Mig vantaði nýtt peningaveski og ákvað að kaupa íslenska hönnun og framleiðslu hjá Atson, flott þjónusta þar. Um leið og ég raðaði öllu í nýja veskið fór ég í gegnum gjafakortin mín frá afmælinu mínu í fyrra og komst að því að ég er ríkari en ég hélt, mest átti ég eftir af miðborgarkortinu mínu og "þarf" því nauðsynlega að komast á Laugaveginn fljótlega!
En annars er ég í helv... vetrarfríinu núna, eigum við að ræða það eitthvað!!!
S sagði mér með hneykslun í röddinni áðan frá vini sínum sem var neyddur til að taka viku af sumarfríinu sínu núna. Mér fannst það nú ekki merkilegt, ég hef verið neydd til að taka 4-5 daga af mínu sumarfríi á fáránlegum tíma í nokkur ár.
26. febrúar 2009
24. febrúar 2009
Öskudagur á morgun!
Öskudagsbúningurinn er klár! S þurfti að rúnta um bæinn í einn og hálfan tíma til að finna nefið, það var nefnilega uppselt í öllum Hagkaupsbúðum á stór-Reykjavíkursvæðinu.
Merkimiðar:
Handavinna
23. febrúar 2009
Öskudagur framundan
Þetta er teikningin sem ég fékk frá litlu ungfrúnni á bænum til að sauma eftir fyrir öskudaginn. Ég gerði að sjálfsögðu eins og mér var sagt, enda hlýðin kona með eindæmum, fór áðan og keypti efni í Virku og byrjaði að sauma strax eftir matinn. Var að klára kjólinn núna rétt áðan og nú þarf bara að hanna hattinn á morgun.Vona bara að litla ungfrúin verði ánægð þegar hún vaknar. Ef einhver sér ekki hið augljósa þá er þetta nornakjóll og hún og pabbi hennar ætla að versla nornanef á morgun.
Merkimiðar:
Handavinna
20. febrúar 2009
Kardimommubærinn

Við fórum 9 saman á Kardimommubæinn áðan. Þetta var stórgóð skemmtun bæði fyrir börn og fullorðna. Leikmyndin og búningarnir voru vel unnir, bjartir og glaðlegir litir, söngur og dans. Brandarar bæði fyrir börn og fullorðna. Gleðileg og hættuleg atriði. Sem sagt allt sem hægt er að hugsa sér í einum pakka. Rauði og græni liturinn var áberandi í sýningunni allri. Það eina sem pirraði mig var hún Edda Björg Eyjólfsdóttir sem lék ungfrú Soffíu, hún var bara ekki nógu góð Soffía, ekki nógu raddsterk og mikill ofleikur í gangi. Krakkarnir hennar systur minnar og mín yngri skemmtu sér hins vega alveg konunglega og það voru fjörugar umræður í bílnum á leiðinni heim.
kl.
22:23
Engin ummæli:
15. febrúar 2009
Kósímorgunn
Fékk smá prívattíma í morgun. Þ hjá vinkonu sinni og Ó og S á fimleikamóti. Náði að gera heilmikið, hlustaði á einn og hálfan fyrirlestur í íslenskunáminu, skipti á rúmunum, braut saman þvott, sett í tvær þvottavélar, talaði heillengi við Róslín á MSN og fékk mér huggulegan hádegisverð í friði og ró.4. febrúar 2009
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)