
Við fórum 9 saman á Kardimommubæinn áðan. Þetta var stórgóð skemmtun bæði fyrir börn og fullorðna. Leikmyndin og búningarnir voru vel unnir, bjartir og glaðlegir litir, söngur og dans. Brandarar bæði fyrir börn og fullorðna. Gleðileg og hættuleg atriði. Sem sagt allt sem hægt er að hugsa sér í einum pakka. Rauði og græni liturinn var áberandi í sýningunni allri. Það eina sem pirraði mig var hún Edda Björg Eyjólfsdóttir sem lék ungfrú Soffíu, hún var bara ekki nógu góð Soffía, ekki nógu raddsterk og mikill ofleikur í gangi. Krakkarnir hennar systur minnar og mín yngri skemmtu sér hins vega alveg konunglega og það voru fjörugar umræður í bílnum á leiðinni heim.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli