30. október 2007

Bara einn dagur í vetrarfrí ...

... og ég sem þoli ekki þessa fáranlegu hugmynd að taka daga af sumarfríinu mínu til að nota þegar ég þarf ekki á þeim að halda í kulda og trekki. Ekki misskilja mig ég er alltaf til í að fá frí, en ef það styttir sumarfríið mitt finnst mér það ekki fyndið.

Fékk svar frá kennarasambandinu í dag. Eins og mig grunaði er ekki leyfilegt að hafa launatímabilið frá 10. - 9. fyrir yfirvinnutímana, það mega ekki líða meira en 15 dagar frá lokum tímabils til útborgunar. Næsta skref er að segja Ásu þetta og Rósu hjá Menntasviði. Vonandi gengur það þrautalaust fyrir sig.

Mamma og pabbi eru á leiðinni til Kanarí í fyrramálið í heilan mánuð, ég væri sko til í að lauma mér með.

Ég hitti Ástu á ganginum eftir fundinn erfiða í dag. Við ræddum um að nú þegar faggreinakerfið væri komið á væri engin ástæða að við, þessir umsjónarkennarar, værum alltaf með umsjón. Okkur fannst kominn tími til að dreifa ábyrgðinni og "leyfa" fleirum að komast í jobbið. Það fer fáranlega mikill tími í umsjónarstarfið og fyrir það er greiddur einn skitinn launaflokkur, 5000 kr fyrir skatta. Það væri hægt að ná inn sama pening með því að taka tvo forfallatíma á mánuði, takið eftir!, á mánuði, ekki viku.

Ef ég verð næsta vetur vil ég ekki umsjón, og hana nú ...

ein þreytt eftir erfiðan dag á vitlausaspítalanum

24. október 2007

brjáluð vika

Við komum heim frá Búdapest kl. hálfsex í gærmorgun. Ég ákvað að fara ekkert að sofa (þá hefði ég örugglega sofið til hádegis), las bara blöðin, borðaði morgunmat, skoðaði tölvupóstinn og gekk frá úr töskunni áður en ég fór í vinnuna. Þriðjudagar eru lengstu dagarnir mínir, 7 kennslustundir í röð, en ég var búin að panta "vísindamann að láni" þennan dag, algjör snilld. Vísindamaðurinn minn, Hafrún, rafmagnsverkfræðingur, kom kl. 10:30 og var með skemmtilegan fyrirlestu x 4. Þ.e. ég gat platað hana til að halda fyrirlesturinn fyrir alla 4 hópana mína í stærðfræði. = Rólegur tími fyrir mig. Ég fór heim um kl. hálf fjögur, hélt áfram að vinna í tölvunni til rúmlega átta og var sofnuð um hálftíu. Ekkert svo erfiður dagur.

Var á fullu í dag að undirbúa foreldraviðtölin á morgun. Var í vinnunni til hálfsex og náði að klára allt fyrir morgundaginn nema setja fyrir heimavinnu fyrir næstu viku, geri það á eftir.

Síminn hringdi hérna þegar ég var á leiðinni út í búð eftir að hafa farið með Ólöfu í fimleika kl. sex. Í símanum var einhver strákur sem talaði bara fr....ísku, ég skildi ekki nema helminginn af því sem hann sagði og samt er ég nokkuð góð í fr....ísku (talaði heillengi við Fr... í dag og skildi næstum allt). Ég held að strákurinn hafi verið að reyna að selja mér áskrift af lottói. Þoli ekki óskýrmælt símasölufólk ... arg

Annað sem ég þoli ekki er þegar maður bíður eftir töskunum á flugvöllum. Flestir raða sér svo þétt upp við færibandið að það er ekki nokkur leið að komast að bandinu ef maður sér töskuna sína. Er að spá í að mæta með gult límband næst þegar ég fer til útlanda og líma hringinn í kringum bandið í svona meters fjarlægð og skrifa: standið hér á meðan þið bíðið eftir töskunum.

Þoli ekki heldur matreiðsluþætti í sjónvarpinu, allt svo auðvelt og einfalt ... þetta er ekki hægt í alvörunni!

Jæja nú er ég hætt að vera pirraða Barbie

Ég ætla að reyna að láta Þórunni og Sunnu passa Ólöfu í fyrramálið á meðan ég er með viðtölin, vonandi sofa þær bara út, horfa á eina mynd og rífast ekkert áður en ég kem heim kl. 1. Þetta er samt algjört happdrætti.

En nú er komið að því að vinna upp í íslenskunámskeiðinu, á eftir að hlusta á 2 fyrirlestra og lesa eitthvað líka áður en við hittumst á morgun til að fara yfir næsta verkefni sem á að skila á morgun.
Svona hættu nú að blogga stelpa!

