29. apríl 2008

EF (eftir fermingu)

Jæja þá er tímabilið eftir fermingu hafið. Veislan var á sunnudaginn og heppnaðist mjög vel. Ég fékk mikla hjálp frá Guðnýju, mömmu og Guðmundi. Siggi var auðvitað handlama á hægri en gerði sitt besta. Svo hjálpuðu Svala og Elín með kransakökurnar, þær voru báðar æðislega góðar. Þórunn var alsæl eftir daginn. Hún fékk margar fallegar gjafir, passlega mikið af skartgripum, 3 orðabækur, fullt af peningum og margt fleira fallegt. Við gáfum henni fartölvu sem hún var ótrúlega ánægð með. Veðrið var yndislegt og við gátum notað pallinn sem var frábært því það komu 60 gestir. Frábær dagur með frábæru fólki.

Næst á dagskrá er svo að ljúka við síðasta verkefnið í íslenskunáminu, sækja um námið sem mig langar í í Borgó og velja svo síðasta námskeiðið í íslenskunni (við eigum bara 4 einingar eftir). Sem sagt nóg framundan fyrir utan þessar venjulegu vorannir í kennslunni.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvað er þetta eiginlega - dó bloggið eftir fermingu?

E

Nafnlaus sagði...

hehe
búin að vera föst á spjallsíðu á Flickr undanfarið og alveg gleymt öllu öðru.
J

Related Posts with Thumbnails