31. desember 2012

Áramót

Þá er enn eitt árið að kveðja. Árið 2012 hefur bara verið ágætt, auðvitað hafa skipst á skin og skúrir eins og vera ber en það sem stendur upp úr er að í kringum mig er heill hellingur af góðu fólki sem ég nýt að vera nálægt og vonandi nýtur það þess líka að vera nálægt mér. Það er nú ekki mikið meira sem maður getur óskað sér.

Takk fyrir samveruna, megi árið 2013 vera uppfullt af skemmtilegum viðburðum og góðum stundum.

16. desember 2012

þriðja helgi í aðventu

Þriðja og næstsíðasta helgi fyrir jól er búin, samt finnst mér eiginlega að næsta helgi sé jólahelgin, hálfgert svindl þegar jólin lenda svona alveg ofan í helginni. En við fórum af stað með metnaðarfulla dagskrá í gærmorgun þar sem við höfum bara tekið því rólega hingað til, horft á sjónvarpið út í eitt og svoleiðis huggulegheit. Ég hef bara ekki haft orku í meira því nemendur mínir eru orðnir svo spenntir að bíða eftir jólunum að öll mín orka fer í að halda skipulaginu og passa að ekki fari allt úr böndunum. Með góðri hjálp heimilismanna tæmdist listinn næstum því, aðeins tvö atriði eftir í tiltekt og ég náði ekki að fara út í búð. Sæta spætan og ég vorum einar heima á laugardagskvöldið og ákváðum að baka eina smákökusort. Ohh það er svo gott að fá svona gæðastundir með börnunum sínum.

Fjúff, löng og ströng helgi að baki og þá eru bara fjórir kennsludagar eftir!!! Á morgun eru svo tónleikar unglingsins og síðasti tíminn í frönsku. Örfáar jólagjafir eftir en ég er búin að ákveða hvað það á að vera að mestu svo það þarf bara að sækja.

9. desember 2012

Annar sunnudagur í aðventu

Þá er annar sunnudagur í aðventu liðinn. Ég bakaði tvær smákökusortir í gær og gerði brauð í morgun. Svo er búið að kaupa nokkrar jólagjafir. Í næstu viku eru jólatónleikar stelpnanna, held ég. Jólaljósin eru komin upp utan á húsinu, jólasveinninn stendur keikur við útidyrnar og jólaóróarnir hanga í stofunni. Jólaundirbúningurinn mjakast áfram.

3. desember 2012

Aðventan

Þá er aðventan gengin í garð með dimmum dögum og kertaljósum. Jólaskreytingar potast upp með hraða snigilsins, ég skil ekki hvað ég er róleg í þessu þetta árið. Ég hef miklar áhyggjur af því að ég er ekkert farin að baka ennþá, er að vísu búin að baka úr einum pakka úr IKEA en það er nú varla hægt að telja það með. Aðventukransinn er einfaldur þetta árið eins og síðustu ár, er ekki mikil kransatýpa. Ætla samt að búa til einn útikrans úr greni og berjum úr garðinum, komin vika síðan ég keypti grenið!
Dagarnir í vinnunni eru krefjandi svo ekki sé meira sagt þegar skjólstæðingarnir eru að missa sig úr spenningi.
Sæta spætan bað mig að prjóna háa ullarsokka fyrir vetrarskóna sem hana langar að kaupa. Ég var svo heppin að eiga tvær dokkur af jurtalituðu kambgarni frá Hespu og ákvað að prjóna sokkana frá tá og upp til að nýta garnið eins og kostur er. Bláa bandið er hælbandið en ég geri alltaf hælinn eins og þumal.
Svo er ég með þetta sjal á prjónunum og þegar það klárast langar mig að prjóna mér pils, þykkt og gott pils sem hægt er að klæðast utan yfir göngubuxurnar mínar.
Related Posts with Thumbnails