16. október 2007

bílastæðaklukkan mín góða

Litla sæta vörtusvínið mitt fór í skoðun um daginn og þá fékk ég bílastæðaklukku í leiðinni. Við systur fórum svo í bæinn um daginn og þegar ég ætlaði að fara að leita að peningum í stöðumælinn sagði systir, bíddu áttu ekki bílastæðaklukku? Við skelltum klukkunni í framrúðuna og stilltum hana samviskusamlega og fórum hæstánægðar að rölta á Laugaveginum. Svo færðum við bílinn, stilltum klukkuna aftur og vorum yfir okkur sælar að eiga svona flotta bílastæðaklukku. Þegar ég kom heim fór ég auðvitað að monta mig af minni fínu klukku, því Sigga bíll er svo mikill eyðsluhákur að hann fengi aldrei svona flotta klukku. Hann sagði bara: já, flott hjá ykkur en er ekki laugardagur og frítt í bílastæðin?

10. október 2007

Snilldarormur

Það er ekkert smá rólegt hér heima á kvöldin núna. Elín gaf mér ljósrit af æfingaorminum sem sonur hennar fékk í fiðlutíma. Nú er Ólöf farin að passa upp á klukkuna á kvöldin, hún á að lesa, hátta og bursta tennurnar fyrir kl. 8 og þá má hún gefa orminum að borða. Og hún er svo ánægð og stolt af sjálfri sér. Það er ekki einu sinni búið að bjóða henni einhver verðlaun, henni finnst bara æðislegt að fá að setja límmiðafrosk í magann á orminum. Eins og ég segi - hreinasta snilld.

Það eru alltaf skemmtilegar umræður á kaffistofunni, í dag vorum við Elín að ræða um að sækja um aðra vinnu, vera svona leiðbeinandi á undanþágu (eins og í grunnskólunum). Mig langar að vera byggingaverkfræðingur, ég hef mikla reynslu af byggingum, ég hef búið í húsi alla mína æfi, ég hef tekið þátt í að byggja 3 hús, tvö þegar ég var krakki og svo húsið sem við búum í núna. Ég veit alveg hvernig hús á að líta út svo ég held bara að ég væri svolítið góð í þessu. Elín ætlar að verða tannlæknir, hún hefur burstað tennurnar í sjálfri sér og 3 sonum sínum, hún hefur oft farið til tannlæknis og getur örugglega lært að nota loftsprautuna o.fl. tól.

Siggi er bara í bílskúrnum þessa dagana að setja samlæsingar í jeppann og Þórunn nennir ekkert að gera í skólanum og þarf því að eyða öllum kvöldum í heimalærdóm. Sem sagt - bara rólegt hjá mér.

Kveðja
Pæjan á hælaskónum

6. október 2007

Myndatiltekt

Ég var að taka afrit af myndunum í stóru tölvunni og rakst þá á þessa mynd. Þetta er uppáhaldsmyndin mín. Hún er tekin í listaverkagarðinum vestast í Grafarvogi í júní sl. og er af okkur Sigga. Ég tók hana sjálf á tíma, stillti Sigga upp, ýtti á takkann og hljóp svo á réttan stað.

3. október 2007

Úff, pjúff

Hvað er maður eiginlega að spá að vera í þessu starfi. Ég fékk launaseðilinn minn á mánudaginn og er næstum búin að vera grátandi síðan. Í fyrsta lagi lækka mánaðarlaunin mín úr 224.000 niður í 218.000 frá því fyrra af því að þetta árið er ég með 17 nemendur í umsjón en var með 20 nemendur í umsjón í fyrra, þannig að nú fékk ég „leiðréttingu“ á laununum fyrir ágúst og september. Svo eins og það væri ekki nóg, þá fékk ég líka bara meðaltalið af yfirvinnunni greitt, ég á semsagt að kenna 4 yfirvinnutíma á viku (sem ég bað ekki um = svona er kennaraskorturinn leystur) fyrir áramót en 2 yfirvinnutíma eftir áramót. Hjá Reykjavíkurborg er það viðurkennd vinnuregla að þá fái ég greidda 3 yfirvinnutíma allan veturinn. Þessir háu herrar ætluðu sem sagt ekki að borga mér hluta af yfirvinnunni sem ég vinn núna fyrr en í janúar-febrúar! Ég bað um að þetta yrði lagað og það var vel tekið í það en leiðréttingin kemur þá auðvitað ekki fyrr en 1. nóv. &*%$# skíta jobb. Afsakið orðbragðið, en maður fer ósjálfrátt að tala svona þegar nemandi manns kallar mann ógeðslega hóru, ... tvisvar sinnum sama daginn.

Skapið lagast örugglega eftir nokkra daga, þetta er bara þetta venjulega mánaðarmótaþunglyndi.
Related Posts with Thumbnails