30. apríl 2011

Basil og baunir

Smá DIY verkefni hérna rétt fyrir páska, ég keypti ódýra leirpotta og tók fram kalklitinn minn, skellti málningarlímbandi á pottana til að afmarka svæðið, málaði eina umferð yfir, lét þorna, skrifaði á með blýanti, setti mold, sáði basil og baunum. Nú bíð ég spennt eftir uppskerunni.
Girnilegu páskaeggin okkar, þarna vantar samt tvö egg nr. 4 sem stelpurnar fengu hjá mágkonu minni fyrir páskana. Sæta spætan fékk fjögur egg, heimasætan fékk þrjú og húsmóðirin eitt, hr. Galinn ákvað að fá sér ekki páskaegg þetta árið en fékk smakk hjá okkur.

Eruð þið ekki að grínast með þennan snjó? Það er allt hvítt eins og á fegurstu jólanótt og á morgun er 1. maí! Ég hélt að það væri óhætt að óska fólki gleðilegs sumars í gær en ég hef beðið með það út af snjóþyngslum en svo var bara allt hvítt í morgun og hefur snjóað stanslaust í allan dag. Þetta er nú alveg orðið gott í bili.

22. apríl 2011

að hanga á netinu er góð skemmtun

Ég hef hangið á netinu undanfarin kvöld og skoðað síðuna pinterest.com. Það er sko hægt að gleyma sér þar í marga marga klukkutíma. Ótrúlega flottar margar hugmyndirnar þarna. Ég væri til í svona stiga heima hjá mér ef ég ætti hús á tveimur hæðum það er að segja. Svo væri ég til í svona "walk-in-closet" eins og maður sér í ammrískum bíómyndum, geðveikt! Verst að þá yrði ég að kaupa mér helling af fötum til að fylla fataherbergið, en kannski væri það ekki svo slæmt.
Ég sendi hr. Galinn út á skítapall í dag að háþrýstiþvo pallinn því hann var allur orðinn grænn og slímugur út af sottlu. Það er skemmst frá því að segja að undan skítnum kom hinn fegursti viðarlitur, nú væri ég til í að loka #$&$%$#% gatinu sem myndaðist þegar Hr. Galinn byggði skúrinn um árið og gera skítapallinn svolítið huggulegan. Er þetta ekki þversögn?
En ég hef líka verið dugleg að vinna í verkefnunum mínum fyrir Borgó námið. Er alveg að ná þessu með foley hljóðin og svona, hehe

17. apríl 2011

Peysan er tilbúin

Reyndar kláraði ég hana fyrir hálfum mánuði en gleymdi alltaf að monta mig af henni. Svo keypti ég þæfðar ullarkúlur í Söstrene Grene og bjó mér til hálsmen sem ég er alveg að fíla.
Ég og heimasætan bjuggum til köku með kaffinu í gær og notuðum restina af sykurmassanum sem var að renna út á tíma en hann geymist í mánuð í ísskáp. Kakan var fín, með smjörkremi og glimmer.
Og svo var það aðalmálið í gær, að búa til súkkulaði skálar með blöðrum eins og ég er búin að vera að sjá á facebook. Mér sýndist á myndunum þaðan að notaðar væru vatnsblöðrur og ég hugsaði mér gott til glóðarinnar því ég vissi að við ættum svoleiðis. Ég blés þær upp með blöðrupumpunni, þær fyrstu sprungu strax þannig að ég passaði að blása þær ekki of mikið upp og náði að binda fyrir. Svo voru þær þvegnar og þurrkaðar. Þegar ég var búin að bræða saman einn poka af hjúpsúkkulaði og eina plötu af suðusúkkulaði var allt tilbúið ...
... þegar ég var búin að reyna þrisvar að dýfa blöðrunum ofan í súkkulaðið og þær sprungu alltaf, með tilheyrandi subbuskap fyrir okkur og eldhúsið mitt, þá ákvað ég að vatnsblöðrur henti bara alls ekki fyrir svona föndur. Herra Galinn var því sendur af stað til að kaupa venjulegar blöðrur og við reyndum aftur með þær.
Það kom í ljós að venjulegar blöðrur eru flottar til að búa til svona súkkulaðiskálar. Ég notaði bökunarpappír á ofnplötu og undir plötuna raðaði ég öllum kælipokunum sem til eru á heimilinu. Þegar við vorum búnar að gera 6 svona skálar settum við þær í ísskáp til að súkkulaðið myndi kólna vel og storkna.
Glæsilegar skálar! Það kom hins vegar í ljós þegar ég ætlaði að ná blöðrunum úr skálunum að það hefði verið sniðugt að maka palmínfeiti eða annarri olíu á blöðrurnar til að skálarnar brotni ekki þegar maður tekur blöðrurnar úr. Það sem maður er búinn að læra á þessu ferli, ekkert venjulegt.

15. apríl 2011

yndislega páskafrí

Ætli þetta páskahret fari ekki að klárast, bíð spennt eftir vori, hita, sól, sumaryl, grænu grasi og laufguðum trjám.
Þessa köku gerðum við frænkurnar fyrir afmæli JÁG um daginn og auðvitað vakti hún mikla lukku. GMG er að verða snillingur í sykurmassakökum.

Um daginn var sýnikennsla í Gerðubergi. Þar var hægt að læra að gera rósir og kökuskreytingar úr smjörkremi. Sæta spætan var alveg að ná þessu en þá var smjörkremið orðið of heitt og rósirnar láku niður.
Það er alltaf gott að halda í barnið í sér, þetta eru plastdiskarnir sem eru í nestistöskunni okkar fínu. Við vorum að bæta við tveimur diskum í safnið.
Ég keypti poka af filtkúlum í Söstrene Grene um daginn og bjó mér til hálsmen.

Og að lokum tvær af kvikyndinu, hann lætur nú ýmislegt yfir sig ganga greyið.
Related Posts with Thumbnails