síðasta verkefnið í íslenskunáminu, sækja um námið sem mig langar í í Borgó og velja svo síðasta námskeiðið í íslenskunni (við eigum bara 4 einingar eftir). Sem sagt nóg framundan fyrir utan þessar venjulegu vorannir í kennslunni.
29. apríl 2008
25. apríl 2008
Dúllí dúllí
Jæja við systur vorum í opnuninni í dúllubúðinni hjá dúlluvinkonunni. Ógó fint og flott og bleikt hjá minni, til hamingju með þetta dúllan mín.
Nóg að gera um helgina hjá okkur, undirbúningur, þrif, meiri undirbúningur og svo fermingin á sunnudaginn. Frekar lítið stress í gangi, enda ótrúlega flott fólk að hjálpa mér með þetta allt, takk elskurnar mínar. Ég hlakka ekkert smá til að setja saman kransakökurnar og skreyta þær á morgun, önnur verður með fiðrildum og hin með blómum. Það er líka smá vinna eftir við gestabókina sem verður unnin í kvöld, ég er nefnilega búin að fá hitablásarann lánaðan á verkstæðinu, hehehe, ég fór í gær til að fá hann lánaðan og fann hann ekki þannig að ég spurði L sem er pólskur og vinnur á verkstæðinu og talar litla íslensku og enga ensku.
Ég: Veistu um hitablásarann?
L: eehhh lykla?
Ég: nei, ekki lykla, hitablásara?
L: ehhh lykla?
Ég: nei ég er með lykla (sýni þá), mig vantar hitablásara (blæs út í loftið)
L: ahh, já (bendir upp í loftið þar sem loftræstikerfi verkstæðisins er)
Ég: nei, nei bara lítill (sýnt með táknum með tali)
L: ahh já (og fer og leitar en finnur ekki, segir svo stuttu seinna,) B er með heima
Ég: geturðu beðið hann að koma með hann á morgun
L: ha hringja morgun?
Ég: nei hringja núna, koma með á morgun (sagt nokkrum sinnum þar til skildist)
Svona er nú það.

21. apríl 2008
Hjólageymslan ehf
Helgin fór í að undirbúa fyrir fermingu, Siggi kláraði allt í sambandi við bílskúrshurðina, ég þvoði alla glugga, að utan og innan, kláraði stofuna og þreif tölvuherbergið. Þórunn tók sitt herbergi í gegn og byrjaði á Ólafar herbergi. Guðrún og Jóhann voru í heimsókn og voru nýtt í þrifin, allir eldhússtólarnir voru settir út á pall og þau þvoðu eins og þau ættu lífið að leysa. (Þegar ég tók stólana inn var samt eins og þau hefðu vandað sig við að þvo í kringum blettina, hehehe).
Við Þórunn fórum í Föndru á laugardaginn til að finna skraut á kransakökurnar. Við fundum fiðrildalímmiða sem við límdum á pappírinn sem við höfðum keypt til að nota í gestabókinni og gerðum fullt af fiðrildum.
Ég er að hugsa um að stofna fyrirtæki. Það getur heitið Hjólageymslan ehf. Þannig er mál með vexti að við fjögur á heimilinu eigum öll reiðhjól, að auki eiga stelpurnar hlaupahjól og svo er hérna ennþá gamla hjólið hennar Ólafar og þríhjól síðan Þórunn var lítil. En þetta er nú ekki allt því vinkona Þórunnar geymir hjólið sitt oft hérna á meðan hún er í skólanum og bróðir hennar líka, sem væri auðvitað í fínu lagi ef þau færu með hjólin heim eftir skóla! Um helgina voru sem sagt öll okkar hjól hérna á tímabili á pallinum, hjól vinkonunnar og hlaupahjól bróður hennar og eitt hlaupahjól í viðbót sem ég veit ekki alveg hver átti. Samtals 11 hjól og geri aðrir betur.
9. apríl 2008
Fótafúið fólk á besta aldri
Ég fór að sækja Ólöfu í fimleika í gær sem er ekki í frásögur færandi, nema það að aldrei þessu vant fór ég á bílnum. Við Egilshöllina eru búnar að vera framkvæmdir í næstum ár og sífellt er erfiðara að komast að innganginum, þ.e.a.s. á bíl. Núna er mjó renna að dyrunum, stórt skilti við rennuna, innakstur bannaður og svo við endann á rennunni, við innganginn annað skilti sem á stendur "akstursleið, bifreiðastöður bannaðar". Samt sem áður eru ótal bílar að troðast þarna, væntanlega fólk sem er að sækja börn sín af íþróttaæfingu (bíddu ... hver er aftur tilgangurinn með íþróttaæfingum ... hmmm ... hvað var það aftur ... hmmm ... jú alveg rétt, hreyfing!) Geta börnin þá ekki gengið þessa 100 metra yfir á bílastæðið þar sem foreldrarnir geta beðið án þess að teppa aðkeyrsluna, t.d. fyrir sjúkrabílum.
Á kennarafundinum í dag var skóladagatal næsta árs kynnt. Nemendur eiga að vera frá 22. ágúst - 11. júní á næsta skólaári. Kennarar eiga að vera frá 14. ágúst til 15. júní. Inn á dagatalinu eru auðvitað tvö vetrarfrí! - hvað er þetta með vetrarfrí og þessa konu? Kennarar voru mjög reiðir vegna þess að ekki var gefinn kostur á að hafa áhrif á hvort vetrarfrí yrðu tekin. Ég var beðin um það sem trúnaðarmaður að kanna það hjá KÍ hvort við hefðum ekki kosningarrétt varðandi þessi vetrarfrí, sem ég gerði. Ég sendi bréf til Sesselju hjá KÍ áðan og vonandi fáum við svör fljótlega.

7. apríl 2008
5. apríl 2008
Veiðiferð híhíhí
Siggi og félagar fóru í veiðiferð í gær. Svo fékk ég sms áðan. Gengur vel fyrir utan eitt smá ogguponsu vandamál. Áin er frosin!
Við mæðgur fórum í afmæli til Jóhanns áðan, mmmmm fengum æðislega súpu, brauð og ávexti í hádegismat hjá þeim.
Við mæðgur fórum í afmæli til Jóhanns áðan, mmmmm fengum æðislega súpu, brauð og ávexti í hádegismat hjá þeim.
kl.
18:42
Engin ummæli:
2. apríl 2008
Fókus í Ráðhúsinu
Ég var á vakt í Ráðhúsinu á mánudaginn. Þar hitti ég eina sem er contact hjá mér á Flickr. Við spjölluðum heillengi saman sem var bara skemmtilegt, gaman að tengja myndasíðu á Flickr við manneskju.
En góðu (hmm eða slæmu) fréttirnar eru þær að það er ekki búið að reka mig ennþá fyrir bréfið sem ég sendi á föstudaginn til kennarasambandsins. Þar var ég að biðja félagið að ganga í það fyrir okkur kennarana að hvíldartímaákvæði kjarasamningsins sé virt. Nú bíðum við bara spennt og vonum að þetta gangi fljótt og vel fyrir sig.
Ásta keypti sér nýja (notaða) myndavél í gær. Til hamingju með það Ásta, flottar myndir úr nýju vélinni á Flickr.
Varð að skrifa eitthvað bull núna því ég var að skamma Guðnýju fyrir bloggleti.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